Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIDVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1981.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
HERSHÖFÐ-
INGINN SAGÐ-
UR MYRTUR
—en álitið vera blekking til að leiða
ieitarmenn á villigötur
Ottast hefnd
KGB yfir Sakharov
Það hefur verið borið til baka í
Washington að James Dozier hershöfð-
ingi hafi verið drepinn af Rauðu her-
deildunum, sem ræmdu honum af
heimili hans í Veróna á dögunum.
ítalska fréttastofan Ansa skýrði frá
því í gaer að nafnlaus maður hefði full-
yrt, í símtali við fréttastofuna, að
hryðjuverkamennirnir hefðu dæmt
hershöfðingjann til dauða og að lík
hans mundi finnast í gærkvöldi.
„Lík ameríska svínsins er í sveita-
Ræningjarnir tilkynntu síðasta
laugardag að Dozier hefshöfðingi væri
fangi í „fangelsi alþýðunnar” og
mundi koma fyrir „dómstól alþýðunn-
ar”. En engar kröfur hafa enn verið
lagðar fram fyrir lausn hans.
James Dozier hershöfðingí er talinn
vera enn á Iffi á valdi ræningja sinna,
þrátt fyrir upphringinguna i gær.
Lisa Alexeyeva, tengdadóttir Sakh-
arovhjónanna, sagði i gær að hún kviði
því að þeim væri ekki óhætt. Sagðist
hún biðja þess í bænum sínum að
hjónunum yrði leyft að flytja úr Sovét-
ríkjunum.
Sjálf fékk hún ekki að flytja úr landi
til eiginmanns síns, Alexei Semyonov, í
Bandarikjunum, fyrr en Sakharov-
hjónin höfðu farið í hungurverkfall til
að knýja á með henni.
,,Ég er alsæl hér. Ég vona að Banda-
ríkin verði mitt föðurland. Ég vona að
Sakharovhjónin fái einhvem tíma að
koma til þessa lands,” sagði Lisa á
blaðamannafundi í gær. Það eina, sem
skyggir á hjá henni, eru áhyggjurnar af
tengdaforeldrunum og vinum austan
tjalds.
Alexei sat einnig þennan fyrsta fund
Lisu með fréttamönnum síðan hún
kom vestur um haf. Hann sagðist kvíða
því að KGB-lögreglan sovézka mundi
hefna þess á foreldrum hans hvernig
þau svínbeygðu sovézk yftrvöld með
hungurverkfallinu. Sakharovhjónin
voru að hans mati algerlega upp á náð
og miskunn KGB komin í útlegðinni í
Gorky.
Alexei og Lisa hafa bæði skorað á
sovézk yfirvöld að leyfa Sakharov-
hjónunum að búa á sumarhúsi þeirra,
skammt utan Moskvu.
Lisa sagði fréttamönnum að á
siðustu þrem árum hefðu sovézk yfir-
völd hreinsað til meðal andófsmanna.
— „Þessi þrjú ár voru ægileg. Þetta
voru ár stöðugra ofsókna. Þó get ég
ekki sagt, að mannréttindabaráttan sé
öll. Það er enn til fólk, þótt það sé
fátt.”
Hún sagði að þegar hún siðast hitti
Sakharov, hefði hann ekki útilokað
möguleikann á þvi að fara til Banda-
ríkjanna. Hann hafði þó bætt því við,
að hann réði því ekki.
þorpi og mun lögreglan finna það eftir
klukkan 20 að ítölskum tima,” sagði
maðurinn í símanum. Hann talaði ara-
bís.ku með hreim Libanonmanna.
Talsmaður yftrstjórnar bandaríska
hersins bar þessa frétt til baka: „Hún
er algjör tilbúningur og ekki fótur fyrir
henni,” sagði hann. Neitaði hann að
svara spurningu fréttamanna um
hvernig Pentagon gæti verið svo viss
um að fréttin fengi ekki staðizt.
Lögreglan i Veróna á Ítalíu segist
gruna Rauðu herdeildina um að reyna
með þessu að blekkja leitarmenn svo að
þeir villist af slóðinni.
Slík brögð hefur Rauða herdeildin
viðhaft áður. Eftir ránið 1978 á Aldo
Moro var lögreglan einmitt með sím-
hringingu leidd á villigötur til þess að
leita að líki hans i stöðuvatni norður af
Róm.
Maðurinn í símtalinu við Ansa byrj-
aði orðsendingu sina á þessa leið:
„Rauðu herdeildir Baader Meinhof til-
kynna eftirfarandi ...” — Hann fór
ekki nánar út í það, hví Baader
Meinhof væri nefnt i sömu andránni og
Rauðu herdeildirnar. — Þessi þýzku
hryðjuverkasamtök hafa aldrei fyrr
verið orðuð í yfirlýsingu Rauðu her-
deildanna vegna mannrána þeirra.
IhaJCita.
Rafmagns-
handverkfæri
til jólagjafa —
Ótrúlega
hagstœtt verö.
Q PÓR^ BllVII B'1500-ARIVIÚLAn'l
/-tigiv
brunsleðarnir eru
ekta sænsk gæða-
vara, hraðskreiðir,
sterkir og öryggir.
Verð kr. 651.-.
/-TIGPk
barnasleðar —
níðsterkir, léttir og
mjög öryggir. Fyrir
börn 6 ára og yngri.
Verð kr. 399.-.
ÞEIR ERU KOMNIR!
• •
Spítalastíg 8 og við Óöinstorg.
Símar: 14661 og 26888.
sænsku brunsleðarnir frá STIGA sem hafa farið
sigurför um hin Norðurlöndin