Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Side 15
DAGBLAÐIÐ &VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMRER,19.81. 15 jafnvel þótt dómari hafi daemt þá til vistar á viðeigandi hæli. Hvað er „viðeigandi stofnun"? En hvað er viðeigandi hæli? Þeir sem að geðhjálp og fangahjálp starfa héldu ráðstefnu i sumar þar sem mál- efni geðsjúkra fanga voru rædd frá öllum hliðum. Það kom helst fram í máli manna að nauðsynlegt væri að reisa sérstaka stofnun til að meðhöndla geðsjúkra afbrotamenn. Lögreglan í Reykjavik hefur margoft' bent á það ófremdarástand sem rikir í borginni þegar brenglað og geðveilt fólk er læst inni í fangaklefum til bráðabirgða vegna þess að geðsjúkra- hús neita að taka á móti þvi til lækn- inga. Nokkrir menn dvelja nú á Litla- Hrauni, dæmdir til vistunar á ,,við- eigandi stofnun” eftir að þeir voru sýknaðir vegna geðveiki. Einn eða tveir menn dvelja á hælum í Svíþjóð af sömu ástæðu þótt flestir virðist á einu máli um að dvöl á geðsjúkrahúsi erlendis sé til lítillar hjálpar. En þeir eru fleiri sem eiga við geð- ræn vandamál að stríða og sitja í fangelsi eða hafa setið í fangelsi. Landlæknisembættið kannaði feril 72 fanga sem sátu í fangelsum í Reykjavík 1979. Átján prósent, eða nær einn af hverjum fimm, átti við geðræn vandamál að stríða. Ef bætt er við þeim sem brjálast um stundar- sakir og þeim sem sitja í eilífðarvist á Litla-Hrauni og erlendis þá er ljóst að hópurinn er stór. Talið er að um 300 manns séu í þeim hópi sem kalla má síbrotamenn og dvelja meira eða minna í fangels- um fyrir verknaði sína. Ef nær einn af hveijum fimm þeirra á við geðræn vandamál að stríða þá eru þetta rúm- lega 50 manns. Einn úr þessum hópi situr nú í gæsluvarðhaldi eftir hina hroðalegu líkamsárás í Reykjavík. Hinir dvelja ýmist í fangelsum, ganga lausir eða eru á batavegi. Dag- lega verður lögreglan að hafa afskipti af geðsjúku fólki vegna ýmiss konar brota, spellvirkja, óláta, misþyrm- inga, kynferðisbrotao.s.frv. Fæst af þessu fólki fær rétta með- ferð. Geðsjúkrahúsin líta á það sem afbrotamenn, jafnvel þótt afbrotin séu framin vegna geðveilu. Lögregla og fangelsi fá það hlutverk að glíma við afleiðingar af framferði geðveiks fólks en enginn telur það sitt hlutverk að takast á við orsökina. Fangaverðir í Reykjavík geta hrist fram úr erminni ótal frásagnir af því hvernig kolbrjálað fóik hefur þurft að dúsa í fangageymslum sólar- hringum saman vegna þess að geð- sjúkrahús neita að taka það til með- ferðar. Geðsjúkt fólk hefur í köstum sínum reynt að fyrirfara sér, slá höfði við veggi og atað fangaklefa eigin saur. Lýsingarnar eru viðbjóðs- legar og yfirþyrmandi að ekkert skuli aðgert. Dómsmála- yfirvöldum til skammar Fyrir 40 árum voru núverandi hegningarlög sett. Þá var gert ráð fyrir að geðsjúkir afbrotamenn skyldu sæta vist á viðeigandi hæli. Fjörutíu árum síðar er þetta hæli enn ekk,i til og bólar lítið á því, dóms- máláyfirvöldum til ævarandi skammar. Þótt maðurinn sem framdi ódæðis- verkið um heigina verði ekki úrskurð- aður ósakhæfur vegna geðveilu þá er ljóst að hann þarf á læknisaðstoð að halda. En það er ekki víst að hann fái hana. Geðlæknarnir sem munu rann- saka manninn til að fá úr því skorið hvort hann er sakhæfur eða ekki hafa skyldum að gegna við dómstólinn en ekki afbrotamanninn. Þeir munu ekkert hafa að segja um frekari meðferð á manninum. Hvort sem maðurinn verður sendur á Litla-Hraun sem dæmdur maður eða til viðeigandi vistar þá er ljóst að lækningu fær hann ekki á þeim stað, frekar en aðrir geðsjúkir eða geðveilir afbrotamenn. Þótt ráðist yrði í það að reisa ,,við- eigandi stofnun” hér á landi innan tíðar fyrir geðsjúka afbrotamenn þá liggur fyrir að slík stofnun kemst ekki á laggirnar fjnr en að nokkrum árum liðnum. í millitíðinni er nauðsynlegt að grípa til annarra ráð- stafana til að hreinsa þennan smánar- blett af dómskerfinu. Séra Jón Bjarman hefur flutt at- hyglisverðar tillögur um þetta efni og byggir þær á að stuðst verði við nú- verandi löggjöf. Annars vegar, segir Jón, gæti dómari svipt sakborning sjálfræði, eftir að vottorð um ósakhæfni liggur fyrir, og afhent hann heiibrigðisyfir- völdum til viðeigandi meðferðar. Hinn kosturinn er að í stað úr- skurðar um ósakhæfni þá verði menn dæmdir til stystu leyfilegrar refsingar því að þeir fara hvort eð er í fangelsi, hver sem niðurstaðan verður. Eftir afplánun refsingar er hægt að leita' þeim mönnum lækninga. Að endingu skal vitnað í orð Jóns Bjarman í blaðagrein sem hann ritaði um þessi efni: ,,Ég tel það fáráníegt, að i 40 ár skuli íslenskir dómarar hafa úr- skurðað sýknaða menn til vistunar á stofnun, sem ekki er til og verður það að öllum líkindum ekki. Lagabók- stafur, sem ekki hefur verið hægt að framfylgja með neinum sóma í 40 ár, er haldlítill og gagnslaus. — Lög mega ekki koma í veg fyrir að hluti þegnanna fái læknisþjónustu, er hann þarfnast hennar.” Ólafur Hauksson, í framkvæmdastjórn fangahjálparinnar Verndar. ^ „í hegningarlögum segir aö geösjúkir af- brotamenn skuli sæta vist á viöeigandi stofnun. En hvaö er viðeigandi stofnun?” spyr Ólafur Hauksson í grein sinni sem fjallar um ástandið í málefnum afbrotamanna sem haldn- ir eru tímabundinni eða varanlegri geöveiki. borginni? Ástæðan hlýtur að vera að borgarbúum finnst gott að hvíla augun á einhverju grænu — á ein- hverjum gróðri. Einstaka raddir heyrast á stundum um að þéttbýlis- fólk vilji fá að ferðast frjálst um landið sitt, á því sé síaukin þörf því æ fleiri landsbúa búa nú saman á suð- vesturhorni landsins og komast sjald- an út í hina frjálsu náttúru. En nú heyrist ekkert í þessu fólki. Er nú gleymd þörfin fyrir að vera í snertingu við hina frjálsu náttúru? Hugar enginn að hvort einhver ósnortin náttúra verði fyrir börnin okkar og barnabörnin til að ganga úti í og ferðast um. Hvað okkur Norðlendinga snertir á ég bágt með að skilja hvernig nokkur getur samþykkt yfir sig umrædda eyðileggingu. Er það þess virði fyrir þá fáu útvöldu nútíma- menn sem e.t.v. fá einhverja vinnu við virkjunarframkvæmdir í 4—6 ár? Er líklegt að slik uppgripavinna bjargi efnahagslífi Norðlendinga? Verðum við nokkru nær því að öðlast efnahagslegt öryggi um ókomna framtíð en nú? Skiljanlegt fyrir 40 — 50 árum Mér hefði fundist mjög eðlilegt að íbúar Norðurlandskjördæmis vestra hefðu gleypt við hugmyndinni um fyrirhugaða virkjun hefði ártalið verið milli 1930 og 40, er rafmagns- framleiðsla var litt hafin á svæðinu. Þá var allt atvinnulíf fábreytt. Sókn á fiskimið erfið enda allur útbúnaður ófullkominn. Búskaparhættir frum- stæðir. Lífsbaráttan geysihörð. Barnafjöldi fjölskyldna mikill og barátta upp á líf og dauða við að framfleyta sér og sínum. Eðlilegt hefði mátt teljast að sú baráttukyn- slóð er þá lifði hefði þóst hún hafa himin höndum tekið að fá slíka fram- kvæmd og fá svo „blessað raf- magnið” þótt fórna hefði þurft gróðrinum. Sú fórn hefði verið afsakanleg. En við nútímamenn, sem vegna baráttu og seiglu forfeðranna njótum þess hlutskiptis að hafa öðl- ast menntun og starf að frjáku vali, höfum við nokkra nauðþurfta- afsökun fyrir að eyða meiri gróðri en brýnasta nauðsyn krefur vegna við- bótar orkuframleiðslu? Við höfum fordæmin víða utan úr heimi fyrir okkur um hvað eyðing lifríkisins hefur í för með sér. Við viljum hafa grænt og fallegt í kringum okkur. íhugum hvað við lögðum á okkur við að græða og rækta 600 fermetra garðinn okkar og hvers virði þjóðinni er þá tíu þúsund sinnum stærri blett- ur, sem þó er gróður á — þó ekki sé nema íslenskur villigróður — heiða- gróður. Elin Sigurðardóttir kennari, Sölvanesi, Skagafirði. Mýndskreytt bréfsefni ásamt umslögum í gjafamöppu. Kr.: 35.- Plaköt Myndskreyting frægra norrænna listamanna: RolfLidberg IBThaning Ib Spang Olsen Carl Larsson Stærð Verð 30 x 40 sm 24,- 50 x 70 sm 35,- Sendum í póstkröfu. Pöntunarsími 13135 EYMUNÐSSON Austurstræti 1 8 Rafdeild JL-hússins auglýsir: / Nýkomnir vandaöir hollenzkir skermar og standlampar. Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Rafdeild Sími 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.