Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Blaðsíða 12
I
24 - Laugardagur 7. desember 1996
ÍDagur-®ímmtt
WSUBBSBsasam
iDiigur-®úrtntix
mmmmmmmmmBmammBmmmaammmmmmmmmmmmmEjmmamm
Þegar piparkökur bakast...
Eitt deig, margar uppskrift-
ir! Piparkökurnar eru
ómissandi þáttur í jóla-
haldinu. Og ekki spillir fyrir að
þær séu skemmtilegar í laginu
og fallega skreyttar. Hér kemur
uppskrift af piparkökudeigi og
nokkrar útfærslur á piparkök-
um fá að fljóta með.' Oft er hægt
að kaupa skemmtilega löguð
form í búðum en annars er
bara að búa til sín eigin form
eftir leiðbeiningunum sem hér
fyigja.
1/ bolli ósalt smjör (mjúkt)
1 bolli sykur
1 stórt egg
l'A tsk. vanilludropar
4'A bolli hveiti
'A tsk. salt
Hrærið saman smjöri og sykri
þar til blandan er orðin létt.
Hrærið egginu og vanilludrop-
unum saman við og blandið síð-
an hveitinu og saltinu varlega
útí. Skiptið í tvo hluta, setjið í
plast og kælið nógu mikið til að
hægt sé að fletja út.
Fletjið deigið út svo það
verði ca. 'A cm að þykkt. Skerið
kökurnar út, setjið á bökunar-
pappír og bakið í 7-10 mínútur.
Jólasveinn
Búið til snið og skerið út eftir
því. Skreytið sveinka á eftirfar-
andi hátt: Búið til glassúr úr
eggjahvítu og sykri. Þynnið með
vatni ef þörf er á. Notið matar-
liti til að lita glassúrinn.
Litið hluta af glassúrnum
rauðan og málið húfu og kápu á
piparkökurnar. Sáldrið yfir
rauðum perslusykri á meðan
glassúrinn er enn blautur. Notið
þykkan hvítan glassúr til að
búa tfl borða neðan við kápuna
og á húfu og sáldrið hvítum
perlusykri yfir. Málið hendur og
skegg hvítt og notið rauðan og
grænan glassúr til að búa til
andlit á jólasveininn. Stígvélin
og beltið á að lita svart (ath!
gott að nota litlar sprautur til
að setja glassúrinn á).
Jólagœs
Búið til snið eftir mynd. Skerið
kökurnar út. Málið búk gæsar-
innar hvítan. Setjið niðurskorn-
ar möndlur á stélið áður en
glassúrinn hefur þornað. Bíðið
eftir að glassúrinn þorni. Litið
svolítinn hluta glassúrsins gul-
an, annan rauðan og smáhluta
brúnan. Málið gogginn og fæt-
urnar gula, búið til slaufu rnn
hálsinn með rauða glassúrnum
og auga úr örlitlum brúnum
glassúr.
|
¥
Köku-
snið
Jólasveinn
Halastjarna
Að síðustu ein sem er fremur
ætluð til skrauts en átu.
Búið til snið og skerið kök-
urnar út eftir því. Búið til þunn-
an gulan glassúr (skiljið eftir
smá hvítan þykkan áður en þið
þynnið og litið gulan). Málið
bæði stjörnuna og halann.
Sáldrið gullglimmeri á stjörn-
una og silfurglimmeri á halann.
Málið þrjár rendur á halann
með þykkum hvítum glassúr.
Raðið htlurn gylltum kúlum á
rendurnar á meðan glassúrinn
er enn blautur.
Magaóþægindi
og brjóstsviði
Silicol bætir meitinguna.
Silicol verndar okkur fýrir óæskilegum
eiturefnum.
Silicol er hrein náttúruafurð án hliðarverkana.
Silicol hjálpar.
Fæst i apótekinu.
Jólastemimiing
í eldhúsinu
Leiðist þér að baka fyrir
jólin og gerir það af ein-
tómri skyldurækni? Ein í
eldhúsinu, sveitt(ur) og
þreytt(ur) og vildir miklu
frekar vera að gera eitthvað
annað? Ef svo er gæti verið
ástæða til að staldra við og
huga að því hvort ekki megi
haga bakstrinum öðruvísi.
Hvernig væri t.d. að fá aðra
í fjölskyldunni til að aðstoða
við baksturinn? Kveikja
kannski á kerti og ekki
skaðar að setja góðan jóla-
disk í geislaspilarann? Hver
veit nema þá verði það sem
áður var bara eitt af því
sem „þurfti að gera“ að
ljúfri og skemmtilegri sam-
verustund sem kemur öllum
í fjölskyldunni í sannkallað
jólaskap. Bökum frekar
minna og njótum meira
þess sem við gerum. AI
Jólagœs
Halastjarna
NYTT
KOMIÐ MEÐ
YKKAR EIGIN
UPPSKRIFT
OG LÁTIÐ OKKUR
EFTIR ERFIÐIÐ
ERUM ÞEGAR FARIN
AÐ TAKA NIÐUR PANTANIR
ÁLAUFABRAUÐI
HÚSMÆDUR
VERIÐ TÍMANLEGA
MEÐ PANTANIR
Á BQTNUM FYRIR JÓUN
-—---
* . "
NORÐLENSKAR HÚSMÆÐUR - VIÐ ERUM TIL ÞJÓNUSTU REIÐUBÚIN
að á að gefa börnum brauð..
!t-' wm
Brúnir svampbotnar
Hvftir svampbotnar
sbotnar
Brúnir marensbo
Súkkulaðimarei ns
Kókosmarens
marens nýtt
Kornflexrr
Krydd bití
Randalínur
..fuí
TRYGGVABRAUT & BREKKUGOTU
ATH: flSmHSIMANÚMER 461 4010
J.