Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Side 23
DAGBLAÐIÐ &VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1981.
Nýjar bækur Nýjar bækur
CÖíVAtrSS
OOH KlKÓTi
Don Kíkóti
eftir Cervantes Saavedra
Út er komið hjá Almenna bókafélaginu
1. bindið af Don Kikóta eftir Cer-
vantes Saavedra í þýðingu Guðbergs
Bergssonar, rithöfundar.
Don Kíkóti er eins og kunnugt er einn
af dýrgripum heimbókmenntanna —
sagan um vindmylluriddarann, sem
gerði sér heim bókanna að veruleika
og lagði út í sína riddaraleiðangra á
hinu ágæta reiðhrossi Rosinant, ásamt
hestasveininum Sansjó Pansa til þess
að frelsa smælingja úr nauðum, —
leita sinnar ástmeyjar og eyjarinnar
fyrirheitnu.
Leiðangur þeirra tvímenninga víðs-
vegar um Spán hafa síðan haldið áfram
að vera frægustu ferðir heimsins og
ennþá er sagan um þá Don Kíkóta og
Sansjó Pansa aðalrit spænskra bók-
mennta. Er því vonum seinna að fá
þetta sígilda rit úr íslenzku.
Don Kikóti er upphafsrit í nýjum
bókaflokki sem Almenna bókafélagið
er að hefja útgáfu á. Nefnist hann
Úrvalsrit heimsbókmcnntanna og má
ráða af nafninu hvers konar bækur
forlagið hyggst gefa út i þessum flokki.
Þetta fyrsta bindi af Don kíkóta er
206 bls. að stærð og er unnið í Víkings-
prenti og Félagsbókbandinu.
Klás, Lena, IMína
og...
eftir Hans Hansen
Lystræninginn hefur gefið út loka-
bindið í bókaflokknum um Klás og
Lenu og vini þeirra: Klás, Lena, Nina
og. . . Einnig hefur fyrsta bókin: Sjáðu
sæta naflann minn verið endurútgef-
inn, en hún var löngu uppseld.
Fáar unglingabækur hafa náð jafn
miklum vinsældum á síðari árum og
þessar bækur Flans Flanssen, enda er
þar fjallað um efni sem kemur öllum
unglingum við: Að verða ungur, feim-
inn og ástfanginn. Hans Hansen þekkir
unglingana vel, enda hefur hann unnið
mikið í þeirra hópi og hann skrifar mál
sem þau skilja án þess að stíllinn bíði
við það tjón.
Bækur Hans Hansens vekja umhugs-
un um ýmis vandamál en hann predik-
ar aldrei og er alltaf skemmtilegur af-
lestrar. Nú fáöt allar bækurnar þrjár:
Sjáðu sæta naflann minn, sem fjallar
um skólaferðalag níunda bekkjar til
Svíþjóðar og þegar Klás og Jörgen
kynnast Lenu og Evu.Vertu góður við
mig þegar Lena flytur til Fjóns og Klás
kynnist Nínu og Eva segir Jörgen upp
og svo Klás, Lena, Nína og. . .þegar
Klás heimsækir Lenu og kynnist Ninu
nánar.
Vernharður Linnet og Margrét Aðal-
steinsdóttir hafa þýtt bækurnar en
Guðjón Ó. prentaði.
„Olatur
er með
þetta
heima á
eldhús-
borrí: sfe
. i »“sí,,“r'
liiu* S»Rn'u*
SJOISLENDINGAR ^S^TÁmawviis
HANDTEKNIR VEGN.á!H rvÆ1< Nauðga
FIKNIEFNAMÁLS A
annað stærsta fíknicfnamál Danmerkur
VFNSÆLUS
i Hótaði að
jskjóta
stoðvarstjc
sktrl»Þi<>
.earstiori
Islenskur annáll —
skemmtileg og læsileg bók
— en jafnframt ítarlegt heimildarrit
í slenskur Annáll er nýr stórfróðlegur bókaflokkur,
þar sem fjallað er um innlenda atburði eins árs í senn
í formi dagblaðs. Atburðarás er rakin í réttri röð, og
greinar allar dagsettar, þannig að lesandinn lifir sig
inn í atburði og fylgist með málum eins og þau þróast
dag frá degi. Fréttum er fylgt eftir, og þróun mála
rakin á öllum helstu sviðum þjóðlífsins. íslenskur
Annáll er bók, sem nýtur sín best ef hún er öll lesin
frá upphafi til enda, en auk þess er hún mjög aðgengi-
leg sem heimild, enda fylgir ýtarlegt efnisyfirlit og
nafnaskrá.
Hér er að finna meiri fróðleik um íslenska sam-
tímasögu og íslenskt nútimaþjóðfélag en annars stað-
ar, í skemmtilegu og aðgengilegu formi. Still Annáls-
ins er lipur og læsilegur, víða óvenju skarpur, og
mannlýsingar oft skýrar.
Hér koma forystumenn til dyranna eins og þeir eru
klæddir, enda er lögð áhersla á að hafa eftir orðrétt
ummæli þeirra og tilsvör.
í þessu fyrsta bindi bókaflokksins er m.a.: Úrdrættir
úr áramótaávörpum forseta íslands og formanna stjóm-
málaflokkanna - Efnahagsmálafrumvarp Ólafs Jóhann-
essonar og umræður um það á Alþingi og utan þess -
Veðurfar - Helstu dóms- og sakamál - Allir framboðs-
listar og úrslit í Alþingiskosningunum - Leiftursóknin í
heild sinni - Helstu deilumál, sem athygli vöktu, t.d.
Kjarvalsstaðadeilan og deilumar um ráðningu skóla-
stjóra í Grindavík - Gengisskráningar í upphafi hvers
vísitölutímabils - Teikningar Sigmunds - Skoðanakann-
anir Vísis og Dagblaðsins - Ýtarleg umfjöllun um efna-
hagsmál, kjara- og atvinnumál, sjávarútvegsmál, orku-
mál, flugmál, landbúnaðarmál, verðlagsmál o.fl. -Elds-
voðar og slys á sjó, á landi og í lofti - Sagt frá helstu skák-
og bridgemótum og frammistöðu íslendinga á þeim
heima og erlendis - Úrdrættir úr ýmsum helstu umræð-
um, sem fram fóm á Alþingi, t.d. þjóðaratkvæða-
greiðslutillögu Vilmundar, olíustyrkstillögu Lúðvíks,
vantrauststillögu sjálfstæðismanna, deilum Matthíasar
og Steingríms um landbúnaðarmál o.m.fl. - Landsfund-
arræður sjálfstæðismanna - Sagt frá helstu leiksýning-
um, tónleikum og málverkasýningum - Sagt frá nýjum
hljómplötum og uppákomum í poppheiminum - Sjón-
varpsræða Sigurðar Líndals um verkalýðsmál - Ummæli
og tilsvör Vilmundar, Ólafs Jóhannessonar, Lúðvíks,
Magnúsar H., Sighvats, Geirs, Gunnars, Alberts, Stein-
gríms, Tómasar, Davíðs Sch. Thorsteinssonar, Ingólfs
Ingólfssonar og margra, margra annarra.
íslenskur Annáll er í senn heimildarrit og lífleg
svipmynd af íslensku nútímaþjóðfélagi, bók, sem vex
að gildi er fram líða stundir og er ómissandi hverjum
þeim, sem vill fylgjast með og fá yfirlit yfir þróun
mála.
Bókin er 432 síður — 654 myndir, teknar af öllum
þekktustu ljósmyndurum blaðanna. Vegleg bók í
vönduðu bandi.
Bókaútgáfan íslenskur Annáll — Kambsvegi 18 — Sími 82390
r- 23
e
LANDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í byggingu
Sultartangastíflu í samræmi við útboðsgögn 320.
Verkinu er skipt í þrjá sjálfstæða verkhluta og er bjóð-
anda heimilt að bjóða í einn eða fleiri verkhluta. HelsTu
magntöflur áætlast sem hér
Verkhluti
Gröftur I
og sprengingar 210.000 ni3
Fyilingar 732.000 m3
Mót
Steypa
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 108 Reykjavík, frá og með 17. desem-
ber 1981 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 500,-
fyrir fyrsta eintak, en kr. 200,- fyrir hvert eintak þar til
viðbótar.
Tilboð skal skilað á skrifstofu Landsvirkjunar fyrir kl.
14:00 föstudaginn 19. febrúar 1982, en sama dag kl.
15:00 verða þau opnuð opinberlega á Hótel Sögu við
Melatorg í Reykjavík.
Reykjavík, 12. desember 1981
Landsvirkjun
segir:
Verkhluti
II
324.000 m3
1.046.000 m3
Verkhluti
III
7600 m2
7400 m3
Skífa
rauð -
blá-
Jólagjöf barnsins
Þetta er 6. árið sem við bjóðum þessi vönduðu úr
brun
græn
Kr
'/r
Kaupin
bezt.lþar sem
þjönustan er mest
15 steina skólaúr fyrir
stelpur og stráka.
Vatnsvarin, höggvarin
og óslítanleg fjöður.
Kr. 225,-
■ 1 árs ábyrgfl.
■ Merkið tryggir gæðin.
Póstsendum
Úr og skartgripir
. JónogÓskar
Svissnesk gæði Laugavegi 70, sí mi 24910
Skifa rauð
blá
og hvít
Kr. 290--bkJ 6 'LrJ
24x30 18x24
Tý* x«
ÍC: >Uf skw :
*>*«» ftMwyaKovU,
íktsr* iixl ;*> :lo «*».;. >:»>;<
.18x24 13x18.,
Myndarammar úr tré
Stærðir Verð
9x13 sm 29.50
18x24sm 42.00
24 x 30 sm 59.50
Sendum ípóstkröfu. Pöntunarsími 13135
EYMUNDSSON
Austurstræti 18