Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Qupperneq 21
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1981. 21 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Stefán aftur með Víkingum — Kominn f rá Svíþjóð og byrjaður að æfa í knaffspymunni Stefán Halldórsson hefur tilkynnt félagaskipti yfir I Víking á ný frá sænska félaginu Kristianstad. Stefán var hér á árum áður miðheiji Vikings, marksækinn og fljótur leikmaður. Hann gerðist síðan atvinnumaður í Belgiu, síðan Svíþjóð, og hefur leikið knattspyrnu erlendis i mörg ár. Stefán hefur leikið með Víking í handknattleiknum, landsliðsmaður þar, og var íslandsmeistari með félaginu sl. vor. Hélt síðan til Svíþjóðar. Ekki þarf að efa, að Stefán verður ísiandsmeisturum Víkings í knattspyrnunni mikill styrkur næsta sumar. Hefur mikla reynslu. Hann hefur æft með Víkingsliðinu að undan- förnu. Hefur hins vegar ákveðið að leggja handknattleikinn á hilluna. hsím. Guðjón Þórðarson til Þróttar Nes.? Miklar líkur eru nú á því, að Guðjón Þórðarson, bakvörðurinn snaggaralegi frá Akranesi, gerist þjálfari 2. deildar- liðs Þróttar frá Neskaupstað og leiki einnig með liðinu. Þróttarar hafa rætt við Guðjón, sem mun gefa þeim ákveðið svar fljótlega. Guðjón hefur verið einn af lykilmönn- um Skagamanna undanfarin ár — fljótur og sókndjarfur bakvörður. Hann er 25 ára og hefur leikið yfir 250 leiki með Skagamönnum síðan hann hóf að leika með þeim 1972. Guðjón á 7 unglingalandsleiki að baki. Nær allir þeir leikmenn sem léku með Þrótti Nes. sl. keppnistímabil verða áfram með. Einn leikmaður hefur þó tilkynnt félagaskipti. Það er miðvallarspilarinn Magnús Jónsson, Ómarsleif hásin ÓMAR Egilsson, knattspyrnumaður- inn marksækni hjá Fylki, varð fyrir því óhappi á dögunum að slíta hásin. Ómar er nú í gifsi, en vonast til að losna við það fljótlega þannig að hann geti farið að æfa og styrkja fótinn. -SOS. sem ætlar að ganga til Iiðs við sína gömlu félaga í KR. -SOS Guðjón Þórðarson. Ásgeir áfram með Þróttara — FH-ingurinn Logi Ólafsson hefur gengið t il Riðs við Þrðtf Rvk. Stefán Halldórsson aftur með Vfking. Hann gerðist atvinnumaður i Belgíu haustið 1975. Ásgeir Elíasson, fyrrum landsliðs- maður i knattspyrnu úr Fram, verður áfram leikmaður og þjálfari Þróttar Reykjavík. Þróttarar hafa gengið frá samningum við Ásgeir. Þá hafa Þróttarar fengið liðsstyrk. FH-ingurinn Logi Ólafsson hefur gengið til liðs við þá. Það getur farið svo að Þróttarar missi einn leikmann frá sl. keppnis- tímabili. Þær sögusagnir ganga nú, að Baldur Hannesson, sem hefur verið einn þeirra sókndjarfasti leikmaður, hafi hug á þvi að ganga til liðs við Víking. Breiðablik sigraði ÍS f blaki kvenna Aðeins einn leikur fór fram í 1. deild karla í blaki um helgina. Þróttur sigraði Eyfirðinga fyrir norðan með þremur hrínum gegn einni, 15—11, 12— 15,15—6 og 15—11. Þau óvæntu tíðindi gerðust deild kvenna að Breiðabiik vann Stúdenta 3—2 í Hagasköla sl. sunnudagskvöld. Var leikurinn jafn og spennandi eins og sjá má af hrinuúrslitunum: 11 —15, 7—15, 15—13, 15—10 og 15—12. Hafa nú öU liðin í kvennadeildinni tapað leik. Á Akureyri mættust lið KA og Þróttar tvisvar en fjórar umferðir eru leiknar í 1. umferð kvenna. Þróttur vann báða lei kina 3—1. 2. deild karla ætlar að verða æsispennandi. Öll liðin hafa tapað leik enda er getumunur þeirra sáralitilll Lárus áf ram Lárus Loftsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildarliðs Fylkis í knatt- spyrnu. Lárus, sem þjálfaði Árbæjar- liðið sl. sumar ásamt Theódór Guðmundssyni, verður nú einn með liðið, þar sem Theódór hefur ákveðið að taka sér hvíld frá þjálfun. -SOS. Þrír leikir fóru fram um helgina. Bjarmi og B-lið Þróttar léku á Hafralæk í Suður-Þingeyjarsýslu og vann Bjarmi 3—1: 15—13, 14—16, 15—5 og 15—8. Samhygð lagði HK aðr velli 3—2; 11 — 15, 15—8, 14—16, 15— 9 og úrslitahrinan fór 18—16. Lagleg úrslitahrina það! Loks mættust HK og Fram. Fram vann tvær fyrstu hrinur leiksins og komst svo í 10—0 í þriðju hrinu. Glopraði síðan sigrinum úr höndum sér og HK vann 3—2; 13—15, 8—15, 15—12, 15—11 og 15—13. -KMU. Júgóslavar sigurvegarar Júgóslavar urðu heimsmeistarar í handknattleik pilta í Portúgal á sunnu- dag. Sigruðu Sovétmenn með 28—21 i úrslitaleiknum. Óvænt úrslit það. í keppninni um þriðja sætið sigraði Tékkóslóvakía Sviþjóð, 32—26. í efstu átta sætunum í keppninni urðu því 1. Júgóslavia 2. Sovétríkin 3. Tékkósió- vakia 4. Svíþjóð 5. Austur-Þýzkaland 6. ísland 7. Danmörk og 8. Frakkland. Sextán þjóðir tóku þátt í keppninni í Portúgal, þar á meðal Vestur-Þjóð- verjar, sem ekki komust í úrslit. . ... . Ásgór EHasson. Fá ekki að fara frá Póllandi Mennta- og íþróttaráðuneyti Póilands tiikynnti í gær, að öll ferðalög pólsks íþróttafólks frá Póllandi hefðu verið stöðvuð til loka þessa árs að þvi er pólska fréttastofan PAP skýrði frá í gær. Hljómplata

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.