Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Blaðsíða 4
16 - Laugardagur 21. september 1996 jDagur-®úmrat MENNING O G LISTIR Leir í tilefni af 15 ára afmæli Leir- listarfélagsins hafa félagsmenn sett upp sýningu í Hafnarborg í Hafnarfirði undir yfirskriftinni Leir í lok aldar. Sýningin, sem verður opnað í dag Mukkan 14:00, sam- anstendur af verkum 26 listamanna og eru öll verMn ný. í fréttatilkynningu félagsins kemur fram að áhugi almenn- ings á leirlist fari vaxandi og að sama skapi séu þeim lista- mönnum að fjölga sem kjósi að leggja leirlistina fyrir sig. „í erli nútímans kunna æ fleiri að meta leirinn, þetta náttúruefni, Sýnishorn af verkum félagsmanna í Leirlistarfélaginu. sem ummótast í skapandi höndum leirlistarmannsins," segir í tilkynningunni. Leirlistarfélagið var stofnað árið 1981 og voru stofnfélagar 11 en í dag eru félagar 39. Ing- unn Erna Stefánsdóttir, formað- ur félagsins, segir að í upphafi hafi markmiðið með félaginu verið að gæta hagsmuna félags- manna og að fylgjast með þró- un leirlistarinnar utan land- steinanna. „Það voru líka uppi hugmyndir um að gera hagstæð innkaup saman og jafnvel að hafa sameiginleg verkstæði en það er þó ekM fyrr en þessi síð- ustu ár að fólk hefur farið að rugla saman reitum sínum. Nú er orðið töluvert algengt að tveir listamenn, og allt upp í ljóra eða fimm, séu saman með verkstæði." Af 39 félagsmönnum eru að- eins þrír karlmenn. Ingunn seg- ir þetta óvenjulegt þar sem er- lendis sé algengara að karl- menn starfi í leirlist. Þar gangi leirlistin mann fram af manni og tengist ákveðnum fjölskyld- um en hérlendis séu engar shk- ar hefðir enda tiltölulega stutt síðan listamenn fóru að gefa leirnum gaum. Sýningin í Hafn- arborg verður opin 12:00-18:00 daglega nema þriðjudaga til 15. október. AI Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni. aldar lok í Bók fyrir allar konur Fróðleikur um kvenlíkamann, konuna sem kynveru, snyrtivörur, sjúkdóma, sálarlíf kvenna, nauðsynleg næringar- efni og öldrun kvenna. Þetta og ýmislegt fleira allt í sömu bókinni. BóMn heitir Kvennafrœð- arinn, undirtitill er Leið- arvísir um lífið, og ef marka má orð höfundarins á hún erindi til allra kvenna frá gelgjuskeiði til grafar. Það er Vetrarstarf Kórs Akur eyr arkirkj u bókaútgáfan Forlagið menning sem gef- ur hana út. Áður hafa komið út hér- lendis bækur með sama nafni eða svip- uðu en og Mál og skýrt skal teMð fram að hér er ekM um endurútgáfu á þeim bókum að ræða heldur glænýja bók skrifaða af breska lækninum dr. Miriam Stoppard. Dagur-Tíminn sló á þráðinn til þýðandans, Guðrúnar Svansdóttur, til að for- vitnast um hverskonar bók hér væri ferðinni og hvort hún væri á einhvern hátt ólík fyrri „Kvennafræðurum". „Þessi bók er einskonar upp- flettibók fyrir konur. Hinar hafa reyndar verið það líka en þessi er nýrri. Þetta eru stuttar greinar um ýmis efni sem sMpta máli. T.d. er fjallað um líffæri og starfsemi líkamans, tíðarhvörf, meðgöngu og fæð- ingu en þar að auM er komið inn á efni sem konur eru farnar að hugsa meira um. T.d. er kafli um snyrtingu og snyrtivörur, sem er oft ekM í svipuðum bók- um, og eins er íjallað um ilmolíur, nálarstungumeðferð og ýmislegt sem er ekM endi- lega viðurkennt allsstaðar," segir Guðrún. Bókina telur Guðrún vera fyrir konur á öllum aldri en nefnir sérstaMega að hún geti verið gagnleg ungum stúlkum og konum sem skorti sjálfs- traust. „Þetta hjálpar þeim aðeins að skoða sjálfa sig og öðlast sjálfsöryggi. Þarna sjá þær að það er allt í lagi þó við séum ekki allar eins. í bókinni eru myndir af allskon- ar konum: feitum, mjóum, brjóstalausum, með allt of stór- an rass og svo framvegis og þetta held ég að sé hverjum hollt að sjá.“ AI Kór Akureyrarkirkju er nú að heQa vetrarstarf sitt. Aðalverkefni kórsins í vetur eru tvö. Á jólasöngvum í Mun flytja Gloria eftir Francis Poulenc á Kirkjulistaviku ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands. desember ílytur kórinn Söngva- sveigur (Ceremony of Carols) eftir Benjamín Britten og á Kirkjulistaviku í apríl ’97 ílytur kórinn Gloria eftir Francis Pou- lenc ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands. Kórinn syngur við reglulegt helgihald í Akureyrarkirkju og er honum sMpt í ijóra messu- hópa sem skiptast á að syngja við messur. Einu sinni í mánuði syngur kórinn þó allur við messu, sem og á hátíðum og við sérstök tækifæri. Inntökupróf fyrir nýja félaga verða í kapellu Akureyrarkirkju mánudaginn 23. september og þriðjudaginn 24. september á milli klukkan 17:00 og 19:00. Hægt er að fá allar nánar upplýsingar hjá Birni Steinari Sólbergssyni, stjórnanda kórs- ins, í síma 462 7700 eða 462 5642

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.