Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982.
„Ég myndi ekki sofa rólegur íþeirra sporum”
KERFn) TEFUR NEYÐAR-
BAUAMHMSU FLOTANS
—baujur komnar í alla gúmmíbáta, ef kerf ið hefði ekki hrin
með eigin reglugerð
,,Ég myndi ekki sofa rólegur í
þeirra sporum,” sagði maður sem
hafði samband við DV og kvað kerfið
standa í vegi fyrir framkvæmd eigin
reglugerðar um að setja skuli sérstakar
neyðarbaujur í alla gúmmibjörgunar-
báta á skipaflotanum. Reglugerðin er
siðan 1979, en ennþá eru ekki
komnar baujur í nema rúmlega þriðj-
ung bátanna að þvi er bezt er vitað.
Þessar neyðarbaujur senda út
hljóðmerki eingöngu á tíðni flugvéla-
fjarskipta. Reglugerðin skipar svo
fyrir að þær skuli senda út á tveim
tíðnum, bæði fyrir farþegaflug og
herflug. Miðað er við tiltekinn styrk-
leika og 48 tíma sendilima.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflað sér var fyrirtækið Rafis
hf. að láta hanna i Noregi baujur sem
uppfylltu kröfurnar þegar samgöngu-
ráðuneytið veitti Asiaco hf. undan-
þágu til þess í fyrra að selja hér
brezkar baujur sem senda aðeins á
fullum styrk áannarri tíðninni.
„Við værum búnir að fullnægja
eftirspurn og metta markaðinn, sem
er um 1.800 tæki, ef þessi undanþága
hefði ekki sett strik í reikninginn. Við
vorum búnir að semja við Öryrkja-
bandalagið um samsetningarvinnu
hér en úr þvi hefur ekki orðið þar sem
verulegur kostnaður fylgir þvi að
færa framleiðsluna hingað og óvissa
skapaðist um markaðinn,” sagði
Geir Svavarsson hjá Rafis hf. „Norð-
menn hikuðu einnig og þess vegna
höfurn við aðeins getað afgreitt 280
baujur síðan í haust.”
Baujurnar frá Asiaco hf. komu á
markaðinn nokkru fyrr og eru
komnar í yfir 500 báta, að sögn tals-
manns fyrirtækisins, Benedikts
Blöndal hr. Sala þeirra var hins vegar
stöðvuð um áramót, þegar fyrirtækið
auglýsti þær fyrir rjúpnaskyttur.
í viðræðum við ýmsa embættis-
menn og hagsmunaaðila komu fram
mjög mismunandi og jafnvel gagn-
stæðar upplýsingar og Ijóst er að
veruleg sárindi hafa orðið út af gangi
mála varðandi neyðarbaujurnar.
Baujurnar eru taldar geysilega
mikilvægt öryggistæki og í viðræðum
DV við slysavarnamenn og sjófar-
endur tóku þeir mjög í sama streng
og sá sem vakti athygli blaðsins á
málinu.
Að sögn Brynjólfs Ingólfssonar
ráðuneytisstjóra ætlar hann nú að
taka málið upp við ráðherra og
freista þessaðskeraá hnútinn.
-HERB.
Knapi og gæðingur hans urðu fyrir bí/á Bústaða veginum 6 móts viö Fáksheimilið á föstu-
dagskvöki Knapinn var fkittur á sjúkrahús, bMKrm skemmdbt taisvert en ekki fer frekari
sögum af reiðskjótanum. Á myndinni má s/á hvernig bifreiðin leit út eftir að hafa rekizt á
knapann og reiðskjóta hans. DV-mynd S. -SSv.
Nú er tækifærið
Frískaðu upp á eldhúsið með glæsilegum tækjum frá KPS. Við
bjóðum þér þetta sett C/davél ásamt gufugleypi á sérstöku verði
með afbragðs kjörum — kynntu þórþau.
Þetta færðu með í kaupunum:
1. Gufugleypi með Ijósi, 2 hröðum, klukku og fjar-
stillibúnaði fyrir eldavél.
2. Eldavól með 4 hellum, upplýstu takkaborði.
3. Grillofn að ofan með rafdrifnum grillteini. Sjálf-
hrcinsandi ofn.
4. Stór ofn að neðan sem líka er hægt að steikja og
baka í.
5. öryggisgler í hurð og barnaiæsing.
6. Fallegir litir: gulur, grænn, rauður, svartur og
hvítur.
7. Verð, eldavél og vifta, kr. 9.644,- kolsía kr. 900,-
Láttu ekki þetta góða tilboð ganga þér úr
greipum. Líttu inn og kynntu þér kjörin á
(i KPS PA 460 eldavólinni.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BE RGSTAOASTRÆTI 10 A
Sími 16995.
RAF HF.
Akuroyri. Glorárgötu 26. — Sími 25951.
Ákvörðun um steinullarverksmiðju:
„Ekki í sjónmáli”
— segir H jörleifur Guttormsson, iðnaöarráðherra
„Frekarl viðræður við áhugaaðila
eiga eftir að fara franr áður en ákvörð-
un verður tekin. Ég sé ekki að hún sé
isjónmáli,” sagði Hjörleifur Guttorms-
son iðnaðarráðherra er DV innti hann
eftir því í morgun hvort ákvörðunar
um staðsetningu steinullarverksmiðju
væri að vænta innan skamms.
Nú er talið líklegra að Sauðárkrókur
verði frekar fyrir valinu en Suðurland.
Ráðgjafar iðnaðarráðherra I þessum
málum hafa komizt að þeirri niður-
stöðu að verksmiðja af þeirri stærð sem
Sauðkræklingar itafa i hyggju að reisa
sé hagkvæmari en sú af þeirri stærð
sem Sunnlendingar vilja reisa.
Forráðamenn Jarðefnaiðnaðar, sem
standa að baki Suðurlandsverksmiðj-
unni, og forvígismenn Sauðárkróks-
verksmiðjunnar voru beðnir um
viðbótarupplýsingar fyrir jól varðandi
verksmiðjurnar. Voru þær sagðar
nauðsynlegar til þess að skýra málin
frekar.
Iðnaðarráðherra vildi ekkert láta
hafa eftir sér frekar um málið I morgun
en tryggar heimildir telja líkurnar, á að
verksmiðjan á Sauðárkróki verði ofan
á, yfírgnæfandi.
-SSv.
Fáskrúðsfjörður:
Landað úr báð-
um togurunum
Skuttogarinn Hoffell landaði 100
tonnum af fiski á Fáskrúðsfirði á föstu-
daginn og í gær landaði Ljósafellið 130
tonnum. Þetta er fyrsti fiskurinn sem
berst á land síðan fyrir jól. Vinna er því
með eðlilegum hætti í frystihúsi kaup-
félagsins.
Unnið var við ýmsar lagfæringar í
frystihúsinu i togaraverkfallinu og
breytingar i flökunarsal. Bátar hafa
ekki hafið róðra frá Fáksrúðsfirði
ennþá en unnið er að því að gera þá
klára.
Guðmundur Kristinn SU, eign Pólar-
síldar hf., skemmdist rnikið í höfn á
Neskaupstað í óveðrinu sem gekk yfir'
landið aðfararnótt 14. janúar sl. Skipið
lamdist við bryggjuna og komu miklar
dældir I stjórnborðssíðu skipsins, allt
að 40 sm djúpar. Óvíst er hvenær
báturinn verður tilbúinn á veiðar.
-Ægir Fáskrúðsfirði.
/ Samþykkt austur-skaftfellskra kvenna:
Konur í allar
hreppsnefndir
Fundur Sambands austur-skaft-
fellskra kvenna, haldinn í Holti á
Mýrum, samþykkti að skora á alla
sýslubúa að kjósa konur í næstu
sveitarstjórnarkosningum. Konurnar
leggja metnað sinn í að konur eigi sæti i
öllum hreppsnefndum sýslunnar.
Tvær konur eiga nú sæli í hrepps-
nefnd Mýramanna og eru þær öðrum
fordæmi. -Júlía Höfn.