Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Side 22
22 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1981. Getraunaleikur—DV Bogdan er þaul- sætinn „spámaður” —er nú í f immta sinn með í Getraunaleiknum Getraunaleikur DV er nú byrjaður að nýju, eftir smá hvíld. Siðast voru átta „Spámenn” með leikí sina rétta, þannig að þeir eru nú aftur i sviðsljósinu. Handknattleiksþjálfarinn kunni hjá Víkingi — Bogdan, er þaulsætinn „spámaður” og er hann nú með í fimmta sinn, þannig að hann hefur jafnað met þeirra Bjarna Felix- sonar og Vilhjálms Sigurgeirssonar. Björn Kristjánsson, handknattleiks- dómarí, kemur nú aftur inn i leikinn, eftir stutta fjarveru, en hann varð að taka sér fri um tima, þar sem hann fór utan til að dæma í HM-keppni kvenna i handknattleik. -SOS. Sfúlka frá Homafirði daft f lukkupoff inn — fékk kr. 95.568 í vinning hjá Getraunum Stúlka frá Hornarfirði datt heldur betur í lukkupottinn í Getraunum — Iryggði sér samtals kr. 95.568 i vinning. Stúlkan álti fjórar raðir af sjö, sem komu fram með 10 rétta, og þá átti hún 16 raðir með 9 réttum. Stúlkan vann þelta afrek á bleikan seðil en leikurinn sem hún hafði ekki réttan var leikur Covenlry — Manchester City, sem var Ivítryggður hjá henni — IX. Þess má geta til gamans að hinar rað- irnar, sem komu fram með 10 rétta , áttu kvennmenn og ungur strákur frá Njarðvík. Það má því segja að konurn- ar séu beztar þegar úrslitin eru óvænt- ust og þegar varpað er hlutkcsti upp á leiki sem var frestað — eins og í sl. leik- viku. LEIKVIKA 17 Leiklr 19. desember 1981 1 Birmlng’m - Coventry 2 Brighton - Leeds .. . 3 Everton - Aston Vllla 4 Middlesbro • Swansea 5 South’pton - Arsenal 6 Stoke - Man. Unlted 7 Tottenham - Llverpool 8 W.B.A. - Notts County 9 West Ham - Wolves 10 Barnsley - Lutön .... 11 Cambridge - Q.P.R. .. 12 Norwich - Sheff. Wed. 1 1 X 2 1 f ö 6 5- 1 7- 'A r V 0 2j 10 7- i L 10 l 1 11 0 1 3 3 6 L 7- 2 S L Heildar- spáin Nær allir „spámennirnir” eru sam- mála um að West Ham vinni örugg- an sigur og þá spá flestir því, að Manchester Uniled leggi Stoke að velli. W.B.A. hefur gengið vel að undanförnu og um leið hafa „spá- mennirnir” fengið trú á liðinu. 10 réttir gáfu fyrsta vinning og komu fram 7 raðir með 10 rétta — og hlaut hver röð kr. 21.915. Þeir sem voru með 9 rétta fengu kr. 513 í sinn hlut. Eins og hefur komið fram, fóru að- eins fjórir leikir fram sem voru á get- raunaseðlinum og einn leikur (Liver- pool — Birmingham) féll út af seðlin- um Það þurfti því að kasta teningi upp til að fá úrslit átta leikja. Eftir að búið var að kasta teningnum varð útkoman þessi: 212—XX0— X12—21X. Þetta er vinningsröðin en 0 er á þeim stað sem leikur Liverpool og Birmingham er. -sos Jólasveina kerfið Nú þegar jólin nálgast, bjóðum við upp á „Jólasveinakerfið”, eða MÓL- kerfið, eins og það er kallað i Hafnar- firði. Þetta er 288 raða kerfi sem fyllist út á 18 gula seðla. Tveir leikir eru fastir — — sjö tvítryggðir og þrír heiltryggðir. Aðferðin er þannig, að byrjað er að velja tvo leiki fasta og fyllast þeir út á alla seðlana. Fyllið síðan aðra leiki út, eins og' taflan hér fyrir neðan sýnir. Fyrstu þrjár raðirnar eru heiltryggðu lcikirnir. Að sjálfsögðu má nota 2 í staðinn fyrir I eða X í tvítryggðu leikjunum. Trygging: Ef föstu og tvítryggðu leikirnir eru rétt valdir, er tryggingin sú, ad 75% líkur eru á 11 réttum og 8% líkur á 12 réttum — þá kæmi fram ein röð með 12 rétta og fjórar með 11 rétta. „Spamenir DV Birmingham—Coventry Tottenham—Liverpool Ögmundur Krístinsson (2) (Prentari) Björn Krístjánsson (4) (Verzlunarmaður) — Þctta cr tvisýnn leikur. Birmingham hefur náö ágætum árangri á heimavelli, en ég hef þó trú á aö Ieikmenn Coventry nái aö halda jöfnu og spái þvi jafntefli. Heildarspá Björns er þessi: X21 —222 —XI 1 —X21 Brighton—Leeds Dýrí Guðmundsson (4) (Viðskiptafræðingur) — Brighton hefur komið skemmtilega á óvart i vctur og leikur liðið árangursrika sóknarknatt- spyrnu. Ég hef ekki trú a að Kenny Burns og félagar hans í vörn Leeds, sem er sterk — nái að koma l veg fyrir sigur Brighton á Goldstone Ground. Heildarspá Dýra er þessi: XI 1—21X —XI 1 — 1X2 Everton—A. Villa Sigurlás Þorleifsson (2) (íþróttakennari — Vestm.ey.) — Þótt leikmenn Everton séu erfiðir heim að sækja, þa hef ég trú á þvi að Aston Villa næli sér i eitt stig á Goodison Park. Englandsmeistararnir veröa að fara að rétta úr kútnum, ef þeir ætla að verða á meöal efstu liöa. Heildarspá Sigurlásar er þessi: 1 1 X —X2X— 1 1 1 —XX 1 Middlesb.—Swansea Guðjón Hilmarsson (Verzlunarmaður) — Ég hef trú á því að George Best teiði Middlesbrough til sigurs í fyrsta leik sínum með liðinu, enda er kominn tími til að ,,Boro” fari að rétta úr kútnum. Swansea er greinilega á niðurleið — töpuðu síðast fyrir Forest á heimavelli sinum. Heildarspá Guðjóns er þessi: 1 2 X — 1 12—1X1 —ÍXX Southampt.—Arsenal Bogdan (5) (Handknattleiksþjálfari) — Ég hef trú á því að Dýrlingarnir frá Southampton meö Kevin Keegan fremstan í flokki, nái að Ieggja Arsenal að velli — á The Dell. Arsenal hefur leikið vel að undanförnu, en það dugar ekki gegn Keegan og félögum, sem virðast óstöövandi um þessar mundir. Heildarspá Bogdan er þessi: 1 1X-X12—1 1 1 —12X Stoke—Man. Utd. Guðjón Magnússon (Verzlunarmaður) — Manchester United er með mjög gott lið um þessar mundir og leikmenn liðsins ættu ekki að vera i erfiðleikum með aö leggja Stoke að velli. Þeir verða að gera þaö, ef þeir ætla að vera með í baráttunni um Engiandsmeistaratitilinn. Heildarspá Guðjóns er þessi: 1 12— 1 22 — 222 — 2 1 1 — Tottenham er með mjög gott lið og hafa leikmenn liðsins leikið vel að undanförnu. Ég hef trú á þvi að Tottenham nái að leggja Liverpool að velli á White Hart Lane í fjörugum og skemmti- legum leik. Leikmenn Liverpool ná ekki að skora hjá Ray Clemence , fyrrum félaga sínum. Heildarspá ögmundar er þessi: XXI —1 12—1 1 1—2X2 W.B.A.—NottsC. Ólafur Benediktsson (Hjá Skýrsluvélum rikisins) — Ég hef trú á að W.B.A. nái aö leggja Notts. County að velli. Leikmenn Albion hafa verið í stöðugri framför og hafa þeir ekki tapað leik lengi. Ég hef ekki trú á því — að þeir fari að tapa núna. Heildarspá Ólafs er þessi: X 1 X— 1 12—11 1 — 2 X X West Ham—Wolves Guöni Kjartansson (3) (íþróttakennari — Keflavík) — West Ham leikur mjög góða knattspyrnu — eina þá skemmtilegustu, sem enskt lið býður upp á. Leikmenn liðsins eiga að geta náð góðum tökum á Úlfunum — og unnið léttan sigur. Heildarspá Guðna er þessi: 1 1 1 — 122 —XI 1 —XXI Barnsley—Luton Þröstur Stefánsson (Bankamaður — Akranesi) — Barnslcy hefur oft náð að sýna góða leiki í vetur, en ég hef þó ekki trú á að leikmenn liösins nái að koma i veg fyrir að Luton nái að knýja fram sigur. Leikmenn Luton eru mjög sókndjarfir og hinir hættulegu sóknarleikmenn þeirra ná að tryggja liðinu sigur. Heildarspá Þrastar er þessi: 1 X 1 —X 1 2— 1 1 1 —22X Cambrídge—Q.P.R. Ómar Egilsson (Flokksstjóri) — Terry Venables hefur náð að byggja upp sterkt liö hjá Q.P.R., eftir að liðiö hafði verið í öldudal. Með liðinu leika margir góðir leikmenn og hef ég trú á, að þeir nái að vinna sigur yfir Cambndge. Heildarspá ómars cr þessi: 1 IX —X12 —XI 1—221 Norwich—Sheff.Wed. Diörik Ólafsson (4) (Matsvelnn) — Norwich hefur ekki gengið alltof vel að und- anförnu — tapað leikjum jafnt á heimavelli sem útivelli. Þetta verður tvisýnn leikur og hef ég trú á því, að Sheffield Wednesday nái að tryggja sér jafntefli. X11 — 1X2 — 1 11 —2XX

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.