Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982.
Hvað er boðið upp á íkapaisjónvarpinu?
Séð yfir Sandvíkina, eins og kapaisjónvarpshverfið i Borgarnesi er nefnt i daglegu taii. Þama eru nær öiihúsin
* samtengd, auk blokkarinnar í baksýn. /j V-mynd: Einar Ólason.
barnaef ni allt að 5 klukkubma í viku hverri
Eins og gefur að skilja lék okkur
DV-mönnum hugur á að vita hvernig
dagskrá boðið er upp á i kapalsjón-
varpi þeirra Borgnesinga. Við
fengum að sjá þrjú sýnishorn af
einnar viku dagskrá hjá ÚSVB og
kenndi þar ýmissa grasa.
Við tökum hér nokkur sýnishorn.
Fimmtudagur
19. nóvember
18.30 Barnaefni.
20.00 Frá málverkasýningu i Borgar-
nesi.
20.15 Kynning á einingahúsum frá
Loftorku.
21.15 Voyage of the damned (Sjó-
ferð hinna fordæmdu). Amerisk
stórmynd frá árinu 1980 og segir
frá flótta 937 gyðinga undan nas-
istum.
Fimmtudagur
17. desember
18.30 Barnaefni.
20.00 Mynd frá fundi um videómálin
sem haidinn var i Hótel Borgar-
nesi. Frummælendur þar voru þeir
Sæmundur Bjarnason, Eiður
Guðnason, Þorbjörn Broddason
og Reynir Hugason.
22.30 How to steal a diamond
(Hvernig stela skal demanti). Gam-
anmynd með Robert Redford og
GeorgeSegal.
Fimmtudagur
14. janúar
18.30 Barnaefni.
20.00 Körfuknattleikur. Fyrst viður-
eign Skallagríms og Tindastóls i 5.
flokki og siðan leikur heimamanna
Skallagríms og Njarðvíkinga i 3.
flokki.
21.30 The Pink panther strikes again
(Bleiki pardusinn snýr aftur)
Hressileg gamanmynd með Peter
Sellers og Herbert Lom.
23.10 Dallas. Síðasti þátturinn að
sinni.
Þeir kapalsjónvarpsmenn í Borgar-
nesi gera nokkuðað þvi aðendursýna
efni og gjarnan eru kvikmyndirnar
endursýndar við hentugleika. Þau
kvöld sem sýningar stangast á við
sjónvarp hefst útsending að loknum
fréttatíma sjónvarpsins og síöan er
viðkomandi kvikmynd endursýnd að
dagskrá lokinni. Fólk getur þá vaiið
um hvort það vill sjá sjónvarpið eða
sjá það sem upp á er boðið í kapal-
sjónvarpinu.
Það kæmi ekki á óvart þótt hlut-
fall islenzks efnis hjá ÚSVB væri tals-
vert hærra en hjá sjálfu islenzka sjón-
varpinu og barnaefni er örugglega
mun meira.
-SSv.
Eitt þeirra merkja sem birtast á skjánum hjá Borgnesingum. Er það gert með
litilli tölvu eftir ákveðnu prögrammi. DVmynd: Einar Ólason.
XEROX
Leiðandi merki í Ijósritun
Daglega erljósritaö á 500þúsundXerox vélarí80 löndum.
AfköstXerox véla eru 10-120 Ijósritámínútu.
Fullkomin þjónusta. Vélartilafgreiöslustrax.
5 ára ábyrgðarviðhald.
SKRIFSTOFUTÆKNI HR
ÁRMÚLA 38,105 REYKJAVlK,
SlMI 85455, PO. BOX 272.