Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Síða 6
18 -Laugardagur 7. september 1996 ,®agur-®mrám
Sálarró
með
tilsögn að
handan
Andleg miðstöð
á Akureyri.
s
Furuvöllum 13 Akureyri
hefur verið opnuð and-
leg miðstöð er nefnist
Þríhyrningurinn. Skúli Viðar
Lórenzson, miðill, er ábyrgðar-
maður miðstöðvarinnar en
hann er að sögn líklega eini
innfæddi Akureyringurinn sem
starfar sem miðill. Auk hans
mun Lára Halla Snæfells, sem
búsett er á Akureyri, starfa við
miðstöðina og miðlar hvaðan-
æva af landinu munu halda
fundi.
Þríhyrningurinn verður með
bænahringi, heilun, miðlun og
ráðgjöf og þar verða í vetur um
13 miðlar með fundi. Skúli seg-
ir Þríhyrninginn stofnaðan til
að gefa fólki kost á því að rækta
sinn innri mann og til að ná
þroska á andlegu sviði. „Við
verðum með hugleiðslu- og
bænahringi þar sem fólk getur
komið og beðið og eins geta
einstaklingar komið og hugleitt
einir og sér. Hér verða miðlar
með aðstöðu en einnig vonumst
við til þess að heimsækja litla
staði út á landi sem eiga oft í
vök að verjast að fá til sín miðla
og fólk sem starfar að andleg-
um málefnum."
„Að veita því fólki
hugarró sem líður
illa“
Skúli hefur verið formaður Sál-
arrannsóknafélags Akureyrar í
7 ár en hætti störfum þar í vor.
Hann segir Þríhyrninginn ekki
klofning frá Sálarrannsóknafé-
laginu og vonast til þess að
bæði félögin dafni í friði og eigi
eftir að eiga ánægjulegt sam-
starf í framtíðinni.
„Ég hef unnið mikið að and-
legum málefnum og í Þríhyrn-
ingnum fær fólk að kynnast því
sem við erum að gera. Við
leggjxnn allt kapp á að þeir sem
koma hér inn til okkar fari betri
mannverur út aftur. Það er
markmið okkar að reyna að
veita því fólki hugarró sem líð-
ur illa og alls staðar er fólk sem
á í eríiðleikum. Við munum t.d.
bjóða upp á heilunarnámskeið,
námskeið í næmni og hlut-
skyggni og miðilsfundi.“
Hlutskyggni felst í því að fólk
kemur með hluti sem það raðar
á bakka og síðan les Skúli út
hvernig mannveru viðkomandi
hefur að geyma og einnig sögu
hlutanna. „Þannig má segja að
ég fari inn í innstu sálarlýti
manneskjunnar því þar eru oft
Skúli Viðar Lórenzson og Lára Halla Snæfells i bænaherbergi andiegu miðstöðvarinnar, sem nýlega hefur verið opnuð á Akureyri.
hlutir sem geyma tilíinninga-
ástand persónunnar. Það verða
margir hissa á hvað hægt er að
lesa úr þessu.“
Skúli segir miðilsfundina vin-
sæla enda sé fólk forvitið bæði
um sjálft sig og aðra. „Fólk leit-
ar inn á þessar brautir til að fá
skilaboð frá sínum nánustu og
einnig helst uppgangur í miðils-
fundum í hendur við erfiðleik-
ana í þjóðfélaginu. Þegar við
eigum eríltt og leitum eftir sál-
aruppbyggingu þá sækjum við á
þær slóðir sem eru kannski
ekki fyrir augum okkar á
hverjum degi. Það er sálarró
sem fólkið er að leita eftir með
tilsögninni að handan."
„Ég tók þá ákvörðun
að þetta myndi ég
aldrei gera“
Skúli segist snemma hafa fund-
ið fyrir andlegum hæílleikum
en sem krakki og unglingur hafi
hann viljað halda þeim frá sér.
„Ég tók þá ákvörðun að þetta
myndi ég aldrei gera. Við segj-
um oft setningar sem við sjáum
eftir þegar við verðum fullorðin
og ég lét undan þegar stjórn-
endur mínir og velunnarar fóru
að ýta á mig. Eins var ég hepp-
inn því í kringum mig var fólk
sem var tilbúið að aðstoða mig
við að hjálpa mér að rækta þá
eiginleika sem innra með mér
voru. Það er dýrmætt fyrir
hvern og einn sem hefur þessa
hæfileika að hafa góðar mann-
eskjur með sér sem gefa manni
þær frístundir sem þær hafa til
þess að standa á bak við þjálfun
manns á miðilsskap. Þjálfunin
er ströng, við lærum alltaf eitt-
hvað nýtt á hverjum degi og við
þurfum alltaf að vera að taka á
málum sem við skiljum ekki
hvers vegna koma upp.“
Skúli segir Elínu Sigtryggs-
dóttur hafa hjálpað sér mikið
fyrstu árin sem hann var við
miðilsskap. „Það er mikilvægt
að hafa góðan stjórnanda sem
vakir yfir því sem er að koma í
gegn á hverjum tíma. Þegar EI-
ín féll frá fannst mér ég vera
munaðarlaus í þessum málum.
Þjálfunin tekur langan tíma og
þegar við fáum leiðbeinendur
okkar í gegn tekur langan tíma
að kynnast þeim og vita hvað
þeir ætla sér.“
Leiðbeinendur Skúla að
handan eru þrír Indíánar,
munkur, nunna, langamma
hans og fræðari sem heitir
Kristján og er frá Skagaströnd.
„John, einn Indíáninn, leiðir
mig inn í það sem ég er að gera
dags daglega en langamma
mín, Aldís, passar upp á strák-
inn ef svo má að orði komast og
að ég sé í því formi sem ég verð
að vera. Ég treysti leiðbeinend-
um mínum og er þeim þakklát-
ur fyrir að vernda mig. Ég er
líka þakklátur fyrir að fá tæki-
færi til að vinna við þau störf
sem ég vinn í dag. Við gætum
ekki gert þessa hluti ef við hefð-
um ekki bænina okkar og trúna
vegna þess að í kringum ljósið
sem er í kringum okkur er fyrst
og fremst ljós Krists sem við
trúum á og treystum." mgh
FótboVtagolí
Háskólinn
á Akureyri
Laus er til umsóknar staða deildarfull-
trúa heilbrigðisdeildar Háskólans á
Akureyri.
Starfið er í mótun og krefst tölvufærni, ná-
kvæmni og sjálfstæðis. Stúdentspróf eða sam-
bærileg menntun áskilin. Háskólamenntun æski-
leg. Laun eru samkvæmt kjarasamningum opin-
berra starfsmanna.
Umsóknarfrestur er til 27. september nk. og um-
sóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og
fyrri störf ásamt meðmælum.
Upplýsingar um stöðuna veitir forstöðumaður
heilbrigðisdeildar, Sigríður Halldórsdóttir, í vs.
463 0900 og 463 0902 og hs. 462 7676.
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI.
HÁSKÓLINIM
Á AKUHEYHI