Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1981, Síða 40
*c
Fjölskynjunarmessa í Bústaðakirkju á sunnudag:
Ballett fyrir framan
altarið oggjömingar
— nýsiárleg messa í samvinnu kirkjunnar manna og listamanna
Harla óvenjuleg messa verður í
Bústaðakirkju næsta sunnudag.
Listamenn úr mörgum greinum setja
saman messuna, sem kölluð er
fjölskynjunarmessa. Undirbúning
messunnar annast starfshópur á veg-
um Skálholtsskóla og Kirkjuritsins.
Oddur Albertsson, kennari við
Skálholtsskóla, sagði í morgun, að
upphaf þessa máls væri ráðstefna um
myndlist og kirkju, sem haldin var sl.;
vor.
Það kom í ljós að kennimönnum
og listamönnum fannst mjög gaman
að vinna saman og verður starfinu nú
haldið áfram. í fjölskynjunar-
messunni reyna menn að setja saman
messu, þar sem öll skynfæri eru
notuð. í upphafi messunnar á
sunnudag verður afríkönsk messa,
síðan kirkjuleikur, sungnir friðar-
söngvar, ljóðalestur, farið með
reykelsi og gjörningar.
Þá verður ballett fyrir framan
altarið og gregorískur söngur. Há-
mark messunnar verður altarisganga,
en emnig verður samtalspredikun sr.
Auðar Eir Vilhjálmsdóttur, sr.
Bernharsðs Guðmundsonar og sr.
Heimis Steinssonar. í lokin verður
bæn fyrir friði í heiminum og
sólóleikur á saxófón.
Meðan á öllu þessu stendur mála
málarar stórt verk og geta þátt-
takendur í messunni fylgzt með þeirri
gjörð. „Ef einhver getur hjálpað
kirkjunni til endurnýjunar, þá eru
það listamenn,” sagði Oddur. ,,Við
ungir menn innan kirkjunnar viljum
vekja umræðu. Fólk á að koma úr
messunni snortið og ánægt eða
jafnvel reitt. Það er betra en hinn
hljóðláti hópur sem lætur sig
kirkjustarf engu varða.”
-JH.
ökumaður þessa Cortina-
bíls var fluttur á slysadeild
Borgarsprtalans rótt fyrir
miðnætti. Hann missti
stjórn á bílnum í hálku á
Suðurlandsbraut, gegnt
gróðrarstöðinni Valsgarði.
BíHinn vafðist utan um
Ijósastaur og ergerónýtur.
DV-myndJR.
„Vonlaust að ná sambandi við þá”
,,Við höfum ekkert frétt af þeim
síðan á laugardag. Svo virðist sem
vonlaust sé að ná sambandi við þá.
Það er greinilega allt lokað á Pól-
land,” sagði Þórhallur Helgason,
framkvæmdastióri Hraðfrystistöðv-
arinnar hf. i Reykjavík, við DV í
morgun,
Þrír menn frá fyrirtækinu eru
staddir f Póliandi þessa dagana vegna
breytinga á tveimur skipum fyrirtæk-
isins, Viðey og Engey. Hefur ekkert
spurzt til mannanna frá þvi herinn
tók völdin í Póilandi.
„Samkvæmt síðustu fréttum sem
við höfðum af mönnunum,” sagði
Þórhallur, „var áætlað að tveir
þeirra flygju frá Varsjá til London
síðdegis i dag. Ég býst ekki við að við
fréttum neitt af þeim fyrr en þeir
komast vestur yfir. Þeir konta síðan
til landsins um næstu helgi.
Ég verð að vona að mennirnir fái
brottfararleyfi i dag. Ég veit ekki til
þess að mönnum sé haldið í landinu
þótt herinn hafi lekið völdin,” sagði
Þórhallur. -SER.
Mörg mál ráðherra geymast líklega f ram á næsta ár:
Fá aðeins fjáriög og
lánsfjáriög afgreiöslu?
Talsvert þjark varð i sameinuðu
þingi þegar hefja átti 2. umræðu um
fjárlagafrumvarpið fyrir 1982 í gær.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar,
Óláfur G. Einarsson og Sighvatur
Björgvinsson, mótinæitu harðlega
þeim vinnubrögðum að leita afbrigða
vegna þessarar umræðu en breyting-
artillögur allar lágtt ekki fyrir fyrr en
í upphafi þessa fundar. Afhrigði voru
síðan samþykkt nteð 31 atkvæði
stjórnarliða.
Alls voru 11 ræður fluttar um
þingsköp af þessu tilefni. Stjórnar-
andstæðingar kváðu ekkerl hafa
verið rætt við þá um þinghald fram
að jólaleyfi þrátt fyrir venjur og óskir
og var vitnað til orða Pálma Jónsson-
ar sem gegndi störfum forsætisráð-
herra i síðustu viku.
Þá var skýrt frá því að ráðgerður
hefði verið „útbýtingarfundur” í
Sameinuðu þingi á laugardag til þess
að dreifa breytingartillögum við fjár-
lagafrumvarpið en sá fundur hefði
fallið niður án skýringa. Forseti, Jón
Helgason, skýrði frá því að ekki
hefði reynzt tæknilega unnt að útbúa
allar tillögurnar til dreifingar.
Forsætisráðherra gerði lítið úr
nauðsyn á samráði við stjórnarand-
stöðuna þar sem einungis væri ætlun-
in að afgreiða fjárlög og lánsfjárlög,
svo og staðfestingu á bráðabirgða-
lögum um gengismál og lög um tíma-
bundið vörugjald sem væru vel á vegi
í meðförum þingsins.
Þeir Halldór Blöndal og Sighvatur
Björgvinsson tóku orð forsætisráð-
herra óstinnt upp. Taldi Halldór
hann sýna stjórnarandstöðunni litils-
virðingu og þar í ofanálag yrðu láns-
fjárlög leikaraskapurinn cinn með
þeirri afgreiðslu sem nú væri fyrir-
huguð. Sighvatur minnti á allmörg
mál sem einstakir ráðherrar hefðu
lýst mikilvægt að yrðu afgreidct fyrir
jólaleyfi, um Hæstarétt, félagsmál,
skattamál, virkjanamál og byggða-
línugjald. hann kvaðst taka orð for-
sætisráðherra svo að þessi mál öll
geymdust fram á næsta ár. Var ekki
gerð athugasemd við það.
Á meðan þessar umræður um
þingsköp stóðu breytti forseli tvívegis
ákvörðun sinni um framgang 2. um-
ræðu um fjárlögin. Ákvað hann að
lokum að umræðunni yrði ekki lokið
fyrr en á morgun.
HERB.
trjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 15. DES. 1981.
Ríkisstjórnin:
Fordæmir
ofríkið
„Setning herlaga og afnám mann-
réttinda í Póllandi er atburður
sem vakið hefur óhug víða um heini,”
segir í ályktun ríkisstjórnarinnar sem
gerð var í gærdag.
Ríkisstjórnin „fordæmir beitingu
sliks ofríkis og lætur þá von í ljós að
Pólverjum takist, þrátt fyrir allt, að
leysa vandamál sín án blóðugra átaka.
Sérstök ástæða er til að vara við þeirri
hættu sem friði og öryggi í Evrópu
getur stafað af utanaðkomandi íhlutun
i atburðarrásina í Póllandi,” segir í
ályktuninni.
Þá hefur blaðinu borizt ályktun frá
þingflokki Sjálfstæðisflokksins þar
sem valdataka hersins er hörmuð og
lýst yfir stuðningi við pólsku þjóðina.
-SG.
Ílífs-
hæffu
effir
vinnuslys
Sautján ára piltur liggur þungt
haldinn á gjörgæzludeild Borgar-
spítalans eftir vinnuslys er varð um
borð í Úðafossi í gærmorgunn.
Pilturinn mun hafa verið að færa til
rafmagnslyftara í lest skipsins er hann
rak höfuðið undir stálbita. Hann mun
ekki hafa unnið á lyftaranum að
staðaldri.
Pilturinn hlaut mjög alvarlega
höfuðáverka og þegar DV spurðist
fyrir um líðan hans í morgun var hann
enn í lífshættu.
-ELA.
Ætii Bruni BB muni troða
upp í kirkjum næst með
hænurnar og alltþað ?
c ískalt
aeven up.
T>f
hressir betur.