Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Side 20
20 Lesendur „Mér sýnisl að þafl sé úl i hött afl deila um hvort ósakhæfir geðsjúklingar sem dæmdir hafa verifl til öryggisgæzlu séu annarrar tegundar heldur en venjulegir geðsjúklingar,” segir Skúli Johnsen borgarlæknir. Svar Skúla Johnsen, borgarlæknis í Reykjavík: Tiltekin heilbrigð- isstofnun hefur ekki talið sig þurfa að hlfta úr- skurðum dómstóla — Hæstiréttur verður því að koma til sk jalanna Hér með fylgja svör min við spum- ingum þeim sem þér hafið óskað eftir að ég svari en spurningarnar koma fram i bréfi Guttorms Sigurðssonar til blaðsins dags. 22. desember 1981. Svör min eru: 1) Spurningin er um það hvort yf- irmanni geðsjúkrahúss sé stætt á þvi að neita að taka við geðsjúkum af- brotamanni sem úrskurðaður hefur verið ósakhæfur og dæmdur til með- ferðar og öryggisgæzlu í viðeigandi stofnun. Samkvæmt refsilðgum nr. 19/1940 ntá ekki refsa þeim mönnum sem sökum geðveiki, andlegs van- þroska eða hrörnunar o.fl. eða ann- ars samsvarandi ástands voru alls ófærir á þeim tíma, er þeir unnu verkiö, til að stjórna gerðum sinum. Ósakhæfir menn eru ekki dæmdir til refsingar, öryggisgæzla er ekki refs- ing heldur fyrst og fremst ætluð til að vernda aðra og til að tryggja viðeig- andi meðferð s.s. læknishjálp. Hins vegar gera lög ráð fyrir að það geti í vissum tilvikunt verið kom- ið undir mati dómsaöila hvort ein- staklingi sem haldinn er vægari geð- veilueinkennum megi refsa og þá ein- ungis ef talið verður að refsing geti boriðárangur. Slikum einstaklingum skal þá kom- ið fyrir á refslstofnun sem ætluð er slíkum mönnum og virðast lög um fangelsi og vinnuhæli nr. 38/1973 einmitt gera ráð fyrir að í ríkisfang- elsi þvi sem ætlað er að byggja verði geðkvilladeild fyrir þessa tegund af: brotamanna. ' wK Ekki rétt að kalla ósak- hasfa einstaklinga afbrota- menn Það er skoðun mín, að ósakhæfum einstaklingum, geðveikum, sem ekki er rétt að kalla afbrotamenn, þvi það eru þeir ekki samkvæmt skilningi laga, eigi að veita samskonar læknis- meðferð og öðru geðveiku fólki, þ.e.a.s. sé vistun á sjúkrastofnun tal- ið nauðsynleg þá verði hún á geð- sjúkrahúsi. Mér sýnist að það sé út í hött að deila um hvort ósakhæfir geðsjúkl- ingar sem dæmdir hafa verið til öryggisgæzlu séu annarrar tegundar heldur en venjulegir geðsjúklingar. Réttarúrskurður um öryggisgæzlu einstaklings getur ein sér alls ekki skotið heilbrigðisyfirvöldum eða heil- birgðisstofnunum undan hlutverki sinu og undir engum kringumstæðum fá fangelsisyfirvöld og fangelsi hlut- verk heilbrigöisyfirvalda og heil- brigðisstofnana gangvart slíkum einstaklingum. Samkvæmt 62. gr. refsilaga virðist dómstóll geta ákveðið hvaða hæli sé viðeigandi til öryggisgæzlu, en hing- að til hefur tiltckin heilbrigðisstofnun ekki talið sig þurfa að hlíta úrskurð- um af þessu tagi. Er því meðal annars hafnað á þeirri forscndu, að vald dómstóla sé ekki nægjanlegt. Mér sýnist að eina leiðin til að leysa þetta mál sé að Hæstiréttur úrskuröi hvort vald dómstóla sé nægjanlegt eða ekki. 2) Dómstólar eða þeim sem ber að framfylgjadómum. 3) Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina að einstaklingi hafi verið vísað af geðsjúkrahúsi vegna þcss að hann var of veikur. Hvað varöar aðra spurningu 3. lið- ar þá er ljóst að það er ekki á færi neins manns né neinna visinda að dæma svo óskeikult um tiltekið ástand, svo sem sjúkdómsástand manns, og hugsanlegar afleiðingar þess í framtíöinni að 100% öryggi ..veröi trýggt. Syona mál lúta ekkí; stærðfræðilegum Iögmálum. 4) Ég er þeirrar skoöunar að þrátt fyrir miklar umræður og góðan vilja margra ráðamanna þá hafa málefni gcðsjúkra, þar á meðal nauðsyn góðs aðbúnaðar þeirra stofnana sem vista geðsjúka, ekki verið viðurkennd sem skyldi. Uppbygging geðdeildar Landspítalans og endurbætur á óhæfu húsnæði við Kleppsspítalann hafa gengiðallt of hægt. Lausn þessa máls felst í aðgerðum til að bæta möguleika til þjónustu við geösjúka. Um fangelsismál fjölyrði ég ekki og 5. lið munu aðrir svara. rrvzs » »* • m««»í i s *» » * __ DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982. Fimmtungur íbúða hef- ur aðgang að dýrðinni í allri þeirri geysilegu myndbanda- væðingu sem orðið hefur hérlendis sl. ár hefur næsta litið verið fjallað um sérstöðu Borgnesinga í þessum efnum. Áð því ,tr við bezt vitum eru Borgnes- ingar þéir einu á lan^Lnu, sem hafa tekið upp staðbundið efni gagngert til sýninga í kapaisjónvarpi sínu. Er efni sem tekið hefur verið upp í Borgarnesi sýnt samhliða erlendu efni og hefur mælzt afar vel fyrir. Má nefna sem dæmi að myndir af íþróttaviðburðum, fundum, dans- sýningum, ásamt viðtölum hafa verið sýndar í kapalsjónvarpinu. Til þessa hafa upptökur verið einskorðaðar við ákveðin verksvið, en ef að líkum lætur mun verða talsverð breyting þar á áður en langt um líður. Fullkomnari tæki eru á leiðinni og þá er einnig látin í Ijós sú von að unnt verði að koma upp stúdiói. Okkur DV-mönnum Iék nokkur for- vitni á að vita hvernig starfsemi þeirra Borgnesinga færi fram. Það varð því ofan á að við heimsóttum þá einn daginn í vikúnni og fræddumst nánar um tilurð kapalsjónvarpsins þar sem reyndar er einskorðað að mestu við ákveðið hverfi í þorpinu, svonefnda Sandvík. Þar hafa um 90 íbúðir alls aðgang að kapalsjónvarpinu. I Borgar- nesi lætur nærri að séu um 430 íbúðir þannig að fimmtungur ibúanna býr við kapalsjónvarp. -SSv. Guðmundur Guflmarsson mefl hús sitt í Sandvíkinni í baksýn. DV-mynd: Einar Olason „Bömin hafa hald- iö sinni fyrri tóm- stundaiðju áfram" —segir Guðmundur Guðmarsson kennari um áhrif kapalsjónvarpsins í Borgarnesi „Ég er þokkaíega ánægður með það efni sem boðið hefur verið upp á i videóinu hjá okkur,” sagði einn ibúa Sandvíkurhverfisins í Borgarnesi, Guð- mundur Guðmarsson kennari er við ræddum stuttlega við hann. „Reksturinn á þessu hefur verið al- veg þokkalegur. Myndir eru sýndar samhliða sjónvarpsdagskránni eða þá að henni lokinni. Maður getur þá valið milli sjónvarps og dagskrárinnar í videóinu. Efnið hefur hins vegar verið misjafnt að gæðum og ég virðist vera óheppinn með myndgæði. Ekki er þó hægt að skella skuldinni á útsending- una. Það er líkast til tækið hjá mér.” Hvernig hefur þetla komifl vifl böm- in? „Ég var nú sannast sagna nokkuð hræddur við þctta. Barnaefnið hefur verið sýnt aðallega á daginn á milli 18 og 19 og á laugardags- og sunnudags- morgnum. Mér til nokkurrar undrunar en ánægju um leið, héldu börnin sinni fyrri tómstundaiðju og létu þennan nýja fjölmiðil ekki hafa mikil áhrif á sig.” Hvernig lízt þér á þá hugmynd afl hafa hér staflbundna sjónvarpsstöfl? „Mér lízt vel á þá hugmynd. Auðvit- að yrði þetta lítil stöð og umfangið þá í hlutfalli við það, en slík stöð gæti gegnt mikilvægu hlutverki fyrir byggðarlag- ið,” sagði Guðmundur. -SSv. Texti: Siguröur Sverrissoh Ljósm.: Einar Ólason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.