Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 24
28
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu skiptarcttar Garðakaupstaðar verða ca 20 plötur 2—3”
einangrunarplasts, 3X1 m, og ca 19 stk. tvöfalt verksmiðjugler af ýmsum
stærðum, talið eign þb. Sigurmóta hf., selt á nauðungaruppboði sem fer
fram mánudaginn 1. febrúar 1982, kl. 13.30, að Melabraut 26, Hafnar-
firði. Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 36., 39. og 43. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á
eigninni Hraunstíg I Hafnarfirði, þingl. eign Guðna Einarssonar, fer
fram eftir kröfu Jóns Sveinssonar hdl. og Hafnarfjarðarbæjar á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 28. janúar 1982 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Ásgarður 4, Garöakaupstað, þingl. eign Páls
Stefánssonar o.fl., fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. janúar 1982
kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstaö.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Langafit 36, Garðakaupstaö, þingl. eign
Björns Friðþjófssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. janúar
1982 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Heiðarhraun 15 í Grindavík, þinglýst eign
Guðmundar Haraldssonar, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu innheimtu-
manns ríkissjóðs, Jóns G. Briem hdl. og Brunabótafólags íslands fimmtu-
daginn 28. janúar 1982 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Grindavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hátún 6, efri hæð, í Keflavík, þinglýst eign Kristins S.
Pálmasonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu innheimtumanns rfkis-
sjóðs, Veödeildar Landsbanka íslands og Jóns G. Briem hdl. flmmtu-
daginn 28. janúar 1982, kl. 13.00.
Bæjarfógetinn í Keflavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á rishæð fasteignarinnar Meiðastaðir, austurbýli,
Gerðahreppi, þinglýst eign Ásmundar Gunnarssonar, fer fram á eigninni
sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl. og Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl.
miðvikudaginn 27. janúar 1982, kl. 14.30.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 39., 41. og 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á
eigninni Breiðvangur 12, 3. h. t.h., Hafnarfirði, þingl. eign Jóhanns
Bjarnasonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar og Útvegsbanka
tslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. janúar 1982, kl. 13.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Verður Hótel Húsavík að hei/suræktarhóteli í framtíðinni?
Verður Húsavík heilsulind íslendinga?
Ákveðið að rannsaka
lækningamátt vatnsins
—Góð skilyrði fýrír heilsuræktarhótel, segir Katrín
Eymundsdóttir, sem flutti tillögu um þetta ef ni í bæjar-
stjórn Húsavíkur
„Tilgangur okkar með þessari
tillögu er að kanna til þrautar hvort
lækningarmáttur felst í heitu vatni úr
borholum á Húsavík og í beinu fram-
haldi af því hvort hægt sé að samnýta
hótelið, félagsheimilið og margvisleg
íþróttamannvirki í nágrenni þeirra til
heilsuræktarstarfsemi,” sagði Katrín
Eymundsdóttir, bæjarfulltrú á Húsa-
vík, í samtali við DV.
Katrín og Egill Olgeirsson hafa
flutt tillögu í bæjarstjórn Húsavíkur.
Felur hún í sér skipun 3ja manna
nefndar sem í eigi sæti bæjarfulltrúi,
maður sem hafi þekkingu á hótel- og
ferðamálum og íþróttakennari á
Húsavík. Starfssvið nefndarinnar á í
fyrsta lagi að vera að láta kanna
notagildi vatns úr borholum á Húsa-
vík með tilliti til hugsanlegrar heilsu-
ræktarstarfsemi og hvort í felist
lækningamáttur. í öðru lagi á nefnd-
in að skoða sérstaklega hvort hægt sé
að samnýta hótelið, félagsheimilið og
íþróttamannvirki á Húsavík með ein-
hverjum hætti.
Mjög gama/t vatn
Það hefur verið vitað í nokkur ár,
að vatnið úr borholunum á Húsavík
er mjög gamalt og inniheldur auk
þess ýmis efni, sem hugsanlega geta
verið til heilsubótar. 1 framhaldi af
þeim umræðum sem verið hafa að
undanförnu um lækningamátt vatns í
lóninu á Svartsengi þá þótti okkur
sjálfsagt að kanna þennan möguleika
hér. Vitað er að víða erlendis er mikil
ásókn fólks til þeirra staða sem hafa
upp á lækningavatn að bjóða. Við
Húsvíkingar þurfum einmitt á aukn-
um ferðamannastraumi að halda til
að nýta betur þau mannvirki sem við
höfum þegar byggt og fyrirhugað er
að byggja,” sagði Katrín. í samtal-
inu við Katrínu kom fram að miklum
fjármunum hefur verið varið í bygg-
ingu íþróttamannvirkja og stór átök
eru framundan á næstu árum í þeim
efnum. Má þar á meðal nefna sund-
laug, íþróttavelli, skíðamannvirki og
nú er verið að byrja á byggingu glæsi-
legs íþróttahúss, sem vonandi verður
tilbúið innan fárra ára. Sagði Katrín
Ijóst að erfiðleikarnir við að byggja
slík mannvirki væri litlir miðað við
rekstur þeirra í framtíðinni.
„Húsvíkingar byggðu félags-
heimili af eljusemi á sínum tíma og
síðan hótel í tengslum við það.
Rekstur hótelsins hefur verið erfiður,
sem á rætur að rekja til stutts nýting-
artima og mikils fjármágnskostnað-
ar. Ég tel því löngu tímabært að velta
upp öllum mögulegum hugmyndum
til að gera rekstur þessara mann-
virkja hagkvæmari en hann er í
dag,” sagði Katrín.
Katrín Eymundsdóttír bæjarfulltrúi
Heilsuræktarhótel
Katrín var spurð, hverskonar
rekstur hún hefði í huga.
,,Ég vil nú ekki binda það við neitt
ákveðið, fyrr en niðurstöður úr fyrir-
hugaðri könnun liggja fyrir. Ég get
hins vegar nefnt sem dæmi að góður
grundvöllur ætti að vera fyrir heilsu-
ræktarhótel á Húsavik. Hótelið í
tengslum við stóra salinn í félags-
heimilinu býður upp á marga mögu-
leika allt árið. Og ef við erum fram-
sýn má hugsa sér viðbyggingu við
hótelið sem yrði hönnuð með tilliti til
þarfa fatlaðra. Slíkt hótel er ekki til
hérlendis enn sem komið er. Utan
aukins gistirýmis gætum við hugsað
okkur ýmiss konar þjónustu í við-
byggingunni, t.d. nuddstofu, gufu-
böð, gullsmið, blóma- og gjafavöru-
verzlun, auk ferðaskrifstofu. Að
sjálfsögðu yrði þessi þjónusta jafnt
fyrir bæjarbúa sem gesti. í kjallaran-
um mætti hafa litla sundlaug og heita
potta utan dyra.
í framhaldi af þessu má geta þess
að í innan við 200 metra fjarlægð frá
hótelinu á að byggja stórt og full-
komið íþróttahús. Skíðabrekkur eru í
rúmlega 300 m fjarlægð og skólavell-
ir i 100—200 m fjarlægð frá hótelinu
gætu nýtzt fyrir tennis, hnit, blak og
minigolf yfir sumarið. Aðstaðan er
því eins og bezt verður á kosið,”
sagði Katrín Eymundsdóttir, bæjar-
fulltrúiáHúsavík. GS/Akureyri