Dagur - Tíminn - 18.10.1996, Side 3

Dagur - Tíminn - 18.10.1996, Side 3
IDagur-'ðltmitm Föstudagur 18. aktóber 1996 - 3 F R E T T I R Alþingi ■ Suðurland Öráðsía og bruðl Forsætisnefnd al- þingis var sökuð um bruðl og óráðsíu við endurbyggingu gamalla húsa í um- ræðum á alþingi í gær. Forseti þings- ins vísar því á bug. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagn- rýndi forsætisnefnd al- þingis harðlega fyrir bruðl og óráðsíu í umræðum á alþingi í gær um Qáraukalög. Forsætis- nefndin ákvað fyrr á þessu ári að ljúka í einum áfanga endur- bygginga tveggja húsa í Kirkju- stræti, í stað þess að skipta verkinu í tvennt eins og áður hafði verið ráðgert. Þess vegna er farið fram á 50 milljóna króna fjárveitingu, til viðbótar 44 milljóna framlagi á flárlögum þessa árs. Pétri þykir þetta fyrir neðan allar hellur. „Hvað eiga forstöðu- menn annara ríkis- stofnana að halda, þegar háttvirt forsæt- isnefnd alþingis leyfir sér að fara 114% fram úr ijárlögum. Eftir höfðinu dansa limirnir." Pétur sagði virðingarvert að halda upp á gömul hús, en allt í Kirkjustræt- ishúsunum væri nú orðið nýtt, nema burðarveggirnir. „Og sýn- ist mér sem óráðsía ráði hér ríkjum. Ég minni á að skuldir Pétur Blöndal alþingismaður Hvað eiga forstöðu- menn annara rílcis- stofnana að halda, þegar forsœtisnefhd alþingis leyfir sér að fara 114% fram úr fjárlögum. „ Olafur G. Einarsson forseti Alþingis „Ég vísa því algjör- lega á bug að hér sé um að rœða einhverja óráðsíu og skil ekki þessa óvild þingmannsins í garð þingsins. “ ríkissjóðs eru 150 milljarðar og vaxtagreiðslur eru 13 milljarð- ar eða 36 miljónir á dag.“ Pétur er einn þeirra sem fær skrif- stofu í húsunum og það þykir honum sárgrætilegt.“Ég hef hugleitt að neita því, en þá missi ég tengsl við flokksystkin mín, sem ég met mikils, og það breytti í sjálfu sér engu.“ Pétur sagðist flytja, en kann forsæt- isnefndinni engar þakkir fyrir að setja sig í þessa stöðu. Ólaf- ur G. Einarsson, for- seti Alþingis kunni honum heldur engar þakkir fyrir ræðuna. „Hún var ekki bara sérkennileg, heldur þótti mér hún vera þingmann- inum til vansa.“ Ólafur vísaði því á bug að forsætisnefnd hefði af ráðnum hug farið fram úr fjárlögum. „Ég get svo sem skil- ið þessa fullyrðingu háttvirts þingmanns, ef hann hefur ekk- ert annað fyrir sér, en það sem stendur í greinargerð með fjár- aukalagafrumvarpinu. Það verður að segja alveg eins og er að sú greinargerð er ekki samin af mikilli velvild í garð þingsins, svo ég kveði ekki fastar að orði.“ Ólafur sagði að það hefði alltaf legið ljóst fyrir að endurbyggingunni yrði lokið á þessu ári og sagðist telja al- þingi sóma að því, hvernig stað- ið hefur verið að henni. „Auð- vitað eru þetta háar tölur, en það eru gerðar aðrar kröfur til bygginga í miðborg og hér er um að ræða endurgerð á hand- verki, sem er einstakt. Það er ekki verið að búa til fornminjar. Ég vísa því algjörlega á bug að hér sé um að ræða einhverja óraðsíu og skil ekki þessa óvild þingmannsins í garð þingsins.“ Tólf konur heiðraðar Iþróttasamband íslands heiðraði 12 konur með gull og silfurmerkjum ÍSÍ fyrir störfa að íþróttamálum í hófi sem efnt var til í gær, en um730 karlar hafa verið heiðraðir af ÍSÍ til þessa. Þessar konur eru: Lovísa Einarsdóttir, gull- merki fyrir störf að íþróttamál- um. Svanfríður Guðjónsdóttir, gullmerki fyrir störf að knatt- spyrnumálum. Hrafnhildur Guðmundsdóttir, gullmerki fyrir störf í þágu sundíþróttarinnar. Rósa Héðinsdóttir, gullmerki fyrir félagsstörf í þágu hand- knattleiks. Anna Hermannsdóttir, silfur- merki fyrir íþróttastörf. Kristín Sveinbjörnsdóttir, silfurmerki fyrir störf að golf- málum. Bergþóra Sigmundsdóttir, silfurmerki fyrir félagsmála- störf á vegum Stjörnunnar. Bryndís Þorvaldsdóttir, silf- urmerki fyrir leikfimikennslu. Sóley Stefánsdóttir, fyrir störf að knattspyrnumálum á vegum Breiðabliks. Rósa Valdimarsdóttir, silfur- merki fyrir knattspyrnustörf. Kolbrún Jónsdóttir, silfur- merki vegna starfa að málefn- um körfuknattleiks. Hafdís Árnadóttir, silfurmerki fyrir störf að íþróttamálum. Dagur - Tímunn óskar þess- um heiðurskonum til hamingju. Samnmgar undimtaðir Stjórnir Vinnslustöðvarinn- ar í Vestmannaeyjiun og Meitilsins í Þorlákshöfn undirrituðu sl. föstudag viljayf- irlýsingu um sameiningu fyrir- tækjanna. Vinnurhópur, sem í eiga sæti aðilar frá báðum fyr- irtækjum, hefur verið skipaður til að vinna að framgangi sam- einingarinnar. Stjórnir fyrirtækjanna hafa átt í viðræðum undanfarnar vikur um fyrirhugaða samein- ingu, eins og greint hefur verið frá í Degi Tímanum. Þetta sam- einaða fyrirtæki verður að sannkölluðum sjávarútvegsrisa með tæplega 14.000 þorsk- ígilda kvóta og veltu upp á 4500 milljónir. Búist er við að niður- staða liggi fyrir um lok mánað- arins. ÞoGu Akureyri Bæjarmála- punktar • Bæjarráð samþykkti tillögu skólanefndar frá 16. október sl. um 1,5 milljón króna Ijárveitingu til framkvæmda í íþróttahöllinni, m.a. vegna aðstöðu 5. bekkjar Barnaskóla Akureyrar í kafflteríu hússins. Fjárveitingunni verður mætt með skerðingu á veltufé árs- ins 1996. • íþróttafélag heyrnarlausra fór þess á leit með bréfl dags. 7. októ- ber sl. að Akureyrarbær styrkti félagið til þátttöku á Heimsleikum heyrnarlausra, sem fram fara í Kaupmannahöfn á næsta ári. Bæj- arráð samþykkti að styrkja félagið um 100 þúsund krönur. • Kynntar voru umsóknir tii Jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga um fram- lög til stofnframkvæmda grunri- skóla á árinu 1997. Sótt er um framlög til Giljaskóla, Síðuskóla og Glerárskóla. •Bæjarráð hefur falið tækni- deild að ljúka framkvæmdum við Smáragötu á þessu ári og er áætl- aður viðbótakostnaður um 2,6 milljónir króna og verður flárþörf mætt með tilflutningi innan fram- kvæmdaáætlunar gatnagerðar 1996. GG Bersöglislínan Arðurinn allt að 60.000 krónur á dag f að Póstur og sími fer að læsa þessum Ifnum, þannig að fólk þurfi að sækja um þessa þjónustu skríf- lega, þá er hún búin að vera, það eru hreinar línur", segir Ágúst Sverrisson hjá Veitunni. En það fyrirtæki heldur úti mörgum bersöglis- og stefnu- mótasímalínum, sem Erna Rut Konráðsdóttir gagnrýndi harðlega í viðtali í Degi-Tímanum í gær. Erna Rut er einnig afar ósátt við þátt Pósts og síma í þessum mál- um, en sonur hennar skuldar stórfé fyrir notkun línanna og hún segir farir sínar ekki sléttar í til- raunum til að láta loka fyrir notk- un þeirra úr heimilissíma sínum. „Þetta er eins og hver önnur þjónusta, sem greinilega er þörf fyrir“, segir Ágúst um „Amorslín- urnar“. „Svona línur eru til í flest- um öðrum löndum og oftast er efnið á þeim miklu svæsnara en hér, þar sem það grófasta jafnast á við sögur úr Eros eða álíka tímaritum. Við erum ekkert stórgróðaíyr- irtæki", sagði Ágúst, en bætti við að af þeirri þjónustu, sem Veitan byði upp á, væru svokallaðar dað- ursögur og stefnumótalínur lang- vinsælastar. „Það er hringt u.þ.b. þrjú- hundruð sinnum á dag í daður- sögurnar, símtöl sem vara 4 til 5 mínútur. Þar kostar mínútan oft- ast 39.90 krónur, ekki 66.50 eins og hjá Rósu Ingólfs. Af þessum 39.90 krónum tök- um við 20 krónur og Póstur og sími fær 8 krónur", segir Ágúst. Séu þessar tölur hafðar til hhð- sjónar kemur í ijós að það kostar tæpar 200 krónur að hlusta á ódýrustu tegund „daðursögu" og að slíkar línur geta því gefið af sér allt að sextíu þúsund krónur alls á dag, þar af 30.000 í hreinan gróða til þess sem rekur hana. Ef litið er til verðsins á ný- stofnaðri „kitlandi“ línu Rósu Ing- ólfsdóttur og flestra þeirra lína, sem gefnar eru upp undir síma- torgsþjónustu Pósts og síma í símaskránni, 66.50 krónur, hækka þessar upphæðir verulega og er ljóst að ekki þurfa 300 manns að hringja daglega í sömu „rauðu“ línuna til þess að hafa megi af henni dágóðar tekjur. „Innihaldið kemur Pósti og síma ekkert við“ í viðtali blaðsins við Guðmund Björnsson, aðstoðar Póst og síma- málastjóra, í gær kom m.a. fram að til stæði að endurskoða ýmis- legt varðandi umræddar símalín- ur, bæði með tilliti til aðgangs að þeim og innihalds þeirra. „Það er ekki hægt að tala um að Póstur og sími sé að reka þess- ar línur“, segir Ágúst. „Þeir sjá um innheimtuna og tengja númer við símakerfið, en við berum síð- an ábyrgð á rekstrinum. Þessi þjónusta fór að taka á sig mynd upp úr 1989 og á tímabili var hægt að komast í beint samband við fólk á línunum, en það var tekið fyrir það, vegna misnotkun- ar. Innihald línanna verður djarf- ara eftir klukkan eitt á nóttunni, en er að mínu mati ekki sérlega svæsið og ég skil ekki alveg hvað er verið að fara með tali um ritskoðun á þessu efni, eða hver ætti að framkvæma hana“, segir Ágúst.“Pósti og síma kemur inni- hald þessarra lína ekkert við“. „Ég hef alla tíð verið undrandi á því að ekki skuli þurfa að sækja sérstaklega um þetta", sagði Garðar Ilannesson, stöðvarstjóri Pósts og síma í Hveragerði. En líkt og Ágúst hafði Haraldur sam- band við blaðið vegna umíjöllunar um kynlífs- og stefnumótalínur. Erna Rut Konráðsdóttir lýsti þar m.a, þrautargöngu sinni við að fá lokað fyrir línurnar, en sam- kvæmt upplýsingum Garðars er nú hægt að fá lokað ákveðnum flokkum þjónustu þeirrar sem í boði er í gegnum símann. „Og hér í Hveragerði segjum við alltaf fólki, sem er að sækja um nýjan síma, frá því að það geti látið loka á þessar línur“, bætir Garðar við. Þar sem flestar „rauðu“ og „makalausu" línurnar, sem kynntar eru undir símatorgs- þjónustu í símaskránni, eru t.d. í fimmta og hæsta verðflokki, ætti því sámkvæmt Garðari nú þegar að vera hægt að útiloka þær, en hlusta áfram á veðurspána. H.H.S.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.