Dagur - Tíminn - 12.10.1996, Side 9
(3Dagur-'SImtírat
Laugardagur 12. október 1996
PJÓÐMÁL
„Dömufrí Sjálfstæðisflokksins
á landsfundi“
jj^P||jj Pétursdóttir
Eins og jafnan áður, þegar
landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins stendur fyrir
dyrum, þeysa fram á ritvöllinn
fjöldi manna og kvenna til að
láta í ljós skoðanir sínar á Sjálf-
stæðisflokknum. Þetta er í
sjálfu sér ekki óeðlilegt, þó að
slík umflöllun sé mildu meiri
um Sjálfstæðisflokkinn en aðra
flokka. Helgast það sennilega af
því, að Sjálfstæðisflokkurinn er
bæði stærri og öflugri en aðrir
flokkar og raunar má oft álykta
við lestur þessara greina, að
viðkomandi standi beinlínis
stuggur af stærð og styrk
flokksins. Einnig er oftar en
ekki greinilegt, að önuglyndi
setur mark sitt á greinaskrif af
þessu tagi. Þannig eru til ótal-
mörg dæmi þess að andstæð-
ingar Sjálfstæðisflokksins reyna
allt hvað þeir mega til að valda
ókyrrð í flokknum með alls
kyns sögum og hálfkveðnum
vísum, einkum þegar vitað er
að eindrægni og samhugur ríkir
innan raða flokksmanna.
Fyrirsögn á grein eftir unga
forystukonu í Sjálfstæðisflokkn-
um, þar sem notað var orðið
„dömufrf í umíjöllun um
landsfund Sjálfstæðisflokksins,
hefur gefið nokkrum áhuga-
mönnum um málefni flokksins,
en utan raða hans, tilefni til að
lýsa skoðunum sínum. Einn
þessara áhugamanna um mál-
efni Sjálfstæðisflokksins er
borgarstjórinn í Reykjavík, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir. Ingi-
björg Sólrún er í senn bæði pól-
itískur borgarfulltrúi og emb-
ættismaður, borgarstjóri, í einni
og sömu manneskjunni. Sem
stjórnmálamaður er ljóst að
Ingibjörg Sólrún er andstæðing-
ur Sjálfstæðisflokksins. Greini-
legt er við lestur á grein henn-
ar, „Dömufrí Sjálfstæðisflokks-
ins“, er birtist í þessu blaði hér
í fyrradag, að þar ritar pólitík-
Það kemur ekki á óvarl og
reyndar finnst mér við lestur
greinarinnar, að Ingibjörg Sólrún
sé enn við heygarðshorn
Kvennalistans í málfiutningi sín-
um. Þ.e.a.s. konur hafa verið
mældar og metnar á öðrum for-
sendum en kariar.
usinn Ingibjörg Sólrún, en tæp-
lega borgarstjórinn.
Það er deginum ljósara að
okkur Ingibjörgu Sólrúnu grein-
ir mikið á um hverjar eigi og
skuli vera baráttuaðferðir
stjórnmálamanna til að vinna
skoðunum sínum fylgi og ná
áhrifum. Það kemur ekki á
óvart og reyndar finnst mér við
lestur greinar-
innar, að Ingi-
björg Sólrún sé
enn við hey-
garðshorn
Kvennalistans í
málflutningi sín-
um. Þ.e.a.s. kon-
ur hafa verið
mældar og
metnar á öðrum
forsendum en
karlar. Því verð-
—— ur að breyta og
það gerist ekki
nema að konur standi saman
þvert á flokka og styðji hver
aðra. Varla er hægt að segja
skýrar að tilgangurinn helgi
meðalið og að allar hugsjónir
og stefnumál að öðru leyti verði
að víkja fyrir þessari beinu leið
til valda og áhrifa. Þessa leið er
ég afskaplega ósátt við og tel
hana raunar afleita.
Eðli máls samkvæmt er þar for-
maður og varaformaður og svo
mætti áfram telja. Það flögrar
ekki að mér eitt einasta augna-
blik, að kona eigi ekki eftir að
sitja í æðstu stöðum innan
flokksins.
Og vel á minnst! Ef þetta er
nú svona góð og sjálfsögð leið
fyrir konur, hvernig stendur þá
á því að ísland skuli vera eina
landið í hinum siðmenntaða
heimi þar sem hópur kvenna
hefur reynt að fara þessa leið
til að ná áhrifum? Reyndar má
alveg bæta því við, að þessi leið,
skv. hefðbundnum aðferðum
Kvennalistans, er aðeins fær
konum, en hins vegar mega all-
ir koma með og ýta á vagninn.
Og hver var svo að tala um
þversagnir og missagnir í mál-
flutningi?
Ég hef ætíð verið á þeirri
skoðun að fullkomið jafnrétti
kynja sé einn af hornsteinum
þess þjóðfélags sem við byggj-
um. Konur eigi þar nákvæm-
lega sama rétt til allra hluta og
karlmenn. Þetta finnst mér svo
sjálfsagt að mér flnnst ekki
þurfa að ræða það frekar. Fyrir
þessum hugsjónum hef ég bar-
ist og mun berjast alla tíð. En
það breytir ekki því, að ég hef
einnig aðrar hugsjónir og
markmið í lífinu. Og að fram-
gangi þeirra vil ég vinna, m.a.
með þátttöku minni í stjórnmál-
um. Ég komst að raun um það
mjög ung, að innan vébanda
Sjálfstæðisflokksins eru margir
sem ala með sér sömu hugsjón-
ir og framtíðarsýn og ég sjálf.
Því fannst mér og finnst enn
ekki koma annað til greina en
að freista þess að vinna þessum
málum framgang innan Sjálf-
stæðisflokksins.
í stjórnmálum, ekki síst í
stórum flokki eins og Sjálfstæð-
isflokknum, eru margir forystu-
menn. Eðh máls samkvæmt er
þar formaður og varaformaður
og svo mætti
áfram telja. Það
flögrar ekki að
mér eitt einasta
augnablik, að
kona eigi ekki
eftir að sitja í
æðstu stöðum
innan flokksins.
Þ. á m. bæði
sem formaður
og varaformað-
ur. Sömuleiðis er
______________ ég viss um það,
að sú kona, hver
sem hún er,
hlýtur það sæti vegna hæfileika
sinna, framgöngu á pólitískum
vettvangi og baráttu fyrir hug-
sjónum Sjálfstæðisflokksins. En
ekki eingöngu vegna þess að
hún er kona.
Höfundur er alþingismaöur.
Möðruvellir
Efnislegar umræður í stað útúrsnúninga
Guðrún
Ágústsdóttir
forin. skipulags-
nefndar Reykja-
víkurborgar skrifar
Um hvað snýst „Kirkju-
sandsmálið" efnislega,
þ.e. það skipulag og sú
uppbygging sem unnið er að?
Um það ætti umræðan að
snúast en ekki pólitíska útúr-
snúninga. Samkvæmt deili-
skipulagi frá 1990 átti að
reisa iðnaðarhúsnæði á um-
ræddri lóð í Laugarnesinu,
14,3 metra samfellt stórhýsi.
Sótt var um landnotkunar-
breytingu snemma árs til
þess að byggja íbúðarhús-
næði á lóðinni og var sam-
dóma álit allra sem að málinu
komu að það væri mun vin-
samlegra gagnvart þeirri
byggð sem fyrir er á svæðinu.
Gerður var fyrirvari um að
íbúðirnar uppfylltu kröfur um
hljóðvist en menn greindi á
um það hvort skilgreina bæri
svæðið sem nýbyggingarsvæði
eða endurbyggingarsvæði.
Niðurstaða borgaryfirvalda
var sú að um nýbygginga-
svæði væri að ræða og leiðir
það til þess að gerðar eru
meiri kröfur til hljóðvistar en
áður hefur tíðkast hérlendis
og íbúðirnar sem fyrirhugað
er að byggja á svæðinu verða
með mun fullkomnari hljóð-
vörnum en áður hefur þekkst.
Heilbrigðisnefnd taldi
ásættanlegt að veita undan-
þágu frá hljóðstigi í 16 íbúð-
um af 56 og byggði áht sitt á
umsögn Hollustuverndar rík-
isins. Illjóðstig á svölum, lóð
og innanhúss fer hvergi yfir
leyfileg mörk. Rétt er að taka
fram að útreikningar á hljóð-
stigi miðast við hávaða frá
áætlaðri umferð árið 2016 ef
spár um umferðaraukningu
ganga eftir og að ef og þegar
byggð verður hljóðmön við
Listaháskóla íslands mun
hljóðstig utan við vegg hús-
anna á Kirkjusandi lækka um
allt að tvö desíbel að mati
Hollustuverndar ríkisins.
Komið er verulega til móts
við athugasemdir íbúa sem
mótmæltu hæð húsanna eins
og þau áttu upphaflega að
vera, 9, 7 og 6 hæðir og að 76
íbúðir myndu draga að sér
mikla einkabflaumferð. Húsin
hafa verið lækkuð í 5, 6 og 6
hæðir og íbúðunum fækkað
um 22. Utsýnisskerðing verð-
ur mun minni en eldra skipu-
lag frá 1990 gerði ráð fyrir.
íbúðabyggð á þessum stað
styrkir hverfið og þétting
byggðar stuðlar að minni bif-
reiðaakstri. Það er hluti
þeirra markmiða sem gengið
er út frá í þeirri aðalskipu-
lagsvinnu sem unnið er að.