Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Síða 5
jOagur-ÍEtmmit
Laugardagur 21. September 1996 17
MENNING O G LISTIR
Organistar eru deyjandi
stétt á íslandi
Hann byrjaði að læra á
píanó 8 ára gamall og
hefur því lagt stund á
tónlist í 20 ár. Nú er hann nem-
andi við tónlistarháskólann í
Dusseldorf í kantorsnámi, sem
er organista- og kórstjórnanda-
nám. Kári Pormar er eini ís-
lendingurinn sem leggur stund
á framhaldsnám í orgelleik í
dag.
Kári K. Þormar var staddur í
stuttri heimsókn á íslandi á
dögunum og hélt tónleika í Sel-
fosskirkju. „Það er gott orgel
hér,“ segir hann en maðurinn
ætti að hafa samanburð því
Kári hefur á undanförnum ár-
um spilað vítt og breitt um Evr-
ópu á orgel af öllum stærðum
og gerðum. „Það er hluti af
náminu,“ útskýrir hann, „en
draumurinn er að spila í Notre
Dame í París".
Kári byrjaði í tónlistarnámi í
Tónlistarskólanum í Hafnarfirði
þegar hann var átta ára gamall
og lærði þá á píanó. 1993 lauk
hann píanókennaraprófi en
kennari hans síðustu árin var
Jónas Ingimundarson. Sama ár
lauk Kári orgelprófi hjá Herði
Áskelssyni og hafði þá kynnst
hljóðfærinu sem áttí eftir að
vera mikill áhrifavaldur í lífi
hans.
„Helgi Bragason, organisti í
Kári K. Þormar er
eini íslendingurinn
sem er í framhald-
sorganistanámi í
dag.
Hafnarijarðarkirkju, hafði mikil
áhrif á hvað óg gerði eftir kenn-
araprófið. Ég söng í kirkjukórn-
um hjá honum og smátt og
smátt heillaðist ég af orgelinu.
Hörður Áskelsson var mikill ör-
lagavaldur líka og ég fékk að
spila reglulega á nýja orgelið í
Hallgrímskirkju, það var mikill
heiður.
Svo var þetta líka spurningin
um framtíðina. Mér fannst ein-
faldlega lítil framtíð í því að
kenna á píanó og fáir aðrir at-
vinnumöguleikar voru í boði.
Organistastéttin er deyjandi
stétt á íslandi og þá er ég að
tala um menntaða organista.
Ég er eini íslendingurinn í
Kári K. Þormar.
framhaldsnámi í dag í þessum
fræðum.“ Kantorsnámið er fjöl-
breytt og tekur til allra þátta í
kirkjutónlist: „Við lærum hljóm-
sveitarstjórn, kórstjórn, pi'anó-
leik, söng að ógleymdum orgel-
leik. Þetta er ÍJölbreytt og krefj-
andi nám.“
í nóvember er ætlunin að
halda mikla menningarhátíð í
Essen í Þýskalandi þar sem
norræn menning verður kynnt.
Kári ætlar að kynna íslensk
tónskáld fyrir gestum þar og
spilar tónverk eftir Jón Nordal,
Pál ísólfsson og Þorkel Sigur-
björnsson svo einhverjir séu
nefndir. íslensk kvikmyndagerð
verður einnig kynnt á hátíðinni.
Kári er ættaður úr Hafnar-
firði. Unnusta hans, Sveinbjörg
Halldórsdóttir frá Neskaupstað,
fór með honum til Þýskalands
og leggur hún stund á matvæla-
fræði í háskólanum í Bonn. Kári
á tvö ár eftir í námi sínu en
hvað tekur þá við? „Ég er
ákveðinn í því að koma heim að
loknu námi og reyna fyrir mér
hér. Kirkjutónlist á íslandi er í
háum gæðaflokki. Kirkjukórar
á íslandi eru mun betri en
stærri og öflugri kórar í Þýska-
landi. Ætli það sé ekki vegna
þess að það er eina hljóðfæri
okkar í gegnum aldirnar.“ segir
Kári K. Þormar.
-hþ.
Mynd: -hþ
Síðustu haust-
tónleikarnir í
Selfosskirkju
Undanfarin ár hafa verið
haldnir vikulegir haust-
tónleikar í Selfosskirkju
þar sem ýmsir listamenn hafa
komið fram. í ár hafa verið
haldnir fjórir tónleikar og hefur
áhersla verið lögð á orgelleik.
Glúmur Gylfason hélt fyrstu
tónleikana, þá Guðjón Halldór
Óskarsson, síðan kom Mark A.
Andersson og þar á eftir Kári
K. Þormar. Síðustu tónleikarnir
verða haldnir þriðjudaginn 24.
september kl. 20.30 og mun
Tríó Reykjavíkur flytja verk eft-
ir Beethoven.
Glúmur Gylfason, organisti
Selfosskirkju, er einn forsp-
rakki tónleikanna.
Hann segir að aðsókn sé góð
að þeim en miðað er við að þeir
taki um 40 mínútur í flutningi
og er aðgangur ókeypis. Liðs-
menn Tríós Reykjavíkur eru
Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar
Kvaran og Halldór Halldórsson.
-hþ.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir boðnir
Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum
stjórnvöldum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir
handa íslendingum til náms og rannsóknastarfa í
Þýskalandi á námsárinu 1997-98:
a) Allt að fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur
skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
b) Allt að þrír styrkir til að sækja þýskunámskeið sum-
arið 1997. Umsækjendur skulu vera komnir nokkuð
áleiðis í háskólanámi og leggja stund á nám í öðr-
um greinum en þýsku. Einnig þurfa þeir að hafa
góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu.
c) Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og
rannsóknastarfa um allt að sex mánaða skeið.
Umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og
meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. nóvember nk.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
20. september.
HVERS VEGNA NOTAR ÞÚ
RAUTT EÐAL
GINSENG?
Gunnar Eyjólfsson, leikari og
skátahöfðingi:
Það eflir einbeitinguna.
Hildur Kristinsdóttir, klínikdama:
Til að komast í andlegt jafnvægi
og auka starfsþrek.
Rautt Eðal Ginseng
skerpir athygli
og eykur þol.
Sigurður Sveinsson
handboltamaður:
Það er nauðsynlegt fyrir svona
gamla menn eins og mig til að
geta haldið endalaust áfram í
handboltanum.
Ásta Erlingsdóttir, grasalæknir:
Ég finn að það gerir mér gott.
Alda Norðfjörð, eróbikkkennari:
Það stóreykur úthald, þrek og þol.
Dýrleif Ármann, kjólameistari:
Það gefur mér kraft og lífsgleði
við saumaskapinn.