Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1981
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Pólland:
Verkfall f nokkram
verksmiðjum og námum
Verkfallsverðir umkríngdir af hermönnum. — Fréffasamband rof ið.
Eining
starfar
Brian Mooney, fréttaritari Reut-
ers, kom þeim fréttum til fréttastof-
unnar, áður en símtal hans var slitið,
að Eining starfaði í blóra við herlögin
og hefði látið frá sér fara upptalningu
á námum og verksmiðjum, þar sem
vinna hefur verið lögð niður.
Verkalýðshreyfíngin hafði einnig
sagt honum, að herflokkar hefðu
umkringt nokkrar af þessum verk-
smiðjum og virtust í gærkvöldi búa
sig undir að fjarlægja verkfallsverði í
skjóli nætur, þegar útgöngubannið
ríkir.
Aðrar fréttastofur höfðu misst
sambandið við sina fréttaritara
töluvert fyrr.
Agitatorar
Varsjárútvarpið sagði, að í
nokkrum verksmiðjum — þar á
meðal fáeinum í Varsjá — hefðu
„agitatorar að atvinnu”, uggandi um
eiginhagsmuni, valdið ringulreið og
gert erfitt fyrir um að vinna gæti
hafizt með eðlilegum hætti. Hefðu
þeir hvatt til andstöðu við núgildandi
lög.
,,Það er unnið í flestum námum,
stáliðjuverum, léttaiðnaði og mat-
vælaverksmiðjum. samgöngur ganga
eðlilega fyrir sig, þar sem þess er
kostur,” sagði í fréttum Varsjárút-
varpsins.
Neita aö yfir-
gefa vinnustaöi
Eining skýrði frá því í gærkvöldi,
að námamenn í Sflesía hefðu neitað
að yfirgefa vinnustaði sina. sagt var,
að sett hefði verið á laggirnar verk-
fallsnefnd eða bráðabirgðastjórn,
sem stýrði aðgerðum i fjarveru
ýmissa foringja, en þeir höfðu verið
handteknir um helgina. Sú stjórn var
sett á laggirnar i Lenínskipasmíða-
stöðinni í Gdansk. Þeirri sömu, sem
ól Einingu af sér fyrir sautján mán-
uðum.
Dauöarefsing
Samkvæmt herlögunum má halda
hinum handteknu í varðhaldi svo
lengi sem neyðarástandið varir.
Verkamenn geta átt yflr höfði sér
fangelsi fyrir að neita að hlýða fyrir-
mælum eða standa að verkföllum.
Dauðarefsing getur legið við sumum
brotum.
Ferðafrelsi er takmarkað, starf-
semi verkalýðsfélaga bönnuð, opinb-
erir fundir bannaðir og ekki koma
önnur blöð út, en helztu opinberu
málgögn.
Samband flestra vestrænna frétta-
manna í Póllandi við fréttastofur
þeirra vestan tjalds hefur verið rofið,
en frétzt hefur þó af verkföllum á sjö
stöðum í Póllandi.
Varsjárútvarpið segir, að allt sé
með kyrrum kjörum í Póllandi, og
víðast í gær ,,hafi flest fólk mætt
stundvíslega til vinnu”. — „Menn,
sem hafa undirróður að atvinnu
sinni” reyni þó að koma á ringulreið.
Lenínskipasmíðastöðin í Gdansk: Vagga Einingar, enda hefur hreyfingin nú myndað þar bráðabirgðastjórn.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Sameinuðu-
þjóðanna
Javier Perez de Cuellar, 61 árs gam-
all lögfræðingur og diplómat frá Perú,
verður tilnefndur og látinn sverja emb-
ættiseið í dag sem fimmti fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Hann tekur til siarfa 1. janúar, þegar
hann leysir af hólmi Kurt Waldheim
hinn austurríska, sem gegnt hefur starf-
inu síðan 1972. — Waldheim hafði
boðið sig fram til þess að vera þriðja 5
ára tímabilið en Kína beitti neitunar-
valdi sínu gegn kosningu hans í öryggis-
ráðinu.
öryggisráðið samþykkti de Cuellar
einróma á fundi fyrir helgi og það er
aðeins formsatriði að bera samþykkt-
ina upp fyrir allsherjarþingið i dag.
Jólahlé átti með réttu að gera á
störfum allsherjarþingsins í dag, en það
hefur orðið að framlengja þingið til
föstudags til þess að ljúka málum.
De Cuellar er fyrsti framkvæmda-
stjórinn sem á hið opinbera tungumál
Sameinuðu þjóðanna, spönskuna, að
móðurmáli. Hefur hann óskað þess, að
svardaginn verði á spönsku. Forverar
hans fóru allir með hann á ensku.
Perúmaðurinn verður fyrsti fram-
kvæmdastjórinn, sem hefur eigin
reynslu bæði sem fulltrúi áallsherjar-
þinginu og sem starfsmaður Samein-
uðu þjóðanna. Hann var fastafulltrúi
Perú, en gerðist siðar aðstoðarfram-
kvæmdastjóri. Hann gekk aftur í
utanríkisþjónustu Perú í maí síðasta
vor.
Óveður hrjáði marga um siðustu helgi. A austurströnd Bandarikjanna náði snjór-1
inn 25 cm. og var eins og sjá má á myndinni vel skíðafært i Boston, en þessi greip |
skiðin til að komast í vinnu sina.
Gólan-
hæðir
hérað í
ísrael
ísrael á yfir höfði sér í dag gagnrýni
vina jafnt sem fjandmanna fyrir nýja
lagasetningu, þar sem Gólanhæðirnar,
herteknar í Sýrlandi í sex daga stríðinu
1967, eru gerðar að annexíu í ísrael.
Stjórnarfrumvarpinu var hraðað í
gegnum Knesset (ísraelsþing) á einum
degi, en það var lagt fram í gær og af-
greitt eftir þrjár umræður.
Begin forsætisráðherra sagði, að
ákvörðunin um að gera Gólanhæðirnar
að héraði i ísrael hefði verið haldið
leyndri fyrir Bandaríkjastjórn. — í
Washington létu talsmenn stjórnarinn-
ar orð falla um, að stjórnin liti þessa
þróun alvarlegum augum.
Arabaríkin fordæmdu einum rómi
þessa ákvörðun ísraels. Þar á meðal
Egyptaland. — Sýrland krafðist auka-
fundar í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna til þess að ræða refsiaðgerðir gegn
ísrael ef það ekki ónýtti þessi nýju lög.
Óveður veldur mikl-
um usla á Bretlandi
Kurt Waldheim hefur nú loks eignast
arflaka í framkvæmdastjórastarfinu
hjá Sameinuöu þjóðunum.
Mikið óveður gekk yfir Bretland nú
um helgina og olli það miklum usla.
Muna menn ekki eftii verra veðri á
þessari öld.
Strandgæzlumenn við Ermarsund
komust í hann krappann er þeir reyndu
að bjarga áhöfn flutningaskips sem rak
fyrir v.eðri og vindum með 200 km.
hraða á klst. Flutningaskipið, Bonita,
var skráð i Ecuador.
36 manna áhöfn var á skipinu og
drukknaði einn er mennirnir stykku í
ískaldan sjóinn. Hinum var bjargað um
borð í þyrlur og björgunarbáta.
Mikil ringulreið ríkti um landið
vegna óveðursins og fór rafmagnið af
stórum svæðum í sv-hluta þess. — 5
menn fórust þegar járnbrautarlest fór
af teinum í blindbyl.
FJestir flugvellir voru lokaðir.
Heathrow-flugvelli í London var þó
haldið opnum með aðstoð snjóplóga.
, A þjóðvegunum neyddist fólk unn-
vörpum til að skilja bíla sína efdr vegna
snjóþyngsla og lestarþjónusta fór úr
skorðum.
í borginni Shawbury, Midland,
mældust —25 gráður og er það lægsta
hitastig sem mælzt hefpr í Englandi.