Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Side 1
BIAÐID.
278. TBL. — 71. OG 7. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1981
Hvaðgerist
íPóllandi?
— sjá bls. 4-5
Iferkfallí
nokkrum verk-
smiðjum
ognámum
— sjá erl.fréttir
bls. 8-9
Frelsieða
kommúnismi
— sjá leiðara bls. 14
Munið
jólagetraunina
— sjábls.2
Askoranirum
uppskrift
— sjá neytendasíður
bls. 12-13
Stúlkafrá
Homafirði datt
ílukkupottinn
— sjá getraunasíðu
bls.22
Sandkom
— sjábls.2
Svarthöfði
— sjábls.4
Q DAGAR
® TILJÓLA
ftjálst, óháð dagblað
Sslendingum gert nýstárlegt tilboð:
Fiskborgarar gerðir
úr loðnu og úrgangi?
Mun ný tækni í framleiðslu fiskaf-
urða valda byltingu í íslenzkum
fiskiðnaði?
Framámenn í íslenzkum fiskiðnaði
koma sjálfsagt til með að velta þessari
spurningu rækilega fyrir sér á næstunni
í framhaldi af kynningarfundi sem
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
stóð fyrir í gær.
Norðmaður nokkur, Niels Wold að
nafní, fulltrúi lítils norsks fiskiðnaðar-
fyrirtækis, Væröy fiskeindustri,
kynnti fiskrétti sem framleiddir eru
með áður óþekktri aðferð, svokallaðri
Swanson-tækni. Ekki hefur verið
upplýst í smáatriðum í hverju þessi
aðferð er fólgin en óhætt er að segja að
í hugum margra mun hún virka sem
hrein töfrabrögð.
Bandarískur matvælaprófessor, dr.
Swanson, er sagðuri höl'undur þessar-
ar tækni. Aðferð har.s mun í stórum
dráttum vera á þá leið að kjötið af
fisknum er skilið frá öðrum hlutum
með efnafræðilegum aðgerðum. Úr
kjötinu er gert fiskfars sem síðan má
nota til framleiðslu úrvals rétta af
ýmsu tagi.
Dr. Swanson heldur því fram að
ekki sé til sá fiskur í sjónum, sem ekki
borgi sig að nýta. Hann telur ýmsa
smáfiska, sem hingað til hafa þótt
illnýtanlegir til annársenbtæðslu vegna
smæðar og þær afurðir al fisknum sem
falla til á skurðarborði fullboðlegan
mannamat.
Niels Wold bauð mönnum á
kynningarfundinum í gær að bragða á
ýmsum nýstárlegum réttum, sem gerðir
eru með Swanson-tækninni. Má þar
nefna fiskborgara úr loðnu, fiskfingur
úr gráröndungi og svokallaðan
„kjöthleif” úr þorski. Þessir réttir
brögðuðust ágætlega í munni.
Niels Wold býður mönnum að bragða á loðnuborgara. Þeir eru sagðir fyllilega sambœrilegir við
aðra fiskborgara h vað gœði snertir, en meira en helmingi ódýrari. D V-mynd: Bjarnleifur
Swanson-tæknin var fyrst kynnt í
Noregi fyrir þremur árum. Norskir
hafa hins vegar sýnt þessu sáralítinn
áhuga. Veldur það grunsemdum um að
ekki sé allt eins glæst og af er látið.
Dr. Swanson hefur boðizt til að
smiða vél, sem framleiða á fiskrétti
rneð aðferð hans. TH þess þarl' 150
þúsund dali. Væröy-fyrirtækið er hins
vegar það lítið að það hefur ekki
bolmagn til að standa eitt undir þeim
kostnaði sem fylgir. Vegna áhugaleysis
annarra í Noregi leitar það nú
samvinnu við íslenzka aðila.
-KMU.
Rafmagnsleysi
íReykjavík
Um hálfáttaleytið í morgun varð
rafmagnslaust t tórum hluta Reykja-
víkurborgar.
Að sögn Sigurgisla Eyjólfssonar,
vaktmanns hjá Rafmagnsveitu Reykja-
vikur, má rekja ástæðu rafmagnsleysis-
ins til eins rofa i aðveitustöð þrjú
sern leysti út háspennustreng á
svæðinu. Fljótlega var hægt að komast
fyrir bilunina á stórum hluta svæðisins.
Þegar blaðið fór í prentun var þó enn
rafmagnslaust á svæðinu frá Lækjar-
teig upp með holtum og á Laugavegi.
Var áætlað að hægt yrði að konta þeim
hluta borgarinnar í samband lljótlega
upp úr hádeginu.
Samhliða rafmagnsleysinu truflaðist
simasamband í miðbænum. Ástæðuna
má rekja til rafmagnsleysis í miðbæjar-
símstöðinni. -SER.
Lýfingssfaðahreppur:
Samþykkfi
Blöndu
Langur og allharður sveitarfundur í
Lýtingsstaðahreppi i Skagafirði, sem
haldinn var í gærdag, samþykkti að
lokum með 61 atkvæði gegn 46 að
halda opnum leiðum til samkomulags
um virkjun Blöndu en hafna núgild-
andi boði rikisstjórnarinnar. Áður
hafði verið fellt með 60 atkvæðum
gegn 48 að hafna alfarið virkjunarleið 1
með Blöndu sem næstu stórvirkjun.
-HERB.
Enn erfiðleikar hjá Jökli hf
Skipverjum sagt upp og togaranum lagt!
Skipverjum á togaranum Rauðanúpi
á Raufarhöfn hefur verið sagt upp
störfum. Togaranum var síðan siglt til
Akureyrar þar sem hann liggur nú
bundinn við bryggju.
Rauðinúpur var nýkominn úr veiði-
ferð síðastliðinn fimmtudag og voru
skipverjar að búa sig undir að halda út
aftur. Skipstjórinn hafði þá samband
við þá og tilkynnti þeim að þeir þyrftu
ekki að mæta til skips. Hel'ði frani-
Kjartansson, lagt fyrir sig að segja
mannskapnum upp. Var öllum skip-
verjum, sem höfðu viku uppsagnar-
frest, sagt upp, um 10—12 manns.
„Þetta kom eins og reiðarslag yfir
mann,” sagði einn skipverja í samtali
við DV í morgun, „enda hafa þeir ekki
lagt í vana sinn að segja mönnum upp
þótt skórinn kreppti að.”
Á föstudag fóru skipverjar, að
tnga á uppsögnununt. Boðuðu þeir
stjórn og framkvæmdastjóra Jökuls
hf., á sinn fund. Aðeins þrir al
stjórnarmönnunum mættu á hann og
fór einn þeirra „í fússi” eftir skantma
stund. Að sögn skipverjans benti allt
sem kom fram í viðræðum við hina
tvo stjórnarmennina til þess að þarna
hefði verið urn „geðþóttaákvörðun
framkvæmdastjórans að ræða en ekki
ákvörðun stjórnarinnar”.
stjórn Jökuls hf. og spurði liann hvort
stjórnin hefði tekið þá ákvörðun að
segja mannskapnum upp. „Nei,"
svaraði Karl en vildi ekki tjá sig frekar
um málið.
Á laugardag var haldinn fundur í
hreppsnefnd og kom þar frant sú tillaga
,að senda skipið aftur út til veiða. Var
ekki talinn grundvöllur fyrir þvi eins og
staðið hel'ði verið að uppsögnunum.
t D! Vh i/áf| parj bér aó vei jajól 1agjöfina
48 síðna jólagjafahandbók fylgir blaðinu í daf 5—DV88 síður—Tvö blöð j