Dagur - Tíminn - 13.11.1996, Page 7
4Dagur-®ínrám
Miðvikudagur 13. nóvember 1996 -19
MENNING O G LISTIR
Dægurlög sveitamannsins
Eg held að býsna mörgum finnst að
tónlistarstörf og hvað þá laga-
smíðar falli ekki alveg að þeirri
ímynd sem bændur hafa í augum al-
mennings. Margt sveitafólk starfar af
krafti í kórum en hinsvegar er mynd sú
sem margt þéttbýlisfólk hefur af bænd-
um að þetta séu karlar sem eru á fullu
að moka skít og gera við girðingar,“ seg-
ir Tryggvi Sveinbjörnsson, bóndi á Heiði
í Holtum í Rangárvallasýslu.
Horft í blámann
Þessa dagana er að koma á markað
hljómplatan Horft í blámann, sem geym-
ir tólf lög eftir Tryggva. Hann hefur um
langt árabil fengist við lagasmíðar af
ýmsu tagi, jafnhliða því sem hann hefur
leikið í hljómsveitum sem einbeitt hafa
sér að þorrablótum og árshátíðum á
Suðurlandi. TU að mynda starfaði
Tryggvi lengi í hljómsveitinni Jójó. Hana
skipuðu, auk Trygga, Jón Ólafsson bóndi
á Kirkjulæk í Fljótshlíð, Hjörtur Heiðdal
á Arngeirsstöðum í sömu sveit, Jón Þor-
steinsson bóndi á Syðri-Hömrum í Holt-
um og Hafsteinn Eyvindsson frá Skíð-
bakka í Austur-Landeyjum.
Lögin tólf á plötunni eru öll eftir
Tryggva, sem jafnframt semur flesta
textana. Jafnframt hefur hann í þeim
efnxnn leitað í smiðju Steins Steinarr og
félaga síns, Hjartar Heiðdal. Lögunum á
„Ég held að býsna mörgum
finnist að tónlistarstörf falli
ekki að ímynd bændastétt-
arinnar," segir Tryggvi
Sveinbjörnsson, bóndi, tón-
listarmaður og útgefandi.
plötunni lýsir Tryggvi sem svo að þau
séu dægurlög sveitamannsins, þar sem
víða gæti á plötunni áhrifa frá náttúr-
unni, sem er daglegur starfsvettvangur
bænda. Lögin á plötunni, og upptökur á
þeim, voru talsvert unnin í gegnum tölv-
ur, sem skipa nú sífellt stærra hlutverk í
tónhst og upptökutækni.
í hljóðveri sunnlensks
bónda
Tryggvi segist hafa unnið að undir-
búningi plötunnar síðastliðna tvo
vetur. Einkum hefur hann getað
helgað sig þessu verkefni eftir
áramót, á þeim tíma sem sé hvað
rólegastur hjá sér og öðrum
bændum. Þá má geta þess að
plata Tryggva var tekin upp í
hljóðveri annars sunnlensks
bónda, Ólafs Þórarinssonar í
Glóru í Flóa, sem margir þekkja
best undir nafni Labba í Mánum.
„Ég er ánægður með þær við-
tökur sem geisladiskurinn hefur
fengið. Ég hef komist inn í um-
ræðuna, ef svo má segja, og lög
af diskinum hafa verið spiluð
bæði á Rás 2 og Bylgjunni," segir
Tryggvi. - Hann kveðst ætla að
halda áfram í tónlistinni á næstu
árinn - enda ekki ástæða til ann-
ars. Nú þegar kveðst hann eiga í
sarpnum safn laga sem duga
myndu á aðra plötu. Þar við bæt-
ist svo að Tryggvi er hvergi nærri
hættur að semja lög og því af
nægu að taka. -sbs.
Tryggvi Sveinbjörnsson með geisladisk sinn, Horft í
blámann.
Dásamleg lengd
Sigurður
Steinþórs-
son
skrifar um
tónlist
S ■———
gulum tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar í
Háskólabíói 7. nóvem-
ber voru á efnisskrá Suðureyja-
forleikur (Hebrides eða Hellir
Fingals) F. Mendelssohns op.
26, klarinettukonsert Karólínu
Eiríksdóttur (1994) með Einar
Jóhannesson í einleikshlut-
verki, og 4. sinfónía Antons
Bruckner. Kínverjinn Lan Shui
stjórnaði, en hans frægðarsól er
hátt á himni um þessar mundir
- frá 1. janúar næstkomandi
verður hann aðalstjórnandi sin-
fóníuhljómsveitarinnar í Singa-
pore. Kínverjar eiga sjálfsagt
eftir að leggja vestrænni menn-
ingu mikið lið á komandi árum,
því þeir eru á annan milljarð að
tölu og í þeim grúa hljóta að
vera margir stórsnillingar á
flestum sviðum - sjálfsagt Ar-
kimedes, Platón, Einstein og
Mozart, stórfiðlarar, stórpían-
istar og hvaðeina. Og stór-
stjórnendur, eins og Lan Shui
kann vel að vera.
Suðureyjaforleikur Mend-
elssohns á að vera byggður á
hughrifum sem hann varð fyrir
á ferð um Suðureyjar í Skot-
landi árið 1829, þá tvítugur.
Skáldið var að vísu tæplega
mönnum sinnandi vegna sjó-
veiki, en þó skilaði þessi hálfs
mánaðar ferð bæði sinfóníu og
forleik. Eins og mörg tónverk
Mendelssohns er þetta mjög fal-
leg tónlist og litrík, en ekki sér-
lega rismikil. Þarna vakti sér-
staka athygli leikur klarinett-
anna, Sigurðar Snorrasonar og
Kjartans Óskarssonar, í fallegri
sóló.
Karólína Eiríksdóttir samdi
klarinettukonsertinn eftir pönt-
un frá Sinfóníuhljómsveit Ála-
borgar og skrifaði hann fyrir
Einar Jóhannesson, sem frum-
ílutti hann með téðri sinfóníu-
hljómsveit í Álaborg undir
stjórn Lans Shui í apríl 1995.
Konsertinn er í tveimur þáttum,
um 20 mínútur að lengd. Margt
er þarna sniðuglega gert og
konsertinn er viðburðaríkur,
taktfastur og fullur af „kont-
röstum". Því miður spilaði
hijómsveitin iðulega of sterkt,
þannig að einleikarinn sást
fremur en heyrðist spila af
kappi, en á milli naut hann sín
vel. Ekki hefði mér dottið í hug
að lýsa upphafi síðari þáttar
sem „hægu og blíðlegu" eins og
tónleikaskráin gerir - „blíðlegt"
er u.þ.b. síðasta orðið sem lýsir
þessum konsert - enda virðast
ungu skáldin fremur reyna að
skrifa frumlega, sniðuga og
stundum áhrifamikla tónlist
(eins og þessi konsert er á köfl-
um) held-
ur en fal-
lega. Ein-
ar flutti
þetta nátt-
úrlega af
yfirburða-
snilli.
í ár,
1996, er
100. ártíð
bæði Jó-
hannesar
Brahms
og Antons
Bruckner.
Bruckner var mikill aðdáandi
Wagners og flæktist að sak-
lausu í hinar illvígu deilur
stuðningsmanna Brahms og
Wagners, sem varð til þess að
hann fékk á sig eins konar hálf-
vitastimpil. Og að sönnu var
hann „saklaus og fávís sveita-
maður“ - hann var orðinn 44
ára þegar hann loksins yfirgaf
sveitaþorp sitt og hélt til Vínar-
borgar. Á þeim tíma voru auð-
vitað engin hljómilutningstæki,
og þess eru engin merki að
Bruckner hafi heyrt eða séð
sinfóníu eftir Beethoven eða
Brahms - og sennilega ekki
minni spámenn heldur. Hann er
semsagt eins og hagablóm,
sjálfsprottinn á akri rómantíska
tímabilsins. Tónlist hans átti
lengi erfitt uppdráttar utan
þýska málsvæðisins og þar hef-
ur hann að sjálfsögðu staðið í
skugga risanna Beethovens og
Brahms. En í seinni tíð hefur
Bruckner fengið uppreisn og
telst nú til hinna miklu tónjöfra
19. aldar. Af 9 sinfóníum hans
er hin ijórða vinsælust - kölluð
róman-
tíska sin-
fóm'an
en sú ní-
unda mik-
ilfengleg-
ust.
Á tón-
leikunum
7. nóvem-
ber var 4.
sinfónían
flutt og
stóð sá
flutningur í
rúma
klukkustund. Nútímamönnum
þykir tónhst þurfa að vera æði
áhugaverð til að geta gert kröfu
til svo mikils tíma, og sennilega
voru margir áheyrenda orðnir
nokkuð daufir í dálkinn undir
lokin. En þetta er sannlega
stórbrotin tónlist á sinn hátt,
með hornin í forsæti - Bruckner
taldi hornið vera konung blást-
urshljóðfæranna og önnur
hijóðfæri ekki annað en fátæk-
lega og lítils megandi ættingja -
og fínar strófur í „blikkinu":
trompetum, básúnum og túbu.
Sérstaka og maklega viður-
kenningu stjórnanda og áheyr-
enda fékk Jósef Ognibene fyrir
glæsilegan hornleik sinn. En
þar fyrir utan spilaði hljóm-
sveitin þetta mikla verk mjög
vel undir öruggri og sennilega
innblásinni stjórn Lans Shui frá
Peking.
Lan Shui.
k
ínlLÍllilkliJEllTltll
_____ |-W
LtjSais 5 li^lí jslJuLwJy
LEIKFELAG AKUREYRAR
Sigrún Astrós
Sýning laugard. 16. nóv. kl. 20.30.
Síðasta sýning
Leikfélag Akureyrar og
Tónlistarskólinn á Akureyri
I tilefni af „Dagi islenskrar tungu"
Laugardagurinn 16. nóvember nk.
„Ég bið að heilsa"
Dagskró í tali og tónum í
Samkomuhúsinu kl. 17.15.
Dýriní
Hálsaskógi
eftir ThorbjBrn Egner
Sýningar:
Laugard. 16. nóv. kl. 14.00
Sunnud. 17. nóv. kl. 14.00
Sunnud. 17. nóv. kl. 17.00
MiSasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími í miðasölu: 462 1400.
|0agur-<3Itmtmt
- besti tími dagsins!
WÓDLEKHÐSH)
Stóra sviðið kl. 20.00:
Kennarar óskast
eftir Ólaf Hauk Símonarsonar
Lýsing: Páll Ragnarsson
Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir
Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson
Leikendur: Sigrún Edda Björnsdóttir, Þröstur
Leó Gunnarsson, Öm Árnason, Ólatia Hrönn
Jónsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Gunnar
Eyjólfsson, Harpa Arnardóttir.
Frumsýning: Föstud. 22. nóv. kl. 20.00
2. sýning: Miðvikud. 27. nóv.
Nanna systir
eftir Einar Kárason og
Kjartan Ragnarsson
Fimmtud. 14. nóv. Nokkur sæti laus.
Sunnud. 17. nóv.
Laugard. 23. nóv
Föstud. 29. nóv.
Söngleikurinn Hamingjurániö
eftir Bengt Ahlfors
Föstud. 15. nóv. Síðasta sýning.
Þrek og tár
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Laugard. 16. nóv. Uppselt.
Sunnud. 24. nóv. Laugard. 30. nóv.
Ath. Fáar sýningar eftir.
Kardemommubærinn
eftir Thorbjörn Egner
Sunnud. 17. nóv. kl. 14.
Sunnud. 24. nóv. Sunnud. 1. des.
Síðustu 3 sýningar.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
Leitt hún skyldi vera skækja
eftir John Ford
Fimmtud. 14. nóv. Uppselt.
Sunnud. 17. nóv. Uppselt.
Aukasýning miðvikud. 20. nóv. Uppselt.
Föstud. 22. nóv. Laus sæti.
Laugard. 23. nóv. Uppselt.
Miðvikud. 27. nóv. Uppselt.
Föstud. 29. nóv. Laus sæti.
Athygli er vakin á að sýningin er ekki
við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning hefst.
Litla sviðið ki. 20.30:
í hvítu myrkri
eftir Karl Ágúst Úlfsson
Föstud. 15. nóv. Uppselt.
Laugard. 16. nóv. Uppselt.
Fimmtud. 21. nóv. Uppselt.
Sunnud. 24. nóv. Uppselt.
Fimmtud. 28. nóv. Laus sæti.
Laugard. 30. nóv. Laus sæti.
Athugið að ekki er hægt að hleypa gest-
um inn í salinn eftir að sýning hefst.
★ ★ ★
Miðasalan er opin mánud. og
þriðjud. kl. 13.00-18.00,
miðvikud.-sunnud. kl. 13.00-20.00 og til
20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. -
Einnig er tekið á móti símapöntunum frá
kl. 10.00 virka daga. - Simi 551 1200.