Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1981. 35 50 ára er i dag Pétur G. Jónsson. Hann er fæddur í Reykjavík, sonur sr. Jóns M. Guðjónssonar og Lilju Pálsdóttur, þau eignuðust ellefu börn, en það elzta lézt í frumbernsku. Pétur er kvæntur Margréti Veturliðadóttur, þau eiga fimm börn og er heimili þeirra hjóna að Holtagerði 13. Pétur lærði vélsmíði og hefur hann aðallega starfað við þá iðn ásamt bifvélavirkjun. Tiikynningar Miðvikudaginn 16. des. mun Þursaflokkurinn halda hljómleika að Hótel Borg i Reykjavík. Þetta eru fertugustu hljómleikar flokksins á þessu starfs- ári og jafnframt þeir síðustu. Á þessum hljómieikum verða meðal annars flutt verk eftir Ásgeir óskars- son, Egil ólafsson, Tómas Tómasson og Þórð Árna- son. Fyrir dyrum standa nú upptökur á nýrri hljóm- plötu Þursanna og frekar hljómleikahald á nýja árinu. Spilakvöld Félagsvist i félagsheimili Hallgrímskirkju verður spiluð i kvöld 15. desember kl. 20.30 til styrktar kirkjubyggingarsjóði. Félagar úr Alþýðuleikhúsinu í jólasveinabúning Eins og undanfarin ár fara nú félagar úr Alþýðuleik- húsinu aftur á kreik i jólasveinaklæðum. Þeir hafa samið og æft að undanförnu prógramm með ýmis- konar sprelli og uppátækjum. Ef fólk hefur áhuga á að fá jólasveinana á jólaböllin sín getur það leitað frekari upplýsinga í simum 19567 og 20050. Jóla- sveinarnir senda öllum sínar beztu kveðjur. Ragnheiður Kristín Jónsdóttir lézt 5. desember 1981: Hún var fædd 4. apríl 1893, dóttir Jóns Benediktssonar og Óiínu Elísabetu Óladóttur. ragnheiður var gift Jóhannesi Jóhannssyni. Þau eignuðust tvo syni, en annar lézt i frumbernsku. Ragnheiður lærði karl- mannafatasaum, starfaði hún hjá klæðskera um árabil. Lengst starfaði hún í Kvennadeild Slysavarnarfélags ís- lands. Ragnheiður verður jarðsungin í dag fráFossvogskirkju kl. 13.30. 80 ára er í dag Einar Guttormsson. Hann er fæddur að Arnheiðarstöðum i Fljótsdal, sonur Guttorms Einarssonar og Oddbjargar Sigfúsdóttur. Einar kvæntist Margréti Pétursdóttur, þau eignuðust 5 börn. Hann lauk kandi- dajsprófi í læknisfræði frá Háskóla Ís- lands árið 1932. Hann hefur verið læknir á sjúkrahúsinu í Vestmanna- eyjum um árabil. Guðmundur H. Jóhannsson lézt 3. desember 1981: Hann var fæddur 25. ágúst 1930, sonur Steindóru Camillu Guðmundsdóttur og Jóhanns Guð- mundssonar. Guðmundur var tvi- kvæntur, fyrri kona hans var Sif Bjarnadóttir, eignuðust þau einn son. Síðari kona hans var Guðrún Friðjóns- dóttir og eignuðust þau son. Guðmundur starfaði hjá Sambandi ís- lenzkra samvinnufélaga um árabil. Út- för Guðmundar verður gerð í dag frá Fossvogskirkju kl. 15.00. Anna Einarsdóttir Long, Nóatúni 32, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 16. desember kl. 13.30. Anna Gutlormsdótlir, Ljárskógum 2, lézt í Borgarspítalanum 13. desember. Einar Simonarson, múrarameistari, írabakka 26, andaðist í Landspítalan- unt 12. desember. Elin Sigurjónsdóttir, lézt á heimili sínu Dalbraut 27, mánudaginn 14. desember. Grimur Víkingur Þórarinsson, Gnoðarvogi 78, Reykjavík, iézt 12. desentber. Guðmundur Jóhannesson, læknir, Sigluvogi 4, Reykjavík, lézt áBorgar- spítalanum 13. desember. Utför Guðrúnar Á. Sigurgeirsdóttur, Andiát Brautarholti 5, Ólafsvík, fer fram miðvikudaginn 16. desember frá Foss- vogskirkju kl. 10.30. Jarðsungið verður frá Ólafsvíkurkirkju, föstudag- innl8. desemberkl. 13.30. Guðrún Þorvarðardóttir frá Gróttu, Ægisíðu 98, Reykajvík, sem andaðist 8. desember, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni fimmtudaginn 17. desember kl. 13.30. Ingveldur Teitsdóttir, Skúlagötu 13, Borgarnesi, lézt 12. desember. Jarðar- förin fer fram frá Borgarnesskirkju, laugardaginn 19. desember kl. 13.30. Jóna Magnúsina Þóroddsdóttir frá Flateyri, Blönduhlið 21, lézt í Land- spítalanum 13. desember. Rósbjörg Beck, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 16. desember kl. 13.30. Þórólfur Sölvason, Snjóholti, Eiðahreppi, andaðist á Landspítal- anum 4. desember sl. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þórólfur Sölvason Snjóholti Eiðahreppi, lést 4. desember 1981. Hann var fæddur á Seyðisfirði 14. júnlí 1916, en ólst upp í Snjóholti. Foreldrar Þórólfs voru Sölvi Sigfússon og Kristín Snjólfsdóttir. Hann var ókvæntur og vann við bústörf alla sína tið. Afmæli í gærkvöldi Af auglýsingum f úfvarpi Mig langar í þetta sinn að fara örlitið út fyrir beint verksvið þessa dálks. f honum er ætlunin að fjalla um útvarps og sjónvarpsdagskrá frá kvöldinu áður. Mig langar hins vegar til að segja nokkur almenn orð um þessa miðla eins og dagskrá þeirra kemur mér fyrir augu og eyru þessa dagana. Það sem mig langar að ræða um eru auglýsingar. Ég sé ekki betur en að sjónvarpið sé búið að þverbrjóta bæði islenzk lög og eigin samþykktir með auglýsingum. í lögum um verðlag samkeppnis- hömlur og óréttmæta viðskiptahætti segir meðal annars. „Óheimilt er að veita rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar í auglýsingum ...” Það veit hver sem horft hefur á sjónvarpsauglýsingar undanfarið að þessi lög eru þverbrotin. Þær villandi upplýsingar eru gefnar í nær hverri auglýsingu að fullkomin hamingja fylgi aðeins hlutnum sem verið er að auglýsa. Auk þess eru dregnir fram kostir hans og lýstir með skæru ljósi meðan göllunum er haldið leyndum. Ég hélt líka að í lögum væri bannað að beina auglýsingum til barna og unglinga eða annarra þeirra, sem áhrifagjarnir eru. Reyndar fann ég þau ákvæði hvorki í lögunum, sem ég nefndi áðan né í lögum um vernd barna-og ungmenna en held samt að einhvers staðar finn- ist um það ákvæði. Að minnsta kosti er það alveg siðlaust að beina nær öllum auglýsingum beint að barns- huganum. Hvað sem stendur i lögum. Eigin samþykktir hefur sjónvarpið einnnig kyrfilega brotið. í fyrra var þvi lýst yfir þegar auglýsingatímum var fjölgað að hver þeirra yrði aðeins 12 mínútur. Yfirlýsing um breytingu- á því hefur ekki verið gefin. Samt fóru auglýsingatímar um helgina síðustuuppí 14 og hálfamínútu. Útvarpið hefur aldrei sagt neitt um tímalengdina enda eins gott. Þar eru bókstaflega auglýsingar nær allan þann tíma sem sent er út. Ég get ekki ímyndað mér að þetta geti staðið undir kostnaði. Það hlustar bókstaf- lega enginn á útvarpið orðið í öllu þessu flóði. Dóra Stefánsdóttir. Jólamarkaður Goðatúni 2 við Hafnarfjarðarveg í sömu byggingu og Blóma- búðin Fjóla. Opið alla daga vikunnar frá kl. 13.00. Kvenfélagið Hringurinn Áheit og gjafir til Barnspítalasjóðs Hringsins. Minningargjöf um Magnús Má Héðinsson kr. 250.-, minningargjöf um Þorstein Ingólfsson kr. 15.00, minningargjöf um Ólaf Stephensen kr. 151.10, minningargjöf um Ingibjörgu Björnsdóttur frá Sigurlaugu Björnsdóttur kr. 1.000.00, áheit frá N.N. kr. 10.00. Einnig þökkum við þeim mörgu velunnurum fé- lagsins, sem ár eftir ár hafa veitt okkur ómetanlegan stuðning í sambandi við basar og jólakaffi félagsins og alla aðra hjálp. íþróttafélagið Leiknir lnnanhússa.fingar í knattspyrnu. 1. og 2. flokkur. Sunnudaga kl. 17.10. 3. flokkur. Sunnudaga kl. 15.30. 4. flokkur. Miðvikudaga kl. 19.10. 5. flokkur. Laugardaga kl. 15.30. 6. flokkur. Sunnudaga kl. 13.10. Ýmislegt Ferðafélag íslands Áramótaferð í Þórsmörk 31. des.—2. jan.; brottför kl. 07. Gönguferðir eftir því sem birtan leyfir, áramóta- brenna, kvöldvökur. Ef færð spillist svo, að ekki yrði unnt að komast í Þórsmörk, verður gist í Hér- aðsskólanum að Skógum. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni, öldu- götu 3. Fundir Næsti fræðslufundur Fugla- verndarfélags íslands verður haldinn í Norræna húsinu þriðjudaginn 15. desember 1981 kl. 8.30. Fundarefni: 90 mínútna mynd um Galapagoseyj- arnar í Kyrrahafi, um fugla og dýralíf þar. önnurmál. öllum heimill aðgangur. Stjórnin. Kvenfélag Neskirkju Jólafundur félgsins verður haldinn fimmtudaginn 17. desember kl. 20.30, Safnaðarheimilinu. Sýnd verður kvikmynd frá 40 ára afmæli félagsins o.fl. Frá Árnesingafélaginu í Reykjavík Árnesingafélagið í Reykjavik hélt aðalfund sinn 26. nóv. sl. í skýrslu formanns kom fram, að félagið stóð fyrir hinu árlcga Árnesingamóti í Reykjavík í marz og Jónsmessumóti austur í Árnessýslu 1 júni. Auk þess voru haldnar umfangsminni samkomur á vegum félagsins. Farið var í árlega gróðursetningar- ferð að Áshildarmýri á Skeiðum. Unnið er að þvi að reisa Ásgrimi Jónssyni listmálara minnisvarða á fæöingarstað hans Rútsstaöasuðurkoti i Flóa í sam- vinnu við fleiri aðila. Verður þvi verki lokið næsta vor. Fyrir ári Rekkst félagið fyrir útgáfu á söngva- safni Pálmars Þ. Eyjólfssonar tónskálds og organ- ista á Stokkseyri. Hefur sala þess gengið vel. Happdrætti Kiwainsklúbburinn Hekla, Jóladagatalahappdrættið Vinningsnúmer: 1. desember no. 574 2. desember no.651 3. desember no. 183 4. desember no. 1199 5. desember no. 67 6. desember no. 943 7. desember no.951 8. desember no. 535 9. desember no. 1004 1Ó. desember no. 2344 11. desember no. 172 12. desember no. 1206 13. desember no. 593 14. desember no. 2308 15. desember no. 2103 Happdrætti Dregið hefur veriö í happdrætti Félags ungra fram sóknarmanna. 14. desember var vinningsnúmerið 4656, 15. desember 3241. Númerin hafa verið birt jafnóðum i Dagblaðinu og Visi frá 1. desember. Kvenfélagið Hringurinn Hafnarfirði gefur 10.000 kr. Nýl. komu konur í stjórn Kvenfélagsins Hringurinn j Hafnarf. á fund forráðamanna Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og færðu félaginu að gjöf kr. 10.000,00. Við það tækifæri sagöi frú Ásthildur Magnús- dóttir, formáöur Hringsins m.a. eftirfarandi um starf félagsins: „Hringurinn I Hafnarfirði var stofnaður 1912 og .var tilgangur fél. aö koma fátækum börnum til sumardvalar i sveit.” Ásthildur sagði ennfremur að á þeim tlma hefði atvinna verið stopul og þetta því þótt mikill stuðningur. Síöar hefði félagið snúið sér að því að styrkja ýmiskonar velferðarmál og rétta peim hjálparhönd, sem i nauðum voru staddir. Margir hefðu lagt Hringnum liðsinni og m.a. hefði félagið verið arfleitt að dánarbúi. Hún sagði starf- semi félagsins binda félagskonur traustum böndum og veitti ekki af því á tímum hraða og upplausnar. Meðal verkefna kvennanna i „Hringnum” í Hafnarfirði til fjáröflunar, er árleg merkjasala síðasta vetrardag, svo og jólabasar, þar sem m.a. er selt laufabrauð er þær baka sjálfar. Myndin er frá afhendingu gjafarinnar til Styrktarfélagsins, talið f.v.: Óttar Kjartansson for- maður, Ingibjörg Bjarnadóttir, Þórdis Ásgeirs- dóttir, Ásthildur Magnúsdóttir, Þorgerður Gisla- dóttir, Jónina Guðmundsdóttir forstöðukona Endurhæfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut 13 og Sigurður Magnússon. framkvæmdastjóri Styrktar- félagsins. Ráöstefna lyfjafræflinga og apótekara Pallborðsumræflur lyfjafræðinga frá v.: Ásbjörn, Davið, Guðmundur, Almar, Jakob Werner og Ingolf. Dagana 13.-14. nóvember sl. gengust Lyfja- fræðingafél. íslands og Apótekarafél. íslands fyrir ráöstefnu um lyfjaiðnað á íslandi, stöðu hans i dag og framtíðarhorfur. Svavar Gestsson heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra flutti ávarp í upphafi ráðstefnunnar og vitnaði m.a. i fyrsta nefndarálit samstarfsnefndar um lyfjaiðnað. Á ráðstefnunni fluttu 19 fyrirlesarar erindi um jýmis efni varöandi lyfjaiðnað. 3 fyrirlesarar komu frá Danmörku. Þau voru þau Mette Rasmussen, aðjunkt við danska lyfjafræöiháskólann í Kaupmannahöfn, Soren N. Rasmussen, lcktor við sama skóla og Almar Grimsson deildarstjóri hjá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni i Kaupmannahöfn. Að loknum erindaflutningi var efnt til pallborðsumræðna um innlendan lyfjaiönað. Þátt- takendur i pallborðinu voru; Almar Grimsson, deildarstjóri, WHO, Ásbjörn Sveinsson, dcildar- lyfjafræðingur, Lyfjaverslun rikisins, Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður Félags islenskra iðnrekenda, Guðmundur Steinsson, deildarlyfja- fræðingur, Pharmaco, Guðmundur G. Þórarinsson, alþingismaður, Ingolf J. Petersen, deildarstjóri lyfjamáladeildar heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisisn cg Werner I. Rasmusson apótekari. Stjórnandi umræðnanna var Jakob L. Kristinsson deildarstj. i Rannsóknarstofu í lyfja- fræði, Háskóla Islands. Umræðurnar voru mjög liflegar og tóku áheyrendur virkan þátt í þcim. Ráðstefnan var vel sótt og voru lyfjafræðingar og apótekarar í meirihluta, en auk þeirra sóttu ráðstefnuna lyfjatæknar, lyfjafræðinemar, læknar alþingismenn o. 1. Ráðstefnan þótti takast mjög vel og var það mat manna að til staöar væri sú þekking, sem er forsenda fyrir stórauknum lyfja- iðnaði i landinu. í lok ráðstefnunnar var gestum hennar boðið að skoða framleiðsludeildir Lyfjaverslunar rikisins, sem voru teknar i notkun fyrir tveimur árum. Bella Þetta hljómaði ágætlega, þegar þér lásuð það upp fyrir mig, en nú hljúmar það eins og endemis della.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.