Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Síða 16

Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Síða 16
JDagur-®mrimt 28 - Laugardagur 21. september 1996 ICONUNGLEGA SÍÐAN 1 Bölvun ættariimar BÚBBA segir nú frá tíðindum innun furstafjölskyldunnar í Mónakó. Sagt er að fyrr á öldum hafi einn af forfeðrum Rainer Mónakófursta lagt þá bölv- un á furstafjölskylduna í Mó- nakó að enginn fjölskyldumeð- limanna gæti nokkurn tíma átt í góðu hjónabandi. Saga fursta- fjölskyldunnar á undanförnum tveimur áratugum sýnir að hugsanlega kann að vera nokk- ur fótur fyrir þessu. - „Vitleysingur!" „Fífl!“. „Al- gjör aumingi!“ Á allra síðustu dögum hafa þessar lýsingar og sjálfsagt margar verri verið notaðar um Daníel Ducruet eig- inmann Stefaníu Mónakóprins- essu. Tilefnið var birting ítalsks slúðurblaðs á myndum af Daní- el á sólbekk, þar sem hann dró hvegi af sér í ástarleikjum við Fili Houteman, franska dans- mey. Myndir þessar þöktu heil- ar 25 blaðsíður í hinu ítalska tímariti og sýndu ekki einungis Daníel og Fili allsber í stelling- um, sem hver klámmynda- stjarna væri fullsæmd af, held- ur sýna myndirnar einnig fé- laga Daníels gamna sér með annarri konu á næsta sólbekk við hliðina. Dálítið sjúskað svo ekki sé meira sagt! - Furstafjölskyldan sveipaði dvergríkið Mónakó ævintýra- ljóma eftir að Rainer fursti kvæntist bandarísku kvik- myndastjörnunni Grace Kelly árið 1956. Grace prinsessa var konunglegri í framkomu og út- liti en margar aðrar með blátt blóð í æðum. Þau Rainer eign- uðust þrjú börn, Karólínu, Al- bert og Stefaníu. Árið 1982 lést Grace prinsessa sviplega í bíl- slysi. Er Grace dó virtist Rainer fursti bugaður af harmi. Karó- lína prinsessa, sem þá var 25 ára og nýskilin við fyrsta eigin- mann sinn, glaumgosann Philippe Junot, kom föður sín- um til aðstoðar við embættis- verkin og varð hans helsta stoð og stytta. - Karólína prinsessa tók við hlutverki móður sinnar í Mó- nakó og skömmu síðar giftist hún á ný. Seinni maður hennar var Stefano Casiraghi, ítali af auðugum ættum og nokkrum árum yngri en Karólína. Þau eignuðust þrjú börn, Andrea, Karlottu og Pierre. Hamingjan - Nú er staðan þannig eftir afrek Daníels á sólbekknum með Fifi, að Stefanía hefur Iýst því yfir að hún muni sækja um skilnað. En hún er óútreiknan- leg og ef að líkum Iætur er allt of snemmt að segja til um hvort það gangi eftir. Þremur dögum eftir hinar niðurlægjandi mynd- birtingar sáust myndir af þeim Stefaníu og Daníel með börnum sínum þar sem þau virðast reyna að lifa venjulegu lífi. Það segir sitt um gáfur Daníels að hann heldur þvi' fram að hann hafi verið leiddur í gildru á sól- bekknum. Af myndunum að dæma má þó fullyrða að Daníel mun fullur tilhlökkunar ganga í næstu „gildru" sem býðst!! Furstafjölskyldan samankomin, skömmu fyrir birtingu hinna hneykslanlegu mynda. Daníel, annar frá hægri, virð- ist alsæll að vera talinn til nánustu fjölskyldu furstans. - Allt bendir því til að innan skamms verði öll börn ekkilsins Rainer fursta ein á báti. virtist aftur ætla að brosa við furstafjölskyldunni. íbúar Mó- nakó hættu smám saman að trúa því að bölvun hvíldi á furstafjölskyldunni. Þeir létu sér jafnvel í réttu rúmi liggja að Albert ríkisarfi leggði sig ekkert fram um að tryggja framtíð furstafjölskyldunnar, ókvæntur maðurinn, þó hann væri dug- legur að „fleyta kellingar“. - Karólína varð stöðugt meira áberandi sem fulltrúi furstaveldisins og það var aug- ljóst að faðir hennar reiddi sig meira á hana en önnur börn sín. Brátt fóru að heyrast radd- ir um það að keppni væri milli hennar og Alberts um hvort þeirra myndi taka við ríkiserfð- um. „Þessi orðrómur er alrang- ur,“ sagði Karólína. „Ég bíð eft- ir því að Albert finni sér eigin- konu svo að ég geti dregið mig í hlé og hugsað bara um börnin mín. Hann er orðinn 36 ára og miðað við það þá mætti hann mín vegna giftast Joan Collins.“ - Stefanía komst eiginlega upp með hvað sem var. Hún hafði alltaf verið þrjósk og ein- þykk en eftir fráfall móður Stefanía, Daníel og börnin skömmu eftir hneykslið. Karólína og Stefano ásamt börnum sínum. hennar héldu henni engin bönd. Hún birtist með hinum og þessum karlmönnum, gerðist ljósmyndafyrirsæta, söngkona og gaf út tvær plötur (ég held að það viti enginn ennþá hvort hún gat sungið eða ekki). Einnig reyndi hún fyrir sér með sölu baðfata og ilmvatns sem nefnt var eftir henni. Vinahópur hennar var líka mjög skrautleg- ur. Einn af kærustum hennar var tví- ef ekki þrídæmdur nauðgari og vinkona hennar lést af ofneyslu heróíns. - En svo kom nýtt reiðarslag. Stefano eiginmaður Karólínu lést árið 1990 í hraðbáta- keppni. Eftir fráfall hans dró Karólína sig í hlé, fluttist frá Mónakó og settist að í franska smábænum St. Remy de Pro- vence. Þar reyndi hún að takast á við nýtt líf. Hún fékk kaþólsku kirkjuna til þess að ógilda fyrsta hjúskap hennar og viður- kenna börn hennar í seinna hjónabandi. Börn hennar geta því erft furstadóminn í Mónakó. Hún virtist eiga góðan og náinn vin í franska leikaranum Vin- cent Lindon, sem bjó af og til hjá henni en nú er þeim vin- skap lokið. Karólína er því ein á báti enn sem komið er. - Af Stefaníu er það að segja að skömmu eftir harmleik syst- ur hennar venti hún sínu kvæði í kross og virtist ætla að höndla hamingjuna. Hún varð yfir sig ástfangin af lífverði sínum, Daníel Ducruet (ætti eiginlega að vera de cruel miðað við síð- ustu atburði) sem þá bjó að vísu með Martine nokkurri sem gekk með barn þeirra undir belti. En Stefanía lét það ekki á sig fá og því síður Daníel. Eign- uðust þau Dam'el tvö börn og gengu í hjónaband, þrátt fyrir megnustu andúð Rainers fursta á ráðahagnum. Hann setti þó það skilyrði að Daníel myndi hvorki gera tilkall til auðæfa íjölskyldunnar né barnanna ef til skilnaðar kæmi. Grimaldi

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.