Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Page 3
jBagnr-ÍEmthm
Laugardagur 7. september 1996 - 15
n
.. ii
FERÐAPJONUSTA
Lengi verið heillaður
af Norðrinu
Stan Rasamson hefur komið fjórum sinnum til íslands vegna ferðakaupstefnunnar Vestnorden. Hann er alltaf jafn
heillaður af landinu og telur sig geta fjölgað svissneskum ferðamönnum til íslands.
Svissneskum ferðamönnum,
sem fara í gegnum okkar
ferðaskrifstofu, íjölgar ár
frá ári. í sumar voru þeir um
tvö hundruð en við áætlum að
fjölga þeim um 50% á næsta
ári, segir Stan Rasamson frá
A.P.N. Voyages í Sviss. Þetta er í
íjórða skiptið sem Stan heim-
sækir ferðakaupstefnuna Vest-
norden. Sjálfur er Stan heillað-
ur af íslandi og hefur ferðast
um landið í hvert sinn sem
hann kemur á ferðakaupstefn-
una. Síðasta ár fór hann um
Suðurland, frá Reykjavík að
Vatnajökli, en nú er hann ný-
kominn úr ferð um Vestfirði og
var ákaflega uppnuminn af feg-
urðinni. Stan er frá Mada-
gaskar og starfaði þar við
ferðaþjónustu, sem leiðsögu-
maður sérhæfður í náttúru-
skoðun.
Madagaskar og ísland eru
gjöróhk lönd en ég hef lengi
verið heillaður af Norðrinu.
Kannski vegna þess að ég finn
hérna allt annað en heima hjá
mér.
Fyrir tíu árum flutti hann til
Sviss og hóf störf við ferðaþjón-
ustu þar. í stað þess að taka á
móti ferðamönnum breyttist
starfsvið hans í að senda ferða-
menn á nýjar slóðir.
Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á náttúruskoðun og það
var mitt sérfag í ferðaþjónust-
unni í heimalandi mínu. ísland
er paradís náttúruunnenda og
einnig Grænland og Færeyjar.
Áhugamenn um fuglaskoðun
hafa á fáum stöðum eins mikið
að skoða og hér á íslandi. Hann
segir að viðskiptamenn hans
séu almennt vel upplýstir um
land og þjóð þegar þeir koma til
að kaupa ferð. Flestir hafi séð
þátt um ísland í sjónvarpinu
eða hafi lesið sér vel til. Allir
viðskiptamennirnir séu að leita
eftir náttúrfarinu fyrst og
fremst, ekki lúxúshótelum.
Hans vinna felist að mestu í því
að ganga frá bókunum og
benda fólki á ferðaleiðir.
Tollverðir óska mér
ánægjulegrar dvalar
íslensk náttúra er mjög við-
kvæm og því leiðbeinum við
fólki um landið án þess að stýra
því hvert það fer. Flestir vilja
ferðast á eigin vegum á bfla-
leigubflum. Mitt starf er að
panta hótel, benda á tjaldstæði
og sérstaklega að vara fólk við
að tjalda hvar sem er, bóka
skoðunarferðir og þar fram eft-
ir götunum. Einnig höfum við
milligöngu um hópferðir frá
Sviss, segir Stan. Aðspurður um
mat hans á ferðakaupstefnunni
segir hann að sífellt fleiri ferða-
möguleikar séu í boði hér á
landi.
Flestir þeirra sem koma frá
ferðaskrifstofu Stans eru
frönskumælandi en margir
skilja þó ensku eða þýsku. Það
er hörkuvinna að sinna ferða-
kaupstefnu, segir Stan. Hann
hefur bókað sig í viðtöl frá
morgni til kvölds og spjallar við
tugi aðila á dag. Samstarfsmað-
ur hans er hér einnig og sinnir
öðru eins af viðtölum.
Mér er alltaf sönn ánægja að
koma til íslands vegna þess að
hér hef ég mætt góðu viðmóti.
Ég hef ferðast um allan heim og
hvergi kynnst því annars staðar
en hér að tollverðir óski manni
ánægjulegrar dvalar í landinu.
Annars staðar er stimplað í
vegabréfið án þess að líta fram-
an í mann,“ segir Stan og hlær.
Góðar samgöngur vandamál
Þau Heiðdís Magnúsdóttir,
Kolbeinn Þór Bragason og
Steindór R. Haraldsson
voru á Vestnorden kaupstefn-
unni til að kynna Ferðamála-
samtök Norðurlands vestra.
Samtökin hafa innanborðs þrjú
ferðamálafélög, eitt í Vestur-
Húnavatnssýslu, eitt á Skaga-
strönd og eitt í Skagafirði.
„Þetta eru samtök ferðaþjón-
ustuaðila á svæðinu sem eru að
reyna að leggja saman krafta
sína og mynda eina heild,“ seg-
ir Kolbeinn. Margir landshlutar
hafa myndað svipuð samtök til
að vinna að sameiginlegum
hagsmunum og nefna þre-
menningarnir ferðamálasamtök
Suðurlands og Vestíjarða sem
dæmi. En hvernig skyldi ganga
að draga ferðamennina til
Norðurlands vestra?
„Við höfum átt svolítið undir
högg að sækja því við höfum
eiginlega of góðar samgöngur.
Það er nóg umferð en við þurf-
um bara að fá hana til að
stoppa. Fólk brunar í gegnum
allar þrjár sýslurnar á svona
120 km hraða, gefur sér ekki
einu sinni tíma til að pissa, og
stoppar svo á Akureyri," segir
Kolbeinn og þau Steindór og
Heiðdís taka undir. Eitt helsta
verkefni samtakanna er því að
fá fólk til að hægja á sér og
skoða sig um. „Svæðið hefur
upp á feikilega mikið að bjóða,"
bætir Steindór við og nú tekur
við upptalning á ýmiskonar
þjónustu. Góðar veiðiár,
selaskoðun, hestaferðir, Vestur-
farasafnið á Hofsósi og svo það
nýjasta, bátaferðir, sem hafa
verið mjög vinsælar í sumar.
Að komast á kortið
Algengt er að íslendingar leiti
til Norðurlandanna um sam-
vinnu í ýmsum málum og því
ekki endilega augljós kostur að
kjósa fremur að vinna með
Færeyingum og Grænlending-
um þegar kemur að ferðaþjón-
ustu. Þau Steinsdór, Kolbeinn
og Heiðdís eru þó sammála um
að Vestnorden samstarfið sé á
réttri leið því ísland, Færeyjar
og Grænland eigi ýmissa sam-
eiginlegra hagsmuna að gæta.
„Öll löndin þrjú eiga sér sam-
eiginlegt vandamál sem er að
koma sér inn á kortið," segir
Kolbeinn og telur því ákjósan-
legt að þau vinni saman á
þennan hátt þó svo að einhver
samkeppni kunni að vera um
þann litla hluta ferðamanna
sem koma til þessara landa.
AI
Steindór R. Haraldsson (t.v.), Heiðdís Magnúsdóttir og Kolbeinn Þór Bragason. Með á myndinni er Jan
Lundbladh, sænskur ferðamálafrömuður, sem var að kynna sér starfsemi samtakanna. uyna jhf