Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Síða 19

Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Síða 19
IDctgur-ClImTtmt Laugardagur 7. september 1996 - 31 Satanistar eða saklausir rokkarar? Umsjónarmaður Magnús Geir Guðmundsson á uppleið Kenny Wayne Shepherd Ungherji Allt frá því blúsgítarhetjan mikla Stevie Ray Vaug- han fórst fyrir nokkrum árum í hörmulegu þyrluslysi eftir tónleika með Eric Clapton, hafa menn leitað með logandi ljósi ef svo má segja eftir arf- taka hans. Hafa margir reynt að komast í þá aðstöðu, en ekki náð þótt þeir vissulega margir hafi haft ýmislegt til brunns að bera. Á þessu ári hefur hins vegar komið fram á sjónarsvið- ið ungur gítarleikari, sem ekki aðeins hefur sótt í smiðju til meistarans og haft af honum kynni frá barnsaldri, heldur þykir meira en líklegur, hvað svo sem úr verður, til að öðlast svipaðan sess og Vaughan. Heitir drengurinn sem hér á í hlut Kenny Wayne Sheperd, 18 ára gamall unglingur frá borg- inni Shreveport í Louisiana, sem með sinni fyrstu plötu, Ledbetter Heights, er nú nefnd- ur sem arftaki Stevie Rays Vaughan. Eins og uppskrift af Hollywoodhandriti í stuttu máli má segja að saga Kenny Waynes sé eins og ævin- týri, eða öllu heldur eins og sæmileg Hollywoodsúpa um blús. Sex-sjö ára strákur fer á tónleika hjá hetjunni (Stevie Ray), fær að sitja upp á hátal- arakassa baksviðs og heillast svo mjög að hann ákveður sjálf- ur að feta sömu braut. Nokkr- Gæti orðið hinn „nýi Stevie Ray Vaughan“ um árum síðar deyr „gamla“ hetjan hins vegar eftir að hafa unnið sig upp úr viðjum víns og eiturlyíja, en ungi drengurinn kemur íljótlega í hans stað og er Iofaður og prísaður sem sannur eftirmaður. Þetta hljóm- ar óneilanlega „trúlega", en er samt í hnotskurn sannleikurinn um Kenny Wayne Shepherd. Faðirinn tónleikahaldari Faðir Kennys hefur á sínum starfsferli lengst af unnið í tón- listargeiranum, sem útvarps- maður, umboðsmaður tónlistar- manna og unnið að framkvæmd tónleika í Shreveport. Það var því oft sem Kenny var með föð- ur sínum á tónleikastöðum og kynntist þannig ungur mörgum af helstu hetjum t.d. blússins og rokksins. Þeirra á meðal voru James Brown, ZZ Top og svo auðvitað Stevie Ray Vaughan. Nú er heimaborg þeirra feðga, Shreveport ekki stór á banda- rískan mælikvarða, íbúar um 150.000, en vegna þess hversu vel hún liggur, t.a.m. aðeins um 25-30 km. frá Texas og einnig í námunda við New Orleans og Memphis, voru stjörnurnar ekki langt undan og komu tíðum til borgarinnar. Það var því við eitt slíkt tækifæri sem Kenny Wayne hitti Stevie Ray, þá um sjö ára gamall. Leyfði gítargoðið hon- um að fylgjast með tónleikun- um baksviðs og var eftir það ekki aftur snúið. Alfarið sjálfmenntaður Kenny Wayne hefur starfrækt hljómsveitina sem spilar með honum á Ledbetter Heights frá því að hann var aðeins 14 ára gamall. Upphafið að henni var þegar Kenny Wayne hitti hinn gítarleikara sveitarinnar, Joe, sem síðan hefur verið hans mesti máti og samið með hon- um flest lögin á Ledbetter Heiglits. Á þessum um Qórum árum hefur hljómsveitin spilað víða um Louisiana, Texas og víðar og vakið sífellt meiri at- hygli. Öfugt við marga af hans kynslóð og reyndar eldri gítar- leikara, er Kenny Wayne alveg laus við að vera undir áhrifum frá rokki eða þungarokki ein- hverskonar og það sem meira er, hann hefur aldrei notið til- sagnar á gítarinn. Þrotlausar æfingar og hlustun hefur fyrst og fremst mótað stil hans, en auk Stevie Rays, hafa menn á borð við B.B. King, Albert King og Albert Colhns, haft mikil áhrif á hann. Vakti þessi sér- staki ungi maður áhuga margra plötuútgefenda, en það varð loks Giantútgáfan sem hreppti Kenny Wayne og félaga. Eftir útkomu Ledbetter Heights hef- ur svo tónlistarpressan, sér- staklega í Bandaríkjunum, keppst við að heija gítarleikar- ann unga upp til skýjanna og ganga margir svo langt, sem fyrr sagði, að nefna hann sem hinn nýja Stevie Ray. Skiptir þá ekki máli, að hann syngur ekki eins og meistarinn, en hver veit nema að það komi síðar með aldrinum og meiri reynslu („okkar Stevie Ray“, Guðmund- ur Pétursson, er t.d. rétt byrj- aður að syngja að einhverju marki og gerir það með glans). Kenny Wayne Shepherd. Á góðri leið með að verða gítarjöfur tii jafns við átrúnaðargoðið Stevie Ray Vaughan. Eða svo vilja margir meina. Fjandinn laus ungarokks/dauðarokks- sveitin Slayer hefur notið mikilla vinsælda á síðustu árum og er ein af þeim fáu úr þeirri deildinni, sem nokkurn veginn hefur náð að halda sínu. Á plötum eins og Ilell Awaits og Reign In Blodd, var Slayer með nokkra Satansímynd á sér, sem síðar kom svo í ljós, eins og reyndar hjá flestum öðrum sem líka gefa sig út fyrir shkt, að lítil alvara var á bak við. Þessi ímynd, sem auðvitað var til þess gerð að selja hljómsveitina á sínum tíma, virðist nú hins vegar mörgum árum seinna koma harkalega í bakið á þeim Tom Araya og félögum, eftir því sem nýlegar fregnir herma. Hefur hljómsveitinni, einstök- um meðlimum og útgáfufyrir- tæki hennar, American Record- ings, nú verið stefnt fyrir dóm, sem óbeinir áhrifavaldar á morð á 15 ára unglingsstúlku í Kaliforníu á síðasta ári. Var henni nauðgað, hún pyntuð og síðan stungin til bana. Eru það foreldrar fórnarlambsins sem stefna Slayer. Ástæðan fyrir stefnunni er svo byggð á því að hinir þrír meintu morðingjar, unglingspiltar á aldrinum 15 til 17 ára, voru sjálfir í dauða- rokkssveit, sem á að hafa verið undir sterkum áhrifum frá Slayer. Það telst hins vegar ekki líklegt, frekar en áður þegar ýmsum rokktónlistarmönnum hefur verið borið á brýn að vera „hinn stóri orsakavaldur", að Slayer eða útgáfufyrirtæki þeirra fái dóm. Spilar þar víst ekki síst lögmálið um tjáningar- frelsið stóra rullu, en það er mjög í hávegum haft hjá Kön- um, auk þess sem eflaust verð- ur erfitt að kenna utanaðkom- andi við bæði orsök og afleið- ingu. ■m v v nrT’ twm’if mrfif hw wr'rfl’'i’,nr P O P P H Wr i m Wv v ■r» V*V ’ffSá • Heidi Berry, dóttir rokk- kóngsins einstaka, Chuck Berry, hefur að mestu getið sér frægð fyrir bíómyndaleik. Hún hefur hins vegar líka fengið tónlistarhæfileika í arf frá pabbanum og syngur víst bara ljómandi vel. Er nú ný- komin á markað plata með stúlkunni, sem nefnist ein- faldlega Miracle, Kraftaverk. Ekki er gott að segja hvað þetta nafn á að merkja, en víst er að Heidi er fín söng- kona og þarf ekkert krafta- verk sér til hjálpar í þeim efnum. • Cardigans, Svíþjóðarsveitin sérstaka, sem gerðist „fs- landsvinur" snemma á þessu ári og heimsótti bæði Reykja- vík og Akureyri, er nú rétt í þann mund að senda frá sér sína aðra plötu á alþjóðlegan markað. Kallast platan því skemmtilega nafni First Band On The Moon og má örugg- lega slá því föstu að margir aðdáendur liljómsveitarinnar hér bíða spenntir eftir gripn- um. Meistari Megas á tvær endurút- gefnar plötur nú í september. • Skífan hefur síðustu tvö ár- in eða svo staðið að því góða verki að endurútgefa plötur Meistara Megasar, Magnúsar Þórs Jónssonar. Nýjasta út- gáfan stendur nú fyrir dyrum í þessum mánuði og er þar á ferðinni ein af skemmtilegri plötum Megasar og um leið ein af þeim umdeildari (og er þá ef til vill mikið sagt). Þetta er barnaplatan sígilda, Nú er ég klæddur og kominn á ról, sem kappinn gerði með að- stoð Guðnýjar Guðmunds- dóttur konsertmeistara árið 1978. Fagnaðarefni fyrir marga, en miður fyrir suma aðra. • í kjölfar Nú er ég klæddur og kominn á ról mun svo fylgja, í góðri trú, sem Megas sendi frá sér í félagi við Sig- trygg Baldursson Sykurmola með meiru, Þorstein Magnús- son og fleiri árið 1988. Var þarna á ferðinni ef rétt er munað, tónlist sem Megas samdi fyrir leikhús.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.