Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 9
9 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd SOVÉZKIR SÉRFRÆÐ- INGAR TIL EGYPTALANDS Kamal Hassan, utanríkisráðherra Egypta, tilkynnti í gær að 666 sovézkir sérfræðingar myndu koma i stað þeirra 1000 sérfræðinga sem vísað var úr landi i september. Anwar Sadat forseti lét vísa öllum sovézkum ráðunautum úr landi ásamt sovézka sendiherranum og 6 sendiráðs- starfsmönnum skömmu áður en hann var ráðinn af dögum. Ásakaði hann þá fyrir að auka á deilur sértrúarhópa. Ali Hassan sagði að þessir nýju sér- fræðingar ættu að halda við tveimur túrbínum í virkjun á Níl sem byggð var með aðstoð Sovétmanna og annast eftirlit með fleiri stóriðjum. Sovézkir sérfræðingar áttu drjúgan þátt í uppbyggingu iðnvera í sambandi við stál- og álframleiðslu í Egyptalandi. Sambandið milli Egypta og Kreml- verja hefur verið stirt síðan árið 1972, en þá lét Sadat vísa 17.000 sovézkum hernaðarráðunautum úr landi og fækka starfsmönnum í sovézka sendi- ráðinu. Hosni Mubarak hefur einnig sagt í viðtali við v-þýzk tímarit að ekki væri útilokað að löndin skiptust aftur á sendiherrum, en egypzkur sendiherra hefur ekki setið í Moskvu síðan 1977. Egypzkt blað sagði frá því í síðustu viku að Egyptar myndu leyfa Sovét- mönnum að fjölga aftur í sendiráði sínu í Kairó og nefnd egypzkra sér- fræðinga á sviði viðskipta færi til Moskvu í þessum mánuði til að ræða viðskiptamál landanna. Mubarak, forseti Egyptalands, þiggur aðstoð Sovétmanna. PRAVDA RÆÐST A ÍTALSKA K0MMÚNIST AFL0KKINN — Berlinguer stendurfastáþví aða-evrópskur sósíalismi haf i brugðizt Ítalskir kommúnistar standa fastir á stefnu sinni frammi fyrir árásum Pravda, málgagns sovézka komm- únistaflokksins. „Blaðið er fullt af svívirðingum og illsku,” sagði Giancarlo Pajetta, for- maður utanríkismálanefndar kommún- istaflokks Ítalíu, um Pravda (Nafnið Berlinguer í ræðustóli, en „félagi Brezhnev” og fleiri hlýða á. Félagarnir eru ekki lengur einhuga. TUGIR tegunda af prjónagarni, hundruð litbrigða. NÝ sending af Jacobsdalsgarni, Angorina Lyx og Harpun. HOF Ingólfstræti 1 (gognt Gamla bíói). Sími 16764. Auk þess höfum við mikið úrval af borðdúkum í öllum stærðum og verðflokkum. Sjón or sögu ríkari. Vorifl volkomin NÝJUNG Norska garnið Maskot, 20% ull, 80% polacryl, fyrir grófa prjóna. Verð aðeins kr. 10,- Tweedgarn (frá Mac Tweed) á kr. 12,- Ennfremur mikið úrval af rya-smyrna og útsaums- vörum. þýðir sannleikur). Sakaði Pravda ítalska kommúnista- flokkinn, sem er sá stærsti í Vestur- Evrópu, um að villast frá grundvallar- stefnu kommúnismans undir forystu Enrico Berlinguer. — Berlinguer hefur veitzt að Sovétstjórninni vegna stefnu hennar gagnvart Póllandi og fyrir innrásina í Afghanistan. Segir Pravda að Berlinguer og lautin- antar hans styðji þá sem vilja grafa undan ávinningum sósíalismans í Austur-Evrópu. ítalski kommúnistaflokkurinn hefur gagnrýnt eindregið hlut Sovétstjórnar- innar i ofsóknum pólskra yfirvalda gegn hinum óháðu verkalýðssamtökum (Einingu). Gekk Berlinguer svo langt að segja að innleiðing herlaga í Pól- landi sýni að hinn a-evrópski sósíal- lismi hafi brugðizt. Sagði hann að það þróunarskeið sem bylting bolsévikka 1917 hefði hrundið af stað væri nú runnið á enda. Pajetta, talsmaður ítalska flokksins um utanríkismál, sagðist hafa haldið að árásir á borð við þessa, núna síðast í Pravda, hefðu gengið sér til húðar með 20. flokksþinginu, þar sem Krúsjoff fordæmdi stefnu Stalíns. Pravda sakaði ítalska kommúnista um að hafa samúð með hægrisinna öfgamönnum í Einingu og vísaði á bug áskorun Berlinguers um aukið frelsi í austantjaldslöndunum. Sagði blaðiðað undir forystu núverandi leiðtoga hefði ítalski kommúnistaflokkurinn snúið baki við hejmskommúnismanum. Önnumst kaup og sölu allra almennra veöskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla. Getum ávallt bætt við kaupendum á við- skiptaskrá okkar. Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin. E3 Wnlbrcfa- iUaiicidiiriiin Nýja húsinu v/Lækjartorg. 12222 ^-1982- UMBOÐSMENN OKKAR VITA ALLT UM STÆKKUNARTILBOÐIÐ SEM GILDIR ALLT ÁRIÐ’82 SPURDU ÞÁ BARA! HANS PETERSEN HF TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KODAK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.