Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Blaðsíða 7
'*r*rh*- i i r r*; Jlagur-®mTmrt Laugardagur 7. desember 1996 -19 Ég er ekki pabbapólitíkus Húti vakti athygli fyrir vaska ræðumennsku á flokksþingi Framsóknar- manna nýlega. Og ekki minnkaði hrifningin síðar þegar hún tók lagið fyrir flokksmenn. Hver er þessi stúlka? Hún heitir Hildigunnur Árnadóttir, er 18 ára, og stundar nám við Menntaskólann á Akureyri. Fædd í Reykjavík en uppalinn í sveitinni, nánar tiltekið í Fremsta-Felli í Kinn. Á Akur- eyri býr hún ásamt systur sinni, sem einnig er í fram- haldsskóla, og íbúðin ber þess greinileg merki að hér búa nemendur. Stundartöflur upp mn alla veggi og skrifborðin á sínum stað. Hvernig stóð á að hún flutti þessa ræðu? „Það var hringt í mig og ég spurð hvort ég væri fáanleg til að taka þetta að mér. Mér fannst þetta gott tækifæri og heiður þannig að ég sagði já,“ svarar hún; en sú sem hringdi hafði fylgst með Hildigunni í ræðumennsku í skólanum í fyrravetur. Stress- uð? „Jú, mjög. En samt... Ásdís María Franklín sagði einhvern tímann að það væri ekkert mál að koma fram fyrir fullt af fólki í Mílanó en erfiðara væri að koma fram á Akureyri fyrir framan vini sína og jafnaldra. Þarna var ég í Háskólabíói fyr- ir framan 800 manns en fann strax mjög góðan anda úr salnum. Þannig að þetta var bara mjög gott.“ Ábyrgð hinna ungu í ræðunni kom Hildigunnur inn á menntamálin og gagnrýndi þar ýmislegt sem henni fannst að mætti betur fara. En það er ekki nóg að skammast út í ráðamenn að hennar mati. Unga fólkið þarf líka að taka ábyrgð og sýna dugnað. „Auðvitað er til fullt af dug- legu fólki en mér finnst engu að síður vanta metnað; virki- lega framagirni. Að unga fólkið vilji gera eitthvað fyrir landið sitt. “ Hún situr við eldhúsborð- ið, notar hendurnar óspart til að leggja áherslu á mál sitt, og augun segja jafnvel meira en orðin. Hér er komin stúlka með hugsjón. „Mig langar til að gera eitthvað til að hjálpa. Ég veit bara ekki ennþá hvað.“ En ef viljinn og metnaðurinn er fyrir hendi, er brautin þá bein og breið fyrir ungt fólk á íslandi í dag? „Viljinn er auð- vitað undirstaðan en vegurinn er grýttur. Því má hins vegar ekki gleyma að til að fá eitt- hvað sætt þarf að fara í gegn um eitthvað súrt. Þetta er grundvallaratriði en sumir fatta þetta ekki. Þeim finnst fínt að fá útborgað um hver mánaðamót en vilja helst hafa sem minnst fyrir því. Mér finnst vanta meiri dugnað, finnst ég bara sjá það hjá eldra fólkinu." Pólitíkin ekki svo slæm Er ungt fólk nógu meðvitað? „Nei, alls ekki. Ég var það í rauninnni ekki heldur. Þessi ræða breytti miklu; ég fór að hugsa.“ Var þá ekkert erfitt að skrifa hana? „Ég fékk algjöran hnút í magann í byrjun. Hringdi um leið í pabba minn. Alveg týpískt. Hann gerði sér ferð, elsku karlinn, og við sett- umst niður saman. Hann kom meira með spurningar en ég varð sjá um að hugsa og skrif- aði ræðuna auðvitað sjálf.“ Líst henni eitthvað á pólitík- ina? „Hún er ekki svo slæm. í rauninni er bara gaman að velta stjórnmálum fyrir sér.“ Þú ert af framsóknarfólki? „Ég kem ekki af pólitísku heimili. Á okkur hefur aldrei verið neinn þrýstingur og ég er ekki pabbapólitíkus.“ Hún þrætir þó ekki fyrir að í sér renni grænt blóð enda ekki ómerkari mað- ur en sjálfur stofnandi Fram- sóknarflokksins, Jónas frá Hriflu, langafabróðir hennar. En eiga þær samleið, hún og pólitíkin, í framtíðinni? „Ég er ekki frá því. Ég er í það minnsta orðin volg. Framtíðar- starfið mun ég þó velja með það í huga að ég geti séð fyrir mér og mínum og ekki hægt að treysta á pólitíkina í því sam- bandi. Svo er það söngurinn, ég stefni að því að klára söng- námið.“ Þú söngst einmitt í flokksþinginu? „Já, ég söng tvö lög þar. Það var mjög gaman.“ Enginn taugaóstyrkur þar? „Ég er vön að koma fram. Hef sungið á árshátíðum, skóla- skemmtunum, músíktilraunum og fleira.“ Áhuga á fólki Söngelskur pólitíkus! Stendur þá valið á milli stjórnmálanna og söngsins? „Nei, ég myndi ekki segja það. Ég er á félags- fræðibraut og hef alltaf langað að kynna mér eitthvað í tengsl- um við sálfræði. Bókmenntir heilla mig líka. Mig langar tU að ferðast tíl annarra landa, kynnast menningu, aðallega fólki. Ég hef gaman af fólki. Eitthvað í sambandi við fortíð hrífur mig, fólk sem hefur átt erfitt. Mig langar að geta hjálpað, hlustað og verið tU staðar. Það er þetta sem ég hef mestan áhuga á. Mannleg nálgun og fá að grafa svoh'tið inn í fólk.“ AI Vantar metnað s Iokkur unga fólkið vantar metnað. Það er gegnum gangandi hugsunarháttur hjá mörgum okkar að allt reddist og við ætlumst til þess að fá allt fyrirhafnar- laust... ...Vandamálin og erfið- leikarnir eru til þess að herða okkur og það þarf hörku til að stjórna þessu lajidi sem fljótlega verður í okkar höndum. (Úr ræðu Hildigunnar sem hún flutti á flokksþingi Framsóknar- flokksins.) Hildigunnur Árnadóttir: „Ég fékk algjöran hnút í magan í byrjun. Hringdi um leið í pabba minn. Alveg týpískt....“ Mynd: GS

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.