Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Page 7

Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Page 7
Jlagur-'ðlœmm Tryggvi Gíslason: „Við sem hér störfum trúum því að það sé hollt og gott að sameina gamalt og nýtt. Ef við ætlum að líta til framtíðar verðum við að þekkja fortíðina. Skólinn er því fastheldinn á forna siði og hefðir en hann er líka mjög framsækinn ■<( Myndir: GS Vilj um sameina gamalt og nýtt Nýja skólahúsið hefur hlotið nafnið Hólar, enda rekur Menntaskólinn sögu sína til hins forna Hólaskóla. ^OO ■" tQ **►**>*>»**> ^ , 9 V Laugardagur 21. september 1996 -19 Menntaskólinn á Akureyri stendur á tímamótum, Afar þröngur húsakostur hefur háð skólastarfi svo árum skiptir en nú hyllir loks undir bjart- ari tíma í þeim efnum, þar sem nýtt skólahús verður tekið í notkun í haust. Með tilkomu nýja hússins tvöfald- ast það rými sem skólinn hefur til um- ráða úr 2500fermetr- um í liðlega 5000fer- metra. Það er því létt hljóðið í skólameist- ara, Tryggva Gísla- syni, um þessar mund- ir og hann horfir með bjartsýni til framtíðar skólans. Undanfarin 25 ár höfum við ekki haft nema helm- inginn af því húsnæði sem menntaskóla með 600 nemendur er ætlað að hafa en nú fáum við loksins það hús- rými sem okkur er ætlað,“ segir Tryggvi. Nýja húsið, sem hlotið hefur nafnið Hólar, verður formlega afhent á morgun þeg- ar Menntaskólinn verður settur í 117. sinn. Skólasetningin verð- ur á sal nýja hússins og von á mörgum góðum gestum s.s. ráðherrum, embættismönnum, bæjarstjórn Akureyrar, fulltrú- um í Héraðsnefnd Eyjaíjarðar, skólameisturum og fleirum. Þó menntskælingar hafi lengi beðið eftir nýju húsi eru ekki nema tvö ár síðan byrjað var að byggja nýja húsið og því óhætt að segja að byggingartíminn sé stuttur. Upphaflega var áætlað að ljúka verkinu á næsta ári en Héraðsnefnd Eyjafjarðar, sem er annar byggingaraðilinn á móti Ríkinu, samþykkti að flýta verkinu um eitt ár og tók á sig aukakostnað því samfara. Sam- tals segir Tryggvi að gert sé ráð fyrir að húsið fullbúið, bæði með búnaði og lóð í kring, kosti um 300 milljónir. Framsækinn skóli Menntaskólinn á Akureyri er þekktur fyrir að vera fastheld- inn á gamlar venjur og siði en Tryggvi leggur áherslu á að þó skólinn haldi í gamlar hefðir þýði það ekki að hann fylgist ekki með nýja tímanum. Þvert á móti sé Menntaskólinn fram- sækinn og með auknu húsrými opnist ýmsir nýir möguleikar. „Nú er unnið að þróunaráætlun fyrir skólann sem felur í sér að gera góðan skóla betri. Nýtt hús gefur bæði tækifæri til að breyta kennsluháttum og e.t.v. að taka upp nýjar kennslugreinar. í þessu húsi verður einnig bóka- safn með lestrar- og vinnuað- stöðu fyrir 100 nemendur," seg- ir Tryggvi og nefnir að á bóka- safninu gefist nemendum t.d. tækifæri til að vinna í margmiðl- un en eitt herbergi á safninu verði búið margmiðlunartölv- um. „Menntaskólinn á Akureyri hefur lengi viljað sameina gam- alt og nýtt. Þetta er ekki bara eitthvað sem sagt er á hátíðar- stundum heldur býr alvara að baki þessum orðum. Við sem hér störfum trúum því að það sé hollt og gott að sameina gamalt og nýtt. Ef við ætlum að líta til framtíðar verðum við að þekkja fortíðina. Skólinn er því fast- heldinn á forna siði og hefðir en hann er Kka mjög framsækinn. Við höfum rutt braut í fjölmörg- um efnum,“ segir hann og vísar m.a. til þess að þarna hafi fyrsta félagsfræðideildin við ís- lenskan skóla verið stofnuð árið 1972 og Menntaskólinn á Akur- eyri sé eini menntaskólinn sem bjóði upp á bæði myndlistar- og tónlistarbraut. Bætt félagsaðstaða Auk bókasafnsins er búið að út- búa 10 kennslustofur í nýja hús- næðinu. Einnig er þar 600 fm miðrými eða salur, sem er ætl- aður fyrir félagsh'f og tóm- stundastarf nemenda. „Þessi salur er vel búinn. Þarna verður hægt að dansa, setja upp leik- sýningar og halda tónleika," segir Tryggvi og vonast til að þessi nýja aðstaða muni efla fé- lagslífið í skólanum enn frekar. Nemendur taka auknu rými að sjálfsögðu fagnandi og segir Tryggvi að mikill hugur sé í bæði kennurum og nemendum. „Eitt af því sem hefur sérkennt Menntaskólann á Akureyri er að helmingur nemenda eru að- komunemendur og helmingur þeirra býr í heimavist. Hér er því alveg sérstakt andrúmsloft. Tengsl nemenda og skólans eru mjög náin.“ Fjöldi nemenda óbreyttur Um 600 manns stunda nám við Menntaskólann og á síðustu ár- um hafa færri komist að en vildu. En er ætlunin að fjölga nemendum með auknu hús- rými? „Við gerum kröfu um það að nemendur komi mjög vel undirbúnir í bóklegum greinum. Það verða áfram strangar kröf- ur um inntöku nemenda og nemendum verður ekki íjölgað," segir Tryggvi og bendir á að það rými sem nú sé til umráða sé miðað við 600 nemendur. „Áður var skólinn í rauninni að springa utan af nemendunum því skólahúsin voru orðin allt of þröng.“ Nú ætti hins vegar að vera nægt rými fyrir 600 nemendur og um 70 starfsmenn skólans. Tryggvi leynir ekki ánægju sinni með að þessum áfanga sé nú loks náð og er ákaflega þakklát- ur öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóginn til að nýja bygg- ingin yrði að veruleika. „Skólinn á sér marga velunnara og skiln- ingur bæjaryfirvalda og Héraðs- nefndar Eyjaíjarðar er mikill.“ Flest hefur batnað Tryggvi réðist til starfa við Menntaskólann á Akureyri árið 1972, fyrir tæpum aldaríjórð- ungi og segir að á þessum tíma hafi orðið miklar breytingar á námsgreinum, kennsluháttum og viðhoríi til menntunar. „Ég tek ekki undir að heimur fari versnandi því á þessu sviði hef- ur flest batnað og ég tel að við búum við miklu betra skólakerfi nú en fyrir 25 árum. Ég held líka að ungt fólk sé betur menntað og víðsýnna en nokkru sinni fyrr. Mér finnst því ekki ástæða til að kvíða framtíðinni." AI

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.