Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1981, Side 8
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1981.
Logandi bambusblys sem hægt er að nota aftur og
aftur. Þarf aðeins að fylla hylkið af steinolíu og þá
helst loginn í 2-3 tíma, þolir vind og regn, og gefur
gott Ijós. Gefur sérstakan hátíðablæ.
Tilvalið í GARÐINN - Á LEIÐIÐ í KIRKJUGARÐINN -
FYRIR SKÍÐAFÓLK, í BLYSFARIR - TIL AÐ
KVEIKJA Á RAKETTUM O.FL.
Bráðskemmtileg amerísk kvikmynd í litum, með hinni
ólýsanlegu Goldie Hawn í aðalhlutverki.
Hvernig bregztu við þegar fyrrverandi eiginmaöur konu þinnar
er ákærður fyrir bankarán og hann ákveður að fela sig undir
hjónarúminu þínu?
Sýnd annan og þriðja í jólum kl. 3,5,7,9 og 11.
Hækkað verð.
BAMBUS BLYS
miðnæturmessur
vegna jólanna
Létta ögn á útgöngubanni og feröatakmörkunum
Ymis merki sjást nú þegar, að
kommúnistaleiðtogar Póllands séu að
komast á kreik út úr skugga herlag-
anna. Um leið berast fréttir af því að
einhverjum takmörkunum og bönnum
herlaganna hafi verið aflétt.
Varsjárútvarpið sagði í gærkvöldi
að æðstaráð flokksins hefði komið
saman til þess að ræða ástandið í
landinu. — Hefur um leið kvisazt að
Jaruzelski hershöfðingi búi sig undir að
birtast í sjónvarpinu, sem verður þá í
fyrsta sinn siðan hann tilkynnti að her-
lög hefðu tekið gildi. Það var fyrir tíu
dögum.
Er sagt að Jaruzelski muni koma
fram í sjónvarpi í kvöld eftir að aflétt
hefur verið að nokkru ferða-
takmörkunum yfir jólahátíðina. Um
leið berast fréttir af því að minna beri
orðið á hermönnum i Varsjá.
Varsjárútvarpið tilkynnti í gær-
kvöldi, að útgöngubanninu yrði aflétt
á aðfangadagskvöld um allt land, svo
að fólk geti sótt hina hefðbundnu
miðnæturmessu jóla.
Mesta athygli vekur fréttin um fund
æðsta ráðsins sem ekki er vitað til að
hafi komið saman síðan herlögin voru
sett á. Vilja ýmsir ætla að það sé merki
um að herinn telji sig nú hafa nægileg
tök á ástandinu til að stjórnmálalífið
geti vaknað af herlagadvalanum.
Aðrar fréttir berast samt um leið frá
Póllandi um að verkamenn andæfi
enn gegn hernum og þá aðallega í
borgunum við Eystrasaltið og i Sílesíu,
aðaliðnaðarhéraði Póllands. Þó hefur
útgöngubannið í Gdansk verið stytt
niður i átta klukkustundir. Það var
lengra í Gdansk en annars staðar eftir
göturósturnar í síðustu viku, þar sem
ætlað er að meira en 300 manns hafi
særzt.
Allar fréttir hníga að því að and-
spyrna verkamanna sé enn mest í
Gdansk. Ferðafólk, sem þaðan fór
síðasta mánudag, sagði að hundruð
verkamanna hefðu þá haft
olíuhreinsunarstöðina á sínu valdi.
Hún var umkringd brynvögnum og
herliði. Sögðu þeir ennfremur frá því
að verkamenn hefðu búið um sig i
skipasmíðastöðvum í bæði Gdansk og
Gdynía.
Varsjárútvarpið sagði í gærkvöldi
að nær 3000 námamenn hefðust enn
við niðri í námunum í Ziemowit og
Piast. Útvarpið bætti því við síðar, að
hryðjuverkamenn hindruðu náma-
mennina 1 að komast upp á yfirborðið.
En það eru sömu skýringar og Tass og
Moskvuútvarpið hafa gefið sínum
áheyrendum í hópi námamanna.
Af Lech Walesa, leiðtoga Einingar,
berast misjafnar fréttir. Sumar herma
að hann neiti að ræða við yfirvöld og sé
stöðugt fluttur, í varðhaldinu, á milli
fangels^, Aðrar greina frá því, að hann
sé í hungurverkfalli. Enn aðrir ympra á
að hann muni alveg á næstunni birtast í
sjónvarpi.
Eftir heimildum, sem standa í
sambandi við kaþólsku kirkjuna í
Póllandi, er haft að Walesa sé við
sæmilega heilsu og að ranghermt sé að
hann hafi fengið hjartaslag, eins og
einn kvitturinn flutti.
Þá herma fréttir að leifar hinna áður
máttugu samtaka Einingar dreifi þessa
dagana fregnmiðum í Varsjá, þar sem
fólk er hvatt til þess að mynda „hópa
félagsleg andófs” gegn herstjórninni.
Ólikt fyrri dreifimiðum eru þessir
sagðir auðsjáanlega margritaðir með
kalkipappír á ritvélum. Ætla menn af
því, að yfirvöld hafi náð að leggja hald
á fjölritunarvélar þessara tíu milljón
manna samtaka.
í Varsjá sjást enn fjölmennir her-
flokkar á varðgöngu um stræti og við
skoðunarbiðstaði. Þó þykir minna bera
á hernum en fyrstu vikuna, Færri
skriðdrekar sjást og hermennirnir ekki
eins víða.
Bankar á Vesturlöndum, lánar-
drottnar Póllands, hafa nú ákveðið að
synja beiðni Pólverja um frekari lán. Á
sameiginlegum fundi þeirra var hafnað
umsókn um 350 milljón dollara auka-
lán til þess að standa skil á afborgunum
og vöxtum á þessu ári.
verslunin #|
Mamla
Suðurlandsbraut 6, sími 31555
Starfsmenn skipasmlðastöðvar i Gdansk héldu að sér húndum eftir að herlögin tóku gildi.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
18936
Jólamyndin 1981
GÓÐIR DAGAR GLEYMAST El
Chevy 9,°'^® Charles
Chase Mawn Grodin
Allt Gdansk-héraðið var um tima einangrað með vegatáimum, skríðdrekum og varðflokkum hersins, en þar virðist andspyrn-
an hafa veríð mest og ekki öll fjöruð út enn.
Yfirvöld leyfa