Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Blaðsíða 8
20 - Laugardagur 7. desember 1996 iDagur-Œmttrm Talan þrettán er í augum þorra manna tákn um ólán. Það var þó í græskulausu gríni sem við vor- um að tala um það okkar á milli að við þyrftum að losa okkur við einn úr hópnum til að losna undan álögunum. Við vor- um þrettán saman að heíja helgarferð sem verið hefur fast- ur dagskrárliður í mörg ár hjá hjálparsveitinni. Sviplegt slys átti þó eftir að breyta þessari ferð á þann hátt að við munum seint gleyma henni. Takmarkið var Eyjaíjallajök- ull. Fyrir valinu varð Grýtu- tindsleið sem hefst norðvestan til í Eyjaíjallajökli. Þaðan var ætlimin að ganga á ijallaskíðum upp á tind jökulsins, gista í snjóhúsum eða bara á jöklinum og skíða svo niður að sunnan- verðu og að sjálfsögðu enda í Seljavallalaug. Börurnar með Kristjáni hffðar um borð f TF-SIF. Þrettán á ferð Vantar eina ísöxi Þegar við komum inn í gilið og brattinn fór að aukast, kom fljótlega í ljós að snjórinn var talsvert harður í brekkunum. Við urðum íljótlega að gefast upp á skíðunum og þau voru því fest á bakpokana. Skrefið þyngist við þetta og allir taka upp ísaxirnar sínar. Þá kemur í Ijós að vegna misskilnings eru bara tólf ísaxir með í ferðinni og bílarnir eru farnir. Við látiun gott heita og höldiun áfram upp gilið. Það er ekki nema þessi eina brekka sem er svona brött, fyrir ofan taka við sléttar jökul- brekkur sem auðvelt er að ganga á skíðunum og því engin þörf fyrir ísaxir. Við förum því í halarófu og mjökiunst upp gilið. Snjórinn verður sífellt harðari og því þræðum við meðfram klettaveggjunum og reynum að notfæra okkur gamla skafskafla þar sem auðveldara er að sparka spor í hjamið. GUið er ekki nema um 400 metra hátt og jafn halli nema að rétt efst í því er nokkuð brattur kafli. Þetta flokkast þó fráleitt undir klifur, þetta er bara brött snjó- brekka sem á góðum degi er auðveld uppgöngu. Ég stoppa við brúnina til að fylgjast með því að allir komist heilu og höldnu upp og fer að- eins til hhðar th að hleypa þeim fram fyrir. Þá tek ég eftir því að félagi minn, Kristján Birgisson, er einn þeirra sem ganga áfram inn skáhna talsvert á eftir hin- um og því einn á ferð. Hann var þá stundina sá eini sem ekki var með ísexi í hendinni og því kaha ég th hans að bíða, við skyldum höggva spor íyrir hóp- inn aUa leið þó mesti brattinn væri yfirstaðinn. En Kristján sem hélt á skíðastöfum í hend- inni taldi sig öruggan á frekar sléttum skaflinum. Ég h't undan og fer að fylgjast með þeim sem áttu skammt ófarið upp á brún- ina en heyri þá skyndUega hróp. Ég h't við og sé að Krist- ján hefur fallið við, hann renn- ur niður hallann og stefnir beint á mig. Hvað get ég gert? Gat ég með einhverju móti stoppað hann? Þegar ég lít við er hann þegar kominn á nokkra ferð og ekki langur tími til stefnu. Ég stóð næst þeim stað sem hann stefndi að á brúninni. Þangað voru ekki nema tveir metrar. Gat ég komið mér fyrir og gripið í hann? Eldfljótt mat á aðstæðum sagði nei. Þar sem ég stóð á brúninni í talsverðum haUa á steinvölum sem stóðu út úr þunnum ísnum með kletta- fláann undir var engin aðstaða tU að höggva ísexinni á kaf eða krækja henni bak við stein. Og ég stóð svo Ula að ég hefði verið álíka mikil fyrirstaða og snjó- korn enda Kristján á annað hundrað kfló með pokanum sín- um. Gat ég hent mér á hann og reynt að stöðva okkur báða með ísexinni minni? Þetta væri örþrifaráð sem ekki gæfí helm- ingslíkur á árangri. Ferðin á honum var þegar orðin of mikil tU að lfldegt væri að hægt væri að stöðva sig með ísexi í ísnum sem var í brekkunni fyrir neð- an. Niðurstaðan var að ekkert væri hægt að gera úr því sem komið var, enda ekki mikiU tími tU aðgerða. Ég horfði ekki á eftir Krist- jáni niður gUið. Ég vissi að hann myndi þurfa á mér að halda eins fljótt og auðið væri. Um leið og ég sé hann renna framhjá fótunum á mér fram af brúninni, sný ég mér upp í brekkuna og fer að taka af mér bakpokann. Með því að skilja hann eftir get ég verið fljótari í Kafli úr bókinni „Upp á líf og dauða“ sem fjallar um æf- ingar og alvöru í starfi björgunar- sveita. Höfundur er Björgvin Richards- son. Millifyrirsagnir eru blaðsins. förum en eUa. Einhver sem horft hafði á eftir Kristjáni segir mér að hann hafi lent á kletti á miðri leið, greinUega á mikiUi ferð því hann hafi kastast frá honum aftur. Þetta leit ekki vel út. Ég legg strax af stað niður. Ég sný andlitinu að brekk- unni og lappirnar ganga eins og bullustrokkar upp og niður þeg- ar ég sparka spor í hjarnið. Að finna jafnvægi milli þess að fara hratt og gæta öryggis er erfitt og freistingin að snúa sér við og renna sér bara fótskriðu er nær óyfirstíganleg. En áfram mjak- ast ég niður brekkuna og kemst í aðeins mýkri snjó. Þar er hægt að setjast á rassinn og renna sér niður. Ógnvekjandi sjón Síðustu hundrað metrarnir að Kristjáni eru teknir á hlaupum. Þar blasir ógnvekjandi sjón við. Kristján sem skömmu áður hafði verið frískur íjallafari, fuUur af lífsgleði og líkams- þrótti, lá nú stórslasaður við fætur mér og þurfti greinilega að komast á sjúkrahús með hraði. Ég byrja á því að kanna lífsmörk, púlsinn er kraftmikill en nokkuð hraður, hann er að minnsta kosti ekki í Iosthættu ennþá vegna blóðleysis. Það er svoh'tið blóð í snjónum í kring en ekkert til að hafa áhyggjur af enn sem komið var. Meðvit- undarstigið er hins vegar veru- lega skert, það er eins og hann sé að svamla við yfirborðið og heyri í mér annað slagið en detti út þess á milli. Það var ekki þörf á frekari skoðun til að taka ákvörðun, hann þurfti að komast undir læknishendur sem fyrst. Helga Magnúsdóttir, þyrlulæknir, að gera sjúklinginn kláran fyrir hífingu. Myndir: Einar Stefánsson Ég öskra „þyrlu“ af öllum kröftum upp gilið og sný hönd- unum fyrir ofan höfuðið. Þrír félagar mínir eru á leið niður gilið og þeir selflytja skilaboðin upp brekkuna upp á brún. Hlúð að hinum slasaða Ég sneri mér að frekari skoðun á áverkum Kristjáns. Hann gat stundum talað við mig en leið út af þess á milli. Hann kvartaði yfir miklum verk í mjöðmunum og yfir kulda. Hann lá á grúfu í skaflinum og áræddi ég ekki að hreyfa hann að sinni. Ég tók púlsinn reglu- lega og leitaði að áverkum á hálsi og hrygg. Sem betur fer fann ég enga og var það léttir, því mænuáverkar eru það sem við eigum einna erfiðast með að varast með takmarkaðan biínað til fjalla. Fljótlega komu þeir þrír sem fóru niður á eftir mér. Jón Haukur Steingrímsson kom fyrstur og hjálpaði hann mér að leita að frekari áverkum. Einar Stefánsson kom næstur og hlut- verk hans næstu stundirnar var að fylgjast með meðvitundar- ástandi og lífsmörkum Kristjáns og tala við hann. Árni Jónsson kom síðastur, en hann hafði komið með bakpokann sinn með sjúkragögnum og fleiru. Þegar Árni kom vorum við að verða tilbúnir til þess að velta Kristjáni við, en til að takmarka hreyfmguna vildum við gera margt í einu. Áður en við hreyfðum hann vildum við koma á hann hálsspelku til ör- yggis þó við hefðum ekki fundið neina áverka á hálsi. Árni fór því í það að búa til hálsspelku úr einangrunardýnu. Kristján kvartaði mikið undan kulda og því þurftum við að koma hon- um ofan í svefnpoka. Það var best gert með því að velta hon- um ofan í pokann um leið og við snerum honum. Þegar háls- spelkan var komin á sinn stað stungum við fótunum á honum í pokann og veltum honum yfir á bakið. Og þá var bara að bíða eftir þyrlunni. Þeir áverkar sem við höfðum fundið fram að þessu á Krist- jáni voru töluverð svöðusár á afturendanum og síðar kom í Ijós að rifnað hafði inn í enda- þarm. Olnboginn á vinstri hendi var mölbrotinn og stóðu bein- endarnir út úr holdinu á þrem- ur stöðum. Við vissum að eitt- hvað var að ökklanum því hann kvartaði undan verk en gerðum ekkert í því þar sem hann var vel spelkaður í ijallaskónum. Síðar kom í ljós að hann var kurlbrotinn og öll liðbönd slitin. Auk þess var ein táin brotin. Við gerðum okkur grein fyrir að eitthvað var að mjaðmagrind- inni en Kristján kvartaði einna mest undan sársauka í henni. Þar gátum við h'tið gert nema reyna að hagræða honum en mjaðmagrindin reyndist tví- brotin. Auk ijölda smáskráma kom síðar í ljós að fimm rifbein höfðu brotnað og þrír neðstu hryggjarliðirnir höfðu pressast saman. Við bjuggum um þau sár sem við sáum og reyndum að stöðva blæðingar en að öðru leyti var það h'tið sem við gátum gert að svo stöddu. Og nú tók biðin við. Við reyndum að láta krakkana uppi vita hvernig ástandið væri og fengum að vita á móti að þyrlan væri á leiðinni.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.