Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
/ ELDHÚSINU:
ÖDRUVÍSIHROGN
Steikt hrogn með lauk
500 g soðin hrogn
2 msk. hveiti
1 tsk. salt
1/8 tsk. pipar
1 stór laukur
50 g smjörlíki eða
2-3 msk. matarolía
Hreinsið laukinn og sneiðið niður.
Skerið hrognin í sneiðar og veltið
þeim upp úr hveiti sem kryddað er
með salti og pipar. Hitið helminginn
af feitinni, steikið hrognin, raðið
þeim á fat og haldið þeim heitum.
Brúnið laukinn í því sem eftir er af
feitinni og látið yfir hrognin. Borið
fram með kartöflum eða grænmeti i
jafningi.
Hrogn með papriku og
sósu
Soðin hrogn
3 harðsoðin egg
1 græn eða rauð paprika
2 dl sýrður rjómi
1—2 msk. sólselja (dill)
1/2 tsk. salt
paprikuduft,
sinnep eða karrý
Skerið köld hrogn i sneiðar og rað-
ið á fat. Skerið eggin í báta og
paprikuna í hringi eða saxið hana.
Hrærið rjómann með sólseljunni og
salti og kryddið. Hellið sósunni yfir
hrognin. Skreytið með eggjum og
papriku.
Nú er kominn sá árstími þogar hrogn og Ufur bfóðast í fískbúðum og um að gera að gripa þonnan gómsæta og
næringarríka mat á meðan býðst Það er hann Þórður Tómasson, afgreiðslumaður i Fiskmiðstöðinni i Grimsbœ,
semþarnaróttírámótíokkurstútfullanbakkaaf giænýjuminnmat DV-myndBj. Bj.
GUENÝ HROGN
0G UFUR KOM-
IN í FISKBÚÐIR
—verðið afar mismunandi
Nú, þegar bátar eru farnir að róa af
fullum krafti aftur, fer að batna ástand
í fiskverzlunum hvað framboð snertir.
Og þessa dagana eru einmitt að koma
inn hrogn og lifur, ljúffengur matur og
næringarríkur
Þessi innmatur er nokkuð dýrari en
fiskur almennt en þar á móti kemur að
hann er saðsamur mjög og drjúgur.
Við hringdum i nokkrar verzlanir til
að forvitnast um verð og er það reynd-
ar mjög mismunandi. Látum við einn-
ig fylgja verð á heilli ýsu og flökum.
hrogn lifur heil ýsa flök
Fiskbúð Hafliða 30.00 15.00 13.00 23.50
Hafrún, Skipholti 30.00 14.00 24.00
Sæbjörg 25.00 22.00
Fiskmiðstöðin, Grímsbæ 35.00 20.00 15.00 25.00
Fiskhúsið, Drafnarfelli 35.00 15.00 25.00
Fiskbúðin, Brekkulæk 30.00 15.00 12.00 22.00
Þar sem aðeins er tilgreint eitt verð
á hrognum og lifur, er það vegna þess
að hvort tveggja er selt á sama verði.
Það sést því greinilega að verðmunur
er töluverður, eftir því hvar verzlað er.
Það þarf víst ekki að tíunda um
næríngargildi þessarar fæðu. Við lát-
um þó fylgja hér litla töflu sem sýnir
magn helztu næringarefna i hverjum
100 grömmum, svo og fjölda hitaein-
inga.
JB
Orkugildi Orkuefni Steinefni Vítamín
Hvíta Fita Kolv. Kalk Fosfór Járn A D B i B2 c
kj H.e. 9 9 9 (Ca) (P) (Fe) ae ae ae mg mg
9 9 mg
Hrogn . . . 548 131 24,6 2,7 2,0 0,02 0,30 1,0 200 50 200' 0,6 20
Lifur .... 2 477 592 9,0 60,0 4,0 0,007 0,11 5,0 60000 6000 70 0,5
FARIÐ VARLEGA
í SNYRTIVÖRUR
FRÁ TAIWAN
— sumar eru líf shættulegar
í nýlegu eintaki af brezka blaðinu
Sunday Post er getið um snyrtivörur
sem hafa verið á markaði í Bretlandi
en reynzt stórhættulegar.
Vörur þessar eru upprunnar í
Taiwan og mun ódýrari en jafnvel
það ódýrasta sem almennt fæst í verzl-
unum. Þeim er pakkað í plast-
umbúðir með glæru loki og innihalda
varalit og augnskugga. Nokkur
me.ki er nefnd sem dæmi: Aroma,
Meyssa, Rhom, Fashion Blenders og
Boudoir.
Mjög sterklega er varað við þessum
vörum, enda taldar lifshættulegar.
Ástæðan er sú að þær innihalda allt
að þúsundfalt leyfilegt magn af blýi.
Það smýgur í gegnum húðina, verður
eftir i líkamanum og safnast þar
saman. Endanleg áhrif eru minnistap
eða heilaskemmdir, sem leitt geta til
dauða.
í Bretlandi hafa þær helzt verið á
boðstólum á mörkuðum ýmiss
konar, enda ekki fluttar inn af þeim
sem almennt höndla með snyrtivörur.
Mest hætta var talin á að sökum hins
lága verðs væri þetta helzt keypt af
og handa unglingsstúlkum sem væru
að byrja að mála sig.
Við stuttlega athugun í snyrtivöru-
verzlunum og stórmörkuðum hér,
reyndist ekkert vera á boðstólum sem
gæti verið í ætt við varning þennan.
En full ástæða þykir þó að vara fólk
við, sérstaklega þá sem eru á
ferðalögum erlendis og í verzlunar-
hugleiðingum að láta þessa vöru
alveg vera, kaupa hana alls ekki.
-JB.
BETRIENDING Á
MYNDABLÖDUNUM
Á flestum heimilum þar sem börn eru tii staðar, njóta teikni-
myndablöð mikilla vinsælda svo sem Andrés Önd og fleiri góðir
kappar.
Þessi ágætu blöð vilja gjarnan láta fljótt á sjá og trosna. Ágætt
ráð til að halda þeim alla vega saman, er að fjarlægja heftin í
kjölnum og sauma í stað þess með grófu spori (teygjuspori) eftir
honum endilöngum. Þetta ætti að auka lífdaga blaðsins til muna.
—JB.