Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1981.
19
Menning Menning
ljóskeiluna á skaflinum í hlaðvarp-
anum i stórhríðarveðri til þess að
fæða fölald sitt á jólanóttina meðan
verið var að lesa lesturinn. Fleiri
minningar frá Valþjófsstað eru þarna
og er til að mynda bráðskemmtileg
frásögnin um vísitasíu Jóns Helga-
sonar biskups og skipti hans við Hér-
aðsbændur. í þessum minningum
kemur mynd föður Þórarins ljóst
fram og er lýsingin hispurslaus og
engin tilraun til glansmyndagerðar.
Þá er frásögnin af kolagerð Valþjófs-
staðarmanna, sem hann tók sjálfur
þátt í, hin skýrasta og fróðlegasta.
Það er mikils um vert að eiga svo ná-
kvæman vitnisburð af vettvangi
þessa forna hversdagsverks sem fáir
núlifandi íslendingar munu hafa lagt
hönd að. Þessi frásögn ætti að
komast i lestrarbækur skóla. Þórar-
inn er líka flestum eða öllum fslend-
ingum sannfróðari um viðarkolagerð
á landi hér.
Þórarinn er mikill og góður mann-
þekkjari og svo eftirtektarsamur um
sérkenni manna að af ber. Þarna birt-
ast ljóslifandi ýmsir frægðar- og
gerðarmenn í kímilegri smásögu eða
fáorðri en drátthreinni kynningu. Ég
nefni menn eins og Einar í Hvalnesi,
Gísla Sveinsson, Þorstein Jónsson á
Reyðarfirði, Guðbrand Jónsson en
fleiri eru þó ónefndir. Einhver skil-
ríkasta mannlýsingin þarna er af Kjar-
val, einmitt f umhverfi sem við sáum
hann ekki í hér í Reykjavík. Þar er
sagt frá ýmsum merkilegum atvikum
og skýrð sköpun nokkurra frægra
mynda. Ég get ekki betur séð en Þór-
arinn bæti þarna svo að um munar
við þau Kjarvals-fræði sem áður hafa
verið færð í letur. Einn þátt í fari
Kjarvals skýrir hann með vottfestu
dæmi betur en ég hef séð áður. Hann
var sá að Kjarval skildi ekki með
sama hætti og flestir aðrir menn á
milli myndar og áþreifanlegra hluta.
Og öll guðs skepna var svipuðú lífi
gædd í mynd sem utan hennar. Kjar-
valskaflinn er í heild ómetanlegt
framlag til sögu meistarans.
Nokkrar broslegar og þó um leið
heimildarrfkar sögur eru þarna frá
fyrstu árum bilaaldar á langferða-
leiðum, einnig ágætar iýsingar úr
strandferðum skipa eins og Súðar og
Esju. einnig eru tiunduð nokkuð
skemmtileg atvik úr ferðum utaiv
lands, meðal annars sagt frá suður-
göngu og faraldri um England. Sfðast
í bókinni eru þættir af nokkrum
gerðarmönnum sem Þórarinn hefur
haft allnáin kynni af, þeim Guttormí
Pálssyni, skógarverði á Hallorms-
stað, Stefáni Jónssyni, námsstjóra
frá Stykkishólmi, séra Sigurjóni i
Kirkjubte og Erlingi Sveinssyni
•bónda á Viðivöllum í Fljótsdal.
Frásagnir af þeim Páli Hermannssyni
alþingismanni og Jóni í Möðrudal
eru ekki heldur neinar þokumyndir.
Efni bókarinnar er saman dregið
úr svo mörgum stað að þvi er engan
veginn fulllýst með þvi sem hér hefur
verið nefnt. En bókin öll er stór-
skemmtileg og fróðleiksnáma. Þar er
líka nokkurt myndaefni af mönnum,
málverkum og hlutum, meðal annars
mynd af kistu þeirri sem Þórarinn
hefur látið gera sér af lerkivið úr
Guttormslundi og ætlar sjálfur að
byggja í grafarró þó seinna verði. Þá
hefur Þórarinn sonur höfundar
teiknað nokkrar upphafsmyndir við
aðalkafla.
Frásagnarstíll Þórarins er nokkuð
sérstæður, til að mynda er hann þar
sjálfur oft i þriðju persónu. Hann
verður stundum nokkuð langorður
og er sem hann gæli þá og nostri við
kímilega þræði og leiki sér við að
bregða þeim í mynstur. Þvf miður eru
prentvillur margar og til nokkurra
leiðinda í þessum texta sem að öðru
leyti er gerður af alúð. Þetta er mjög
skemmtileg bók þegar á allt er litið og
fróðleg vel, og hún ber skýr persónu-
einkenni höfundar síns, svo að menn
hitta Þórarin þar sjálfan fyrir, Hann
er manni alltaf mjög nálægur við lest-
urinn. Þáð er afar viðkunnanleg til-
finning.
Andrés Kristjánsson.
JÓIA. „
mat sctMl li 11 n
SS Gæðafæða bragðast best
JÐURLANDS
fyrirjólaborðið
mæ um við sérstaklega með
SShangikjöti
SS dilkahamborgarhrygg
SS dilkahamborgarlæri
SS dilkahamborgarsteik
SS dilkakryddhrygg
SSdilkahrygg og læri fyllt
mcsA óv/zSv+i irrj
Þannig eru fyrstu viðbrögð margra
sem heyra „Tass”, hlna nýju píötu
Jóhanns Helgasonar.
Staðreyndin er nefnilega sú,
aO viö eigum nú oröið popplistamenn
f hæsta gæðaflokki, þó alþjóðleg
mælistika sé notuð. Jöhann er þar
ffremsta flokki.
Varla hefur komið út á (slandi
hljömplata sem sömir sér jafnvel
þess besta, sem á sér stað f popptónlist
heimsins og hin óviðjafnaniega plata
Jöhanns Helgasonar „Tass".
KARNABÆR