Dagur - Tíminn

Dagsetning
  • fyrri mánuðurdesember 1996næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    1234567
    891011121314
    15161718192021
    22232425262728
    2930311234
    567891011

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Blaðsíða 9
íElixgur-Símrátn Laugardagur 7. desember 1996 - 21 Gítarprestur á Grenjaðarstað Glaður ómur af gítar- slœtti og söng bergmál- aði um hlöðin á prests- setrinu á Grenjaðar- stað íAðaldal, þegar blaðamaður Dags-Tím- ans átti þar leið um í sunnudagsbíltúr sínum um Þingeyjarsýslur um síðustu helgi. Rétt eins- og jólasveinninn Gátta- þefur rann á lyktina af laufabrauði, gekk blaðamaður á hljóðið þar sem börnin í Aðal- dalnum sungu hátt og snjallt um jólin og Jesú- barnið. Jólaklukkur klingja, kalda vetrarnótt, börnin sálma syngja, sœtt og ofurhljótt. Að loknum kirkjuskólanum á Grenjaðarstað stilltu skólabörnin sér upp til myndatöku. Svona eru Þingeyingar í dag. Myndin Sigurður Bogi. Kirkjugestir voru á ýmsum aldri. Hér sjáum við einn þann yngsta, Guð- mund Helga Bjarnason frá Aðalbóli. „Hann er stórfrændi minn,“ segir presturinn. messað nema tvisvar til þrisvar á ári. Ekki er ástæða til annars, enda telur sóknin eklci nema 17 manns. Enginn messa á að- fangadagskvöld „Jú, um þetta leyti fer maður að huga að ræðunum í jóla- messunum. Punktar niður hjá sér ef manni dettur eitthvað í hug,“ segir Sigurður. Það er nokkuð óvenjulegt að hann sem sóknarprestur í stóru sveita- prestakalli syngur enga messu á aðfangadagskvöld. Ástæðuna segir hann hins vegar einfald- lega vera þá að messur á því kvöldi henti illa fyrir sveitafólk, sem bundið sé við mjaltir í íjós- um sínum langt fram eftir Litla stúlkan með eldspýturnar. Freyja Steingrímsdóttir kveikir á fyrsta kertinu í aðventukransinum. kvöldi. Sinn trúarlega skammt á því kvöldi fá sóknarbörnin einfaldlega í útvarpsmessunni. - Hins vegar er íjölmennt í messu klerksins á Grenjaðar- stað þegar hann stígur í stólinn á jóladag og öðrrnn degi jóla; hvort heldur er í Nesi, á Einars- stöðum, Þverá eða á Grenjaðar- stað. -sbs. Kirkjuskóli fjórða hvern sunnudag. Presturinn efnir til kirkjuskóla fyrir yngstu sóknarbörnin á fyrsta sunnudegi í hverjum mánuði. Fyrir hádegi er samverustund í Einarsstaðakirkju og eftir há- degi á Grenjaðarstað. Farið er með bænir, sungið er saman, farið í leiki og sitthvað fleira. Þessu kirkjustarfi stjórnar gít- arleikarinn og sóknarprestur- inn sr. Sigurður Ægisson, sem þjónað hefur í þessu prestakalli nú í tæplega tvö ár. „Það er enginn prestur með- al jafningja sinna, nema hann sé með mikið og gott barnastarf í sinni sókn. Við þennan þátt kirkjustarfsins er sífellt meiri rækt lögð við. Oft byrjar barnastarfið hér í sókninni með mæt- ingu um 50 barna, en þegar h'ður á veturinn þynnist hópurinn oft. Fer kannski niður í 30 til 40 börn þegar komið er fram yfir ára- mót,“ segir hann. Um 700 sóknarbörn í Grenjaðarstaðarprestakalli, sem telur um 700 sóknarbörn, er messað Qórðu hverja helgi, það er síðustu helgi hvers mánaðar. Messur eru sungn- ar í Nesi, á Grenj- aðarstað og á Ein- arsstöðum. Annan hvern mánuð eru sungnar íjöl- skyldumessur og þá er áherslum í helgihaldinu hag- að þannig að öll- um aldurshópum verði boð- skapurinn auðskiljanlegur. - I ijórðu kirkjunni í prestakallinu, að Þverá í Laxárdal, er ekki „Það er enginn prestur meðal jafningja sinna, nema hann sé með mikið og gott barnastarf í sinni sókn. “

x

Dagur - Tíminn

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1670-2115
Tungumál:
Árgangar:
1
Fjöldi tölublaða/hefta:
187
Gefið út:
1996-1996
Myndað til:
31.12.1996
Útgáfustaðir:
Efnisorð:
Lýsing:
Fylgir árgangsmerkingu bæði Tímans og Dags. Gefið út samtímis í Reykjavík og á Akureyri. Stundum er efni ekki alveg samhljóma, t.d. á forsíðu þar sem norðanmenn prenta efni er snertir þá en birtist á innsíðu í sunnanútgáfunni.Útgáfa breytist á ný 3. okt. 1997 er Tíminn fellur úr heiti blaðsins og haldið er áfram að gefa út Dag, en þó með sameiginlegri og áframhaldandi árgangsmerkingu Dags og Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað: 235. tölublað (07.12.1996)
https://timarit.is/issue/188678

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

235. tölublað (07.12.1996)

Aðgerðir: