Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Blaðsíða 8
20 - Laugardagur 7. september 1996 jDagnr-ÍDmmn Blindur eftir slys á íslandi fyrir sjö árum Útskrifaðist með hundinum sínum frá Háskólanum í Dundee Fyrir rúmum sjö árum slas- aðist Skoti nokkur í bfl- slysi skammt frá Akureyri. Hann heitir Derek Vaughn og var í heimsókn hjá ættingjum íslenskrar eiginkonu sinnar, El- ínar Bjarnadóttur, þegar bfll keyrði á hann þar sem hann stóð á gönguskíðum úti á þjóð- vegi. Meiðsl Dereks voru mjög alvarleg, hann var meðvitund- arlaus í sex vikur eftir slysið og lá á sjúkrahúsi í níu mánuði. Smátt og smátt náði hann sér að fullu, nema að einu leyti. Sjón hans var horfin að fullu og öllu; Derek Vaughn er blindur á báðum augum. Ýmsir hefðu lagt árar í bát við þetta áfall, en Derek varð þetta hvatning til nýrra dáða. Hann var með öllu ómenntaður en síðustu fimm árin hefur hann stundað nám í heimspeki við háskólann í Dundee og út- skrifaðist með láði nú í vor. Og ekki nóg með það, heldur fékk fylgdarhundur Dereks, labrador að nafni Alf, sérstaka viður- kenningu frá háskólanum fyrir góða ástundun og sérstaka hjálpsemi við eiganda sinn. Derek Vaughn fæddist í Dundee og ólst þar upp en lagð- ist snemma í ferðalög. Pað hvarflaði ekki að honum að halda áfram námi eftir að skólaskyldu lauk, svo mjög sem honum lá á að njóta lífsins og skoða sig um í veröldinni. í nokkur ár vann hann á olíubor- pöllunum í Norðursjó en flakk- aði síðan víða um Evrópu og Afríku, fór meðal annars ein- samall yfir Sahara eyðimörkina. Það var við komuna frá Afríku sem Derek kynntist Ehnu Bjarnadóttur frá Hofi í Eyjafirði. Hún var ásamt vinkonu sinni að tína vínber í Carcassonne í Frakklandi og þangað kom Derek að hitta svissneskan kunningja sinn. Þau Ehn felldu hugi saman en við lá að sam- bandi þeirra lyki snögglega af tómum misskilningi. Biturleiki hefði ekki hitt neinn fyrir nema sjálfan mig Við unnum öll þrjú á vínekru nálægt Cognax en síðan ætluðu stelpurnar til Ítalíu en ég átti erindi til Ungverjalands. Við ákváðum að hittast í Grikklandi eftir þrjá mánuði og mæltum okkur mót á aðalpósthúsinu í Aþenu. Ég kom þangað á til- settum tíma og beið og beið, en sá hvergi til þeirra. Daginn eftir kom ég aftur og beið lengi, en þær létu ekki sjá sig. Að lokum gafst ég upp og var að ganga burtu þegar ég kom auga á vin- konu Elínar. Þá kom í ljós að þær höfðu setið og beðið eftir mér á öðru pósthúsi handan við hornið. Þau Elín og Derek giftu sig ári seinna og næstu fjögur árin var hann á sjó á íslenskum bát- um. Eftir að Derek hætti á sjón- um opnaði hann lítið gallerí hér á landi, en árið 1986 fluttu hjónin til Skotlands þar sem El- ín hóf nám við háskólann í smábænum St. Andrews, sem kunnur er fyrir virtan háskóla og ágætan golfvöll. í St. Andrews hafa þau búið síðan. Sem fyrr fékkst Derek við ýmis- legt, rak gallerí og setti upp sýningar en um jólin 1988 fóru þau í hina örlagaríku heimsókn til íslands sem endaði með bfl- slysinu skelfilega. Derek man ekki eftir slysinu sjálfu en það mun hafa gerst þannig að þegar hann var á skíðum ásamt mági sínum kom aðvífandi bfll með kunningjum þeirra. Derek nam staðar úti á vegi til að spjalla við þá en þá kom bfll á móti og bflstjóri hans missti stjórn á honum í hálj^. unni og skall á Derek. Sem fyrr greinir var Derek meðvitundar- laus í sex vikur og slasaðist auk þess illa á fæti. Eftir að hann komst til meðvitundar kom í ljós að hann hafði misst sjón- ina. Lífsgleði sína og gaman- semi hafði hann hins vegar ekki misst. Ég áttaði mig fljótlega á því fylgdarhundurinn Alf, Elín Bjarnadóttir frá Hofi í Eyjafirði, og Derek. Alf fékk venjulega stúdentshúfu breskra háskólanema þegar hann fékk viðurkenningu frá Dundee-háskóla. Nokkrum vikum síðar lauk eigandi hans, Derek Vaughn, heimspekinámi frá sama skóla. að í rauninni var ég mjög hepp- inn að vera á lífi. Auðvitað breytti þetta slys lífi mínu en það breytti mér ekki sem manneskju. Og ég sá engan til- gang í að fyllast biturleika vegna þess sem gerðist. Bitur- leiki hefði ekki hitt neinn fyrir nema mig sjálfan. Eftir að Derek komst á ról á nýjan leik einsetti hann sér að auka við menntun sína og fór á námskeið sem síðan veitti hon- um aðgang að háskóla. Val hans á námsefni vakti nokkra undrun sumra kunningja hans sem þekktu hann fyrst og fremst sem léttlyndan og jafn- vel kærulausan spaugara, en heimspeki varð ofan á. En vangaveltur um lífið og tilver- una hafa alltaf vakið áhuga Dereks og nú ákvað hann að taka þetta áhugamál sitt föstum tökum. Enda þótt þau Elín búi í háskólabænum St. Andrews fór svo að Derek settist í háskólann í Dundee, heimaborg sinni, þar sem síðarnefndi háskólinn var auðveldari aðgöngu fyrir fatl- aða. Derek þurfti því að ferðast daglega til og frá Dundee og þótt það ferðalag taki ekki nema rúman hálftíma segir sig sjálft að það er annað en leikur fyrir blindan mann. En Derek hefur aldrei látið erfiðleikana við fötlun sína buga sig, heldur þvert á mót kappkostað að lifa sem allra eðlilegustu lífi og tek- ist það með góðri hjálp konu sinnar, fjölmargra vina sinna og ættingja. Væri fyrirlesturinn góður hraut hundurinn Og ekki má gleyma þætti hundsins Alfs, sem er sérþjálf- aður blindrahundur sem Derek eignaðist fyrir sex árum. Derek fullyrðir að nafn hundsins sé skammstöfun fyrir alien life form, eða framandlegt lífsform, en þeir Alf hafa verið nær óað- skiljanlegir öll þessi ár og Derek segir að hann hefði alls ekki getað stundað sitt nám nema með hjálp Alfs. Hann hef- ur verið augu mín, segir hann. í fjögur ár fylgdi Alf Derek um ganga háskólans í Dundee og lá fram á lappir sínar meðan á fyrirlestrunum stóð. Aðrir stúd- entar og kennarar kunnu brátt vel að meta nærveru hundsins og þar kom að nota mátti Alf til að meta hversu vel heppnaðir fyrirlestrarnir voru. Þegar Alf fór að hrjóta þá vissi maður að fyrirlesturinn var góður og allir hlustuðu af athygli, segir Derek. Umferðarslys í Arnarneshreppi: jEldðágöngu- skíðamann - nuttur á spítala í Reykjavík Í Alvarlegt umferDar?.lys varð 1 við bseinn Hof * Arnames* ] hreppí í Eyjafirði <ð• kwW ! annars dags j4,ia* a | þar í JSja »ra (•amlan mann 1 oe hlaut hann ulvorlega J höfuaáverka OR Ireiobrol. 1 Tilkynni ver um vlysiö <il j lögreglu klukkan 21.1«. Hinil | slasaöi var fluiiur i skyndi u ! Fjöraungtójúkiiihúsia a Akur- l eyrí oe siðun á spitala i peykjavik. Utan hans var ; I eftír atvikum i gter Tildróg slyssins voru þau aö II á noröujlciö áöi úl í vcgar- mti gcigirt barnum Hofi Tvc«r cnn ágönguskiaumgáfuisig tal vi» akumann bifrciðar- ,nar. Anitar skíðama9unnn atð fyrir bifrcið scm kom úr orðri með íyrrgremdum nciðingum. Skyggni var nott bcyio.siy5' 5 v»rð cn noliur hilka. Svo. irðist sem ðkumaður bifreið- mnnarremlentiiímannmurn wfi Windast af ökuliðsum „vmirbtL bflsins. “P'1 Fréttin sem birtist í Degi 28. des- ember 1988. Og í júní-mánuði síðastliðn- um, nokkrum vikum áður en Derek sjálfur lauk sínu heim- spekinámi fékk Alf sérstaka viðukenningu frá háskólanum sem afhent var við hátíðlega at- höfn á sal Dundee-háskóla. Rektor skólans, dr. Ian Gra- ham-Bryce, sagði við það tæki- færi: Við munum sjálfsagt aldrei fá að vita hversu mikla heimspeki Alf hefur drukkið í sig meðan hann sinnti skyldum sínum sem fylgdarhundur. En enginn vafi getur þó leikið á því að almenn þekking á þrætubók- inni kemur honum að góðum notum. Hér notaði rektor orðið dogma sem merkir kenningar eða þrætubók heimspekinga, en var að sjálfsögðu einnig leikur með orðið dog eða hundur. Og dr. Graham-Bryce sagði ennfremur: Þessi háskóli veitir ekki viðurkenningar upp á grín. Ég hef fengið fregnir af mjög góðri frammistöðu Alfs og hann á þessa viðurkenningu svo sannarlega skilið. Að taka há- skólapróf er aldrei auðvelt og það er sérlega virðingarvert þegar menn eins og Derek ná slíkum áfanga, þrátt fyrir að hafa þurft að yfirstíga meiri erf- iðleika en aðrir stúdentar. Við erum afar þakklátir fyrir þann þátt sem Alf á í að gera Derek mögulegt að útskrifast. Kjötbein í verðlaun Alf klæddist að sjálfsögðu skikkju og var með stúdents- húfu líkt og venjulegir stúdent- ar sem útskrifast frá háskólum á Bretlandi, og viðstödd athöfn- ina voru að sjálfsögðu Derek og Elín, en jafnframt þjálfari Alfs, Mary Scroggie, Paul Brown sem hefur umsjón með aðgengi fatl- aðra að háskólanum í Dundee og fulltrúi fylgdarhundastöðv- arinnar í héraðinu. Óvíst er hversu mikils Alf mat það virðulega skjal sem honum var afhent við þetta tækifæri en hins vegar fór ekki á milii mála að hann kunni vel að meta sér- stök verðlaun sem honum voru einnig afhent; þar var um að ræða gómsætt kjötbein. Sem fyrr segir útskrifaðist Derek svo sjálfur nokkrum vik- um síðar og var þá Alf að sjáif- sögðu viðstaddur. Þau Derek og Elín hafa verið í heimsókn á íslandi undan- farnar vikur en á meðan hefur Alf hvflt sig eftir erfitt háskóla- nám heima í Skotlandi. Þau hjón eru nú farin af landi brott að sinni og Derek hyggst leggjast í ferðalög að nýju. Hann er á leiðinni til Indlands þar sem hann hyggst jafnvel reyna sig við skriftir, enda hef- ur hann úr nægri lífsreynslu að moða. Enn verður Alf að sitja heima, en honum ætti þó varla að leiðast. Sakni hann hús- bónda síns um of getur hann væntanlega drepið tímann með því að íhuga kenningar Platons, Leibnitz og Kants, eða einfald- lega riijað upp bragðið af kjöt- beininu góða. Illugi Jökulsson.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.