Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Síða 14
26 - Laugardagur 7. september 1996 JDa0Ur-®tlttttttl
iDcigur-ÍEumthtn
aí)
ittei
eimilis-
hamið
Graflax
1 kg lax
3 msk. salt
2 msk. sykur
2 tsk. nýmalaður pipar
3 msk. þurrkað dill
Nýtt dill
Laxinn er flakaður, pillið öll
bein úr honum, gott er að nota
pinsettu til þess. Togið beinin út
í þeirri átt sem þau liggja. Þerr-
ið laxflakið og leggið það á fat.
Kryddinu er blandað saman og
því stráð yfir laxinn ásamt nýju
dillinu. Þrýstið kryddinu ofan í
fiskinn. Álpappír settur yfir fat-
ið og það sett inn í ísskáp í tvo
sólarhringa. Þegar borða á lax-
inn, er kryddið tekið af flakinu
og það skorið á ská í þunnar
sneiðar. Borið fram með ristuðu
brauði og góðri sinnepssósu.
Frönsk eggjakaka
(,,omeletta“)
5 egg
5-6 msk. rjómi eða vatn
3 msk. smjör
Örlítill pipar
Eggin hrærð saman með gaffli,
án þess að þeyta þau. Bætið
vökvanum í. Hitið pönnu með
smjörinu, látið það ekki brún-
ast. Deigið (eggjahræran) sett á
pönnuna; stingið af og til í, svo
það komi nýtt niður á pönnuna
og allt stífni. Þegar eggjakakan
‘/Vlatarkrókur
Sjávarréttir, svínalundir
og súkkulaðibaka Jóns
Símtöl frá vinum og kunningjum dundu yfir mig eftir að
Jóhann skoraði á mig í síðustu viku. Þau vildu vita hvort
ég kynni virkilega að elda eða hvort þetta vœri grín, segir
Jón M. Ragnarsson, verslunarstjóri tískuverslunarinnar
Joe’s á Akureyri. Ég er ekki þekktur af matarsnilld en hef
sérlegan ráðgjafa í þeim málurn sem er konan mín,
Þórunn Jónsdóttir. Ég er góður aðstoðarmaður í uppvask-
inu. Ég hef hins vegar ákaflega gaman af því að borða
góðan mat og mæli með þessum réttum, sérstaklega
pecanhnetubökunni sem er algjört sœlgœtl
Þrátt fyrir grínið hans Jóhanns tók Jón hlutverk sitt
alvarlega og mœtti á ritstjórn blaðsins með uppskriftir
sem koma vatninu fram í munninn. Jón skorar á
Aðalheiði Eiríksdóttur, fjármálastjóra Slippstöðvarinnar,
til að koma með sínar bestu uppskriftir í nœstu viku.
Sjávarréttaforréttur með
camenbertosti
Fyrir 6-8
300 g rœkjur
1 poki hörpuskelfiskur
1 dós (8oz) ananasbitar
1 vel þroskaður
camenbertostur
Sósa:
/ lítil dós majones
ananassafi
nokkrir dropar sítrónusafi
Skiptið rækjunum, hörpuskel-
inni, ananasbitunum og ostbit-
um í 6-8 forréttadiska. Blandið
varlega saman og geymið á
köldum stað fram að fram-
reiðslu. Hrærið majonesið út
með ananassafanum og sítr-
ónusafanum þar til sósan er á
þykkt við súrmjólk. Hellið sós-
unni yfir réttinn og skreytið
með gúrku og melónu. Berið
fram með ristuðu brauði.
Fylltar svínalundir
Fyrir 4
2 svínalundir 600 g
100 g gráðostur
1 tsk. salt
pipar
2 msk. smjör
100 g heilir sveppir,
ferskir eða úr dós
1/-2 dl rjómi
1-2 msk. hveiti
1 dós (450 g) heilir tómatar
kínversk soja
steinselja
Skerið djúpa rauf í lundirnar,
stappið gráðostinn og setjið í
raufarnar. Vefjið lundirnar með
sláturgarni, saltið og piprið.
Bræðið smjörið. Brúnið lund-
irnar með á öllum hliðum. Setj-
ið sveppina á pönnuna. Lokið
henni og steikið áfram í u.þ.b.
15 mín. við vægan hita. Hellið
rjómanum yfir og sjóðið í 5
mínútur. Takið kjötið upp,
þykkið sósuna með hveitinu
hrærðu út í safa af tómötunum.
Látið sjóða í nokkrar mínútur.
Bragðbætið með sojasósu. Látið
tómatana á pönnuna. Skerið
kjötið 1-2 sm þykkar sneiðar.
Raðið sneiðunum á pönnuna,
hellið sósunni út á og stráið
steinselju yfir. Berið fram á
pönnunni með soðnum hrís-
grjónum, salati og bakaðri kart-
öflu.
Súkkulaði-
pecanhnetubaka
Botn:
100 g smjör
180 g hveiti
1 eggjarauða
/ tsk. salt
3 tsk. vatn
Hnoðið deigið, fletjið út og setj-
ið í botn og upp með börmum á
eldföstu móti.
Fylling:
190 g sykur
220 g síróp
3 stk. egg
50 g smjör
125 g Síríus suðusúkkulaði
150 g pecan hnetur
(fást í Heilsuhorninu)
Þeytið vel sykur og smjör og
bætið sírópi í. Setjið eitt og eitt
egg í einu í hræruna. Brytjið
hneturnar og súkkulaðið smátt
og setjið saman við. Hellið yfir
botninn í forminu og bakið á
175°C í 40 mínútur. Gott er að
láta bökuna aðeins standa áður
en hún er borin fram. Berið
fram með ís eða rjóma. (Lokið
augunum fyrir hitaein-
ingaQöIdanum, maður má nú
stundum)
er orðin gullbrún á botninum
og stífnuð að ofan, er hún tilbú-
in.. Baksturinn tekur ca. 5-6
mín. Kökunni er svo rennt ofan
á disk, sett á hana fylling og
brotin saman til hálfs. Fyllingin
getur verið margvísleg, t.d.
skinka í strimlum, sveppir eða
tómatar. Efnið til hennar hefur
verið látið krauma aðeins í
smjöri, svo það sé heitt.
Fljótlegt og gott
Ristið stóra franskbrauðsneið.
Smyrjið sinnepi yfir, látið þar
næst skinkusneið á og svo góða,
þykka ostsneið þar yfir. Sett á
grill eða í vel heitan ofn í ca. 10
mín. eða þar til osturinn er
bráðnaður en ekki brúnaður.
Sunnudagsdesertinn
1 dós ananas í sneiðum
1 dós ferskjur
2/ dl þeyttur rjómi
Raðið ananassneiðunum á flatt
fat, látið ferskju með kúptu
hliðina upp ofan á ananassneið-
ina. Hellið smávegis safa yfir og
stráið smátt söxuðum möndlum
eða hnetum yfir. Borið fram
með þeyttum rjóma.
Gulrótarmarmelaði
1 kg gulrœtur
1 kg strásykur
Safi og rasp utan af
3 sítrónum
Hreinsið gulræturnar og rífið
þær niður. Sjóðið í ca. 15 mín.
með sykrinum, sítrónusafanum
og röspuðu sítrónuhýðinu. Þetta
er svo sett í hreinar hvítar gler-
krukkur og lok sett strax á.
Aprikósumarmelaði
250 gr aprikósur
2 appelsínur
1 sítróna
Ca. 250 gr sykur
Aprikósurnar skolaðar, settar í
vatn tU næsta dags, hakkaðar
með appelsínunum og sítrón-
unni. Þær eru hafðar með hýð-
inu, skornar í bita og kjarnar
teknir úr. Þetta er svo hrært vel
saman með sykrinum og er til-
búið til notkunar.
Ávaxtabolla
Z vatnsmelóna
Z hunangsmelóna
1 sítróna
1 flaska hálfsœtt hvítvín
200 gr jarðarber
l/l eplamjöður
Látið melónurnar vera í kæli-
skáp yfir nótt. Skrælið þær og
Þrír litlir guttar voru að
grobba af feðrum sínum.
„Pabbi minn á svo flott-
an bíl að hann er enga
stund á leiðinni heim,“
sagði sá fyrsti.
„Pabbi minn er flugmað-
ur og hann er alltaf fljótur
á leiðinni heim,“ var fram-
lag þess næsta.
En sá þriðji sagði borg-
inmannlegur: „Pabbi minn
vinnur á bæjarskrifstofunni
og á að vinna til kl. 4 á
daginn, en hann er alltaf
kominn heim kl. 3!“
Læðan og fressið hittust
fyrir utan fjölbýlishúsið.
Fressið spurði læðuna:
„Eigum við að trúlofa
okkur í rólegheitum eða
eigum við að vekja alla
blokkina?"
skerið í teninga, hreinsið burt
kjarna. Melónubitarnir settir í
stóra skál, sítrónusafi kreistur
yfir. Hvítvíninu hellt yfir og
þetta látið bíða í kæliskáp ca. 1
klst. Jarðarberin skorin í sneið-
ar og þeim bætt út í ásamt ölinu
og ísmolum rétt áður en þetta
er borið fram. Gott og svalandi í
sumarhitanum úti í garðinum.
Við brosum