Dagur - Tíminn - 12.10.1996, Side 2
I
2 - Laugardagur 12. október 1996 Ilagur-®mTmn
Votlendið endurheimt
Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráðherra var ekki að víla fyrir sér að vaða mýrarfen og ösla upp á aurugt jarðýtubeltið til að heilsa upp á sveitunga
sinn sem ók ýtunni, sá heitir Erlendur Sigurðarson og er frá Sandhaugum í Bárðardal, en jarðýtan er af gerðinni Caterpillar árgerð 1960. DT-m,n&. ohr
Fyllt upp í framtakssemi fortíðarinnar
Maðurinn sem hjólaði í fjöl-
skyldurnar 14, biðlaði
ákaft til 14 þúsund kvenna á
landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins í gær, var sagt í heita pott-
inum. Þar var átt við Árna Sig-
fússon, formann FÍB, sem er
sagður hafa styggt fjölskyld-
urnar 14, sem allt eiga og öllu
ráða í þessu landi, með því að
vaða inn á hin helgu vé, bíla-
tryggingamarkaðinn. Árni hélt
ræðu um jafnréttismál á land-
fundinu í gær, en í þessu
stærsta kvenfélagi landsins,
eins og Davíð Oddsson, kall-
aði flokkinn, eru nærri 14 þús-
und konur. Það er reyndar full-
yrt í heita pottinum að Árni sé
með formennsku í FÍB og
framgöngu sinni þar, að búa
sér til bakland til stuðnings
pólitískri framtíð sinni.
r
Iheita pottinum var verið að
segja frá því að Jón Krist-
jánsson formaður fjárlaga-
nefndar varð fyrir hálfgerðu
áfalli í vikunni þar sem hann
sat í þingsalnum. Kristinn H.
Gunnarsson var í pontu og
þótti Jóni það víst ganga
kraftaverki næst hvað stjórn-
arandstæðingurinn Kristinn
var sammála meginaatriðum
fjárlagafrumvarpsins. Sem Jón
var að hugsa um þetta krafta-
verk sér hann að hillan í ræðu-
púlti Alþingis lyftist upp eftir
því sem Kristinn talar. Þetta
þótti Jóni mikil tíðindi og fór
að tala um málið við félaga
sína en var þá upplýstur um
að búið væri að taka burtu
skammelinn sem smáir þing-
menn gátu staðið á þegar þeir
töluðu í þinginu, en þess í stað
setja inn tölvustýrt lyftitæki í
púltið þannig að ræðumenn
geta lyft blöðum upp og niður
eftir stærð sinni.
Díseldrunurnar dunuðu
og jörðln nötraði þegar
tvær jarðýtur frá Jörfa
hf. á Hvanneyri erfiðuðu við
að ýta skurðruðningum ofan í
skurði í uppþurrkuðu mýr-
lendi skammt austan við til-
raunabúið á Hesti í Borgar-
firði og mörkuðu með því
upphafið að endurheimt vot-
lendis sem ræst hefur verið
fram á undanförnum áratug-
um.
Verkið er unnið að forgöngu
nefndar um endurheimt vot-
lendis og á skurðbakkanum
stóð hópur fólks sem fylgdist
spenntur með framkvæmdun-
um, sennilega ekki ólíkt því og
hefur verið þegar fyrstu skurð-
irnir voru grafnir í upphafi
framræslu mýrlendis hér á
landi.
Undanfarna áratugi hafa
stórvirkar vinnuvélar lagt nótt
við dag til að þurrka upp mýr-
lendi vítt og breitt um landið,
með dyggum stuðningi hins op-
inbera. Afraksturinn er um
32.000 kflómetrar af skurðum
og ófáir hektarar af horfnu
mýrlendi. Almennt eru menn
sammála um það nú að hluti
þeirrar framræslu hafi engum
tilgangi þjónað, sumri segja
stór hluti, aðrir telja hann
minni. í gær voru stigin íyrstu
hikandi skrefin í þá átt að snúa
þessari þróun við þegar jarð-
ýturnar tvær ýttu ofan í tæpa
tvo kflómetra af skurðum í
landi Mávahlíðar í Lundar-
reykjadal. Tilgangurinn er að
rannsaka hvaða áhrif það hefur
að loka skurðum sem á sínum
tíma voru gerðir til að ræsa
fram mýrar og þurrka land.
Hvort gróðurinn sem hvarf
kemur til baka og hvort dýra-
og fuglalíf kemst aftur í samt
horf og var fyrir tveimur ára-
tugum þegar mýrin var ósnert.
Rannsóknir voru hafnar í
umræddri mýri árið 1975 á
þeim breytingum sem verða í
kjölfar framræslu. Þá voru
gerðar forrannsóknir á mýrinni
áður en að framræslu kom og
gerðar voru mjög ítarlegar
rannsóknir á mýrinni á árunum
1975-1979. Mýrin var ræst
fram með vélgröfnum skurðum
haustið 1977, einnig var kflræst
á hluta svæðisins og plægðir
hagaskurðir á öðrum hluta.
Haustið 1984 var bætt við vél-
gröfnum skurðum til að bæta
framræsluna. Heildarstærð
Stjórnvöld ætla að kanna
lögmæti þess að taka upp
stafræn lykilkort sem geta
leyst af hólmi hefðbundin vega-
bréf og ökuskírteini.
f þessum stafrænu lykilkort-
um er hægt að geyma mun
meira af upplýsingum en rúm-
ast í hefðbundnum kortum með
segulrönd. Þau virka jafnframt
sem persómflegur lykill við-
framræsta svæðisins er um 35
hektarar.
í sumar hófust að nýju rann-
sóknir í mýrinni vegna tilraun-
arinnar með endurheimt vot-
lendis sem þar er verið að gera
og stendur til að rannsóknun-
um verði haldið áfram á næstu
árum fáist til þeirra fjármagn.
komandi einstaklings til að
senda og taka á móti hvers
kyns gögnum þannig að tryggt
sé að þau séu ólæsileg fyrir
annan en réttan viðtakanda.
Þetta kemur m.a. fram í
þeim áhersluatriðum stjórn-
valda í tengslum við framtíðar-
sýn þeirra um upplýsingasam-
félagið og tækni þess.
-grh
-ohr
Upplýsingatækn
]
Stafræn lykilkort
í stað vegabréfa
FRETTAVIÐTALIÐ
Friðrik Pálsson
forstjóri SH
Hrœringarnar í sjávarútvegsmál-
um á Vestjjörðum í vikunni hafa
enn á ný varpað kastljósinu að
samkeppni stóru Jisksölufyrir-
tœkjanna.
ÚA málið var annars
eðlis en fyrir vestan
Ljóst er að SH mun verða af við-
skiptum með stofnun hins nýja
útgerðarrisa. Dagur -Tíminn
ræddi við Friðrik Pálsson um málið.
Við höfum selt afurðir Hraðfrysti-
hússins Norðurtangans hf. á ísafirði í
allnokkur ár, og fyrir rækjuverksmiðj-
una Ritur hf. frá síðustu áramótum en
ekki fyrir önnur fyrirtæki sem eru að
sameinast í þessu nýja félagi, Útgerð-
arfélagi ísafjaröar."
Kom afdrei til á síðustu vikum að
hafa áhrif á atburðarásina með því að
kaupa hlutabréfin í Norðurtanganum
hf. og tryggja þannig áframhaldandi
viðskipti SH á fsafirði?
„Nei, það hefur ekki verið. Það er og
hefur verið stefna SH að kaupa ekki
framleiðendur og í þessu tilfelli kom
Söfumiðstöðin hvergi að málinu. í
átökunum um það að halda sölu á af-
urðum Útgerðarféfags Akureyringa hf.
var máfið aflt annars eðlis, þar voru
það bæjaryfirvöld sem voru aðafeig-
endur félagsins og vildu selja og losa
fjármagn til að bæta atvinnuástandið á
Akureyri. Á ísafirði eru það einstak-
lingar sem eiga félagið og slík umræða
hefur því ekki komið upp á ísafirði. Við
vorum ekki að kaupa nein hlutabréf í
ÚA en tryggðum áframhaldandi við-
skipti með því að opna skrifstofu á Ak-
ureyri og færa hluta af aðalskrifstofu
SH til Akureyrar, m.a. yfirstjórn mark-
aðsmála. „
Er ekki ljóst með eignaraðild ís-
lenskra sjávarafurða að eignarhaldsfé-
laginu Mastri hf., sem keypti hluta-
bréfin í Norðurtanganum hf., þá munu
sölumálin færast frá SH til ÍS?
„Fjölmiðlar ganga út frá því að svo
verði en okkur hefur ekki verið
tilkynnt neitt í þvi sambandi, en mér
finnst það líklegt, ég geri ekki ráð fyrir
að ÍS sé að fjárfesta í þessu eignar-
haldsfélagi nema til að kaupa sér við-
skipti á staðnum. En það skýrist
kannski ekki fyrr en í byrjun næsta árs
þegar nýja fyrirtækið hefur formlega
starfsemi.“ . GG