Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982. MÁLVERKA OG MYNDAINNRÖMMUN Mikið úrval af speglum í römmum. INNRÚMMUN SIGURJÖNS ARMÚLA 22 - SlMI 31788 MYNDA OG MÁLVERKASALA I5BEUKHK1 ;:sLszs^szsLsisiszsisz5isisLrLS2jrE5isLs«LS-LSzsL5Esas2sisz5LSL5i5i5LSLSLsisLSLSLJLSLSLSLn ER ALLT ÓFÆRT Á NÝJU ÁRI? Hringdu þá í síma 1 86 10 □ Bókhald □ Launamiðar □ Skattframtöl □ Tollskýrslur □ Verðútreikningar □ Launaútreikningar íznsisiíTJinnjznizníisinnsiníznsTjmíiszsiriíTiísísííiíisisirararinníini!! H. GESTSSON viðskiptaþjónusta — Hafnarstræti 15,101 Rvík.| Sími 1 86 10. SMÁAUGLÝSINGÍ ATHUGIÐ! ER ENGIN SMÁ-A UGL ÝSING Opið alla virka daga frá kl. 9—22 » Laugardaga frikl. 9—14 Sunnudaga frá kl. 14—22 muuiwÆmm Smáauglýsingadeild—Þverholti 11— Sími27022 SUÐUVÉLALEIGAN AUÐBREKKU 63 KL. 16-19 SÍMI 45535 Leiga á MIG suðuvélum ásamt vír og kút Kolsýra og blandgas. Urval af bílaáklæðum (coverum) Sendum i póstkröfu. Altikabuðin Hverfisgötu 72. S. 22677 VANTAR &G FRAMRUÐU? rfT Ath. hvort viðgetum aðstoðað. ísetningar ú staðnum. BÍLRÚÐAN Menning Menning Mennin 1 — i i ' Skáld vill hann verða FLÖKKULÍF Æskusaga Haniwur Sigfús.onar skálds. Iðunn 1981.232 bb. Frásögn Hannesar Sigfússonar, I þessari bók, lýkur um vorið 1945. Þá fer undir stríðslokin ferðahugur um unga menn, Hannes býst eins og fleiri skáldefni og listamenn á braut af land- inu. í sögulokin ber hann á bál handrit sín og þar með væntanlega einnig skáldagrillur og frægðardrauma frá umliðnum árum, allt frá því að hann fékk köllun til skálds og hljópst þar með úr gagnfræðaskóla, átta árum fyrr. Þegar hér er komið er hann 23ja ára gamall. Flótti hans úr Ingimarsskólanum, öðrum bekk, vegna ópolandi leiðinda er fyrsta, en hreint ekki síðasta, dæmið um það hvernig köllunin til skáld- skapar og skrifta beinir honum hvað eftir annað út af settri braut. Móðir hans lætur sér annt um hann og hjá henni á hann jafnan athvarf. Úr því drengurinn vill ekki ganga í skóla tekst henni að útvega honum vinnu hjá heildsölu sem brátt er komin í uppgang á striðsárunum. Hannes ferðast landið um kring sem sölumaður og á um siðir kost á því að gerast innkaupastjóri heildsölunnar í New York. Um svipað leyti kynnist hann stúlku sem verður barnshafandi eftir hann. og eru þau heitbundin um skeið eftir barnsfæðing- una. En í rauninni er honum jafn- ógeðfellt, sölumennska og hjúskapur, hin beina og settlega borgaralega braut framundan. Hann svíkur stúlkuna og segir upp vinnunni. Skáld vill hann verða. í öðrum tilfellum beinir köllunin honum inn á óvæntar brautir — til Noregs að læra refarækt, upp í Borgar- fjörð að hirða refi, í fjósamennsku austur í Hreppa, til Hveragerðis að þýða bók. Refahirðing og fjósa- mennska stafa af þeirri hugmynd Hannesar að svo sem hálft starf við búskap sé hagkvæmt verðandi rit- höfundi til að hafa í sig og á, en meðfram bústörfunum gefist nóg næði til að sinna rithöfundarköllun. Þetta er auðvitað argasta sjálfsblekking. Það verður sist meira úr skáldskap en áður meðan skólanám og sölumennska spilltu fyrir honum tímanum. Hvað þá um þýðingarnar? Það kemur að vísu á daginn að kunnátta í dönsku, vélritun og stafsetningu er ónóg til þessara verka. Og þótt næði sé nóg vill andinn ekki koina þegar maður ætlar að fara að yrkja sjálfur. Þar er skáld vort statt að sögulokum þegar hann ber æsku- drauma sína á bál. Maðurinn er að sönnu ungur. Og skáldadraumur hans hafa ekki gengið upp með handritunum á bálinu í Reykjadal. Fjórum árum eftir að sögunni lýkur, árið 1949, kemur út fyrsta bók Hannesar Sigfússonar, Dymbilvaka. Og einasta ástæða les- andans til að skeyta um æskuminning- ar hans hlýtur að vera áhugi manns á því skáldi sem þar kom fram, skáldi Dymbilvöku. Það skrýtna við Flökkulíf er hinsvegar hve lítið bókin segir manni sem máli skiptir og skiljan- legt er um aðdraganda og undirrætur þeirra nýstefnu, móderisma í ljóðagerð sem fram kom í þeirri bók og ljóðum fleiri „atómskálda” um svipað leyti. Þeir sem hafa af einhverjum ástæðum áhuga á þessu efni, uppgangi atóm- skálda, og hafa hans vegna iesið t.d. hinar löngu, löngu frásagnir Jóns Óskars af sinni æsku og uppvexti, — þeir kannast hins vegar meira og minna við það sem frá er sagt í bókinni. Ævin- týri Hannesar við refarækt, sögulestur í útvarp á ungum aldri, sölumennskan, ástríðufullur áhugi hans á skáldum og skáldskap, skáldbræðralag og tón- listariðkun ungra manna á stríðs- árunum, frá öllu þessu var Jón búinn að segja áður. Bókmenntir Ólafur Jónsson Það kemur ekki fram i þessari bók hvort Hannes Sigfússon hefur í hyggju að halda eins og Jón Óskar áfram að segja frá skáldatima sínum eftir að þessari bók sleppir. Og þá er hann sem séenn ekki orðinn skáld. Æskusaga hans er að vísu blessunarlega laus við þá beiskju og gremju sem í vaxandi mæli auðkennti minningar Jóns Óskars eftir þvi sem á þær leið. En sammerkt finnst mér frásagnir þeirra af önd- verðum skáldatíma sinum eiga í því að þær lýsa skilmerkilega ástríðufullum áhuga höfundanna á skáldskap, köllun þeirra til skáldskapar, en láta ósagt, óskýrt, af hverju eiginlega þessi ástríða hafi stafað eða að hverju hún hafi beinst. öðru en því að verða fyrir hvern mun skáld og snillingar sjálfir. Sérkennilegt er líka hvernig skáld- skaparástriðan beinir þeim á burt frá skólanámi og reglulegu starfi. Að sönnu er það bæði ný saga og gömul að skáld haldist illa við í skólum. Og menntunar má vitanlega afla sér með öðrum hætti en skólagöngu. En ekkert bendir til þess að þeir hafi í æsku sinni leitast við að ,,læra til rithöfundar” með neinum skipulegum hætti í eða utan skóla, eins og margur maður hafði þó gert á undan þeim. Og það er sérkennilegt þar sem aðrir ungir menn með áhuga á listum, myndlist, tónlist, leiklist, fara á sama tíma í vaxandi mæli að leita sér starfsmenntunar í sínum greinum. Skáldefnin virðast hinsvegar trúa fast á snilligáfuna sem allt veiti manni af sjálfum sér. Og finna jafnframt sárt til þess að til að verða skáld þurfi menn að kosta sér öllum, sínum kröftum. Af frásögninni í flökkulífi að sjá gengur Hannes Sigfússon sem í leiðslu eða draumi mestöll sín bernsku- og unglingsár hefur að visu markmið framundan: að vera rithöfuridur, en enga hugmynd um hvernig eigi að ná þvi. Og lætur að öðru leyti hverjum degi nægja sína þjáningu. Líkast til segir það meira um höfundinn á ungum’ aldri hvað hann ekki vill gera og verða heldur en hitt sem hann í raun og veru tekur sér fyrir hendur. í sögulokin er honum loks orðið að ljóst að hann hefur eytt mörgum undanförnum árum „til ónýtis” eins og sagt er. Það má ætla að i „nýju lifi” sem þá á að byrja verði um síðir til skáldið sem fjórum árum síðar kom fram i Dymbilvöku. En af því er önnur saga. Frásögn sinni i þessari bók lýkur Hannes Sigfússon með smásögu, Úr hugmyndaheimi Aðaljóns nefn- ist hún, sem er samin sextán árum siðar og er að sjálfs hans sögn sannorð lýsing á hugarástandi hans um þær mundir sem æskusögunni lýkur. Sagan er að efninu til einskonar skrýtla um taugabilaðan ungan mann i utanlandsför. En hitt má vera að sjálft óþolið, taugaspennan sem sagan lýsir sé. fróðlegri um upphaf skáldskapar en bein og hversdagsleg æviatriðin. Þá má eins spyrja hvort frásagnarefnið í Flökkulífi sé innst inni umfram allt hráefni ósamins skáldskapar. Óort skáldsaga? Svo mikið er víst að Flökkulif er að forminu til hreinar og beinar endurminningar. Sem slíkar eru þær væntanlega háðar innri ritstjórn sem svo má kalla, duttlungum minnis- ins, sjálfskilningi höfundarins á full- orðinsaldri og þar með því sem hann með sjálfum sér kýs að muna, kýs að gleyma af ævi sinni. En ekkert bendir til að markmið frásögunnar sé neitt annað en segja satt og rétt frá ævialvik- unum eins og þau hefur borið að Meira um Jónatan Peyton, K.M.: Daufli á Jónsmessunótt. íslensk þýfling: Silja Aflalsteinsdóttir. Reykjavik, Mól og menning, 1981. Bækur fyrir stálpaða krakka og unglinga á islenskum bókamarkaði hafa lengst af verið alltof fáar og mjög einhæfar. Nú á seinni árum hefur þó komið dálítið af vel gerðum unglingabókum sem ástæða er til að fagna. Þar á meðal eru bækur K.M. Peyton, sem Mál og menning hefur gefið út hér á landi. Fyrsta bókin eftir Peyton sem út kom á íslensku er Sautjánda sumar Patricks. Hún fjall- ar um unglingsstrák í Englandi, sem býr yfir óvenjumiklum tónlistarhæfi- leikum og einnig umtalsverðum skapsmunum. Bækurnar um Patrick sem komið hafa út eru þrjár. Auk þeirra sem fyrr er getið eru það bæk- urnar Patrick og Rut og Erfingi Pat- ricks. Einnig eru komnar út á íslensku tvær bækur eftir Peyton um aðra söguhetju, Jónatan Meredith. Sú fyrri heitir Sýndu að þú sért hetja og sú síðari Dauði á Jónsmessunótt. Hún kom út fyrir siðustu jól. Kringumstæður aðalpersónanna í þessum tveimur bókaflokkum (ef hægt er að kalla tvær bækur bóka- flokk) eru mjög ólíkar. Patrick Penn- ington er af fátæku foreldri og elst upp á talsvert ólíkan hátt og Jónatan Meredith, sem á mjög vel stæða for- eldra og sækir t.d. rándýran einka- skóla, sem hann er samt sem áður alls ekkert hrifinn af. Og það er skólinn sem er aðallega sögusviðið í þessari sögu. Ég ætla ekki að rekja söguþráðinn nákvæmlega hér, en þó má nefna að í sögubyrjun deyr einn kennara skól- ans og allt bendir til þess að hann hafi framið sjálfsmorð. En í ljós kemur að málið er ekki svo einfalt. Og Jónatan verður fyrir tilviljun mið- punkturinn i atburðunum. Bókmenntir Sigurður Helgason Eins og fyrr segir nýtur Jónatan þess sem flestir myndu flokka undir forréttindi að sækja dýran og fínan heimavistarskóla. En hann. er ekki alls kostar ánægður með skólann, finnst sannast sagna flest sem hann snertir vonlaust. Höfundur bókarinnar leggur greinilega töluvert upp úr að gera aðalpersónurnar i sögum sínum vel úr garði. Og hann hefur lag á að gefa af þeim skýra mynd sem verður til þess að lesandinn fær ósjálfrátt áhuga á að kynnast þeim nánar. En eigi ég að bera saman aðalpersónurn- ar hans tvær, þ.e. Patrick og Jónatan þá finnst mér Patrick miklu betur gerð persóna, enda þótt Jónatan sé betur gerð persóna heldur en maður á að venjast í barna- og unglingabók- um. Og það kemur lika í ljós við sam- anburð á þeim tveimur, að þrátt fyrir ólíkt uppeldisumhverfi þá eiga þeir ýmislegt sameiginlegt. Báðir dálítið sérlundaðir og stifir á meiningunni. Sagan Dauði á Jónsmessunótt upp- fyllir fyllilega þær kröfur sem gera þarf til unglingabóka. Hún er spenn- andi, en samt aldrei ósannfærandi. Manni finnst það sem gerist allt geta verið raunverulegt, en bókin er ekki full af ótrúlegum atburðum sem gætu aðeins orðið til sem hugarfóstur rit- höfunda. Og undirtóninn í þessu öllu virðist vera sá, að það sé ekki nóg að vera ríkur ef fólk er ekki ánægt með tilveruna. Peningar eru ekki endilega alltaf nægur efniviður til að gera fólk hamingjusamt. Það er full ástæða til að mæla með Dauða á Jónsmcssunótt. Ekki bara fyrir ungling, heldur fyrir alla sem gaman hafa af að lesa bækur. Þýðing Silju Aðalsteinsdóttur er vel gerð. Káputeikning er eftir höfundinn. Út- gáfa bókarinnar er Máli og menningu til sóma. Sigurður Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.