Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Side 19
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982. 19 Sköpunameistinn slokknar við sællifí — segir Paul Zukofsky sem stjórnar Stravinsky-tónleikum með Kammersveit Reykjavíkur á morgun Fiðluleikarinn Paul Zukofsky er ís- lenzkum tónlistarunnendum að góðu kunnur. Undanfarin fimm sumur hefur hann komið hingað á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík til að halda námskeið með ungum hljóð feraleikurum, aðallega í því skyni að vekja hjá þeim áhuga fyrir nútíma- tónlist. Siðasta sumar voru þátttak- endur um 100, þar af 30 frá Norður- löndum og Englandi. Uppeldisstarf hans hefur borið heilmikinn árangur. Fyrir fimmtán árum komu örfáir áheyrendur á tón- leika Musica Nova og voru þeir þó ekki nema tvennir eða þrennir á ári. Enda fór svo að félagið lognaðist alveg út af. En nú hefur það verið endurreist og aðsókn mjög góð. Síðustu vikur hal'a reyndar fjölmarg- ir aðrir tónleikar verið haldnir með nýrri músík, til dæmis á vegum Myrkra músíkdaga. Og fólkið streymir að. Það er auðvitað ekki Paul Zukofsky einum að þakka, en mikið hefur samt munað um hans framlag. Hór finnst mér ég fá einhverju áorkað Og nú er hann kominn hingað eina ferðina enn. Fyrir viku hélt hann fiðlutónleika hjá tónlistarfélaginu ásamt píanóleikaranum Margaret Singer. Og á morgun stjórnar hann minningartónleikum um Slravinsky 100 ára með Kammersveit Reykja- víkur í Gamla bíói kl. 16. Þrjú af verkum Stravinskys heyrast þar í fyrsta sinn á íslandi. 1 tilefni þess tókum við Zukofsky tali stutta slund á Hótel Sögu, þar sem hann býr, nývaknaðan um há- degið, þvi hann var enn ekki búinn að aðlaga sig íslenzkum tima eftir ferðina frá Bandaríkjunum. Hvað er það sem fer hann til að nenna að koma hingað og hlúa að unga tónlistarfólkinu okkar? Er það hreina loftið sem freistar hans, New York-búans? Hann hlær að þessari uppástungu, honum er víst alveg sama hvort loftið er hreint eða skítugt, bara tónlistin sé góð. „Mér finnst gaman að koma hing- að því hér finnst mér ég fá einhverju áorkað. Þaðer fjarska mikiðaf ungu fólki hérna nieð tónlistargáfur sem hægt er að leysa úr læðingi. Ekki á einu augabragði heldur smátt og smátt.” „Sérðu þá einhvern árangur?” „Já, svo sannarlega,” segir hann með áherzlu. Hann er skapmaður mikill og getur gosið upp, ef honum mislíkar, en í dag er allt með kyrrum kjörum. „Síðustu tvö árin hafa þátttak- endur i námskeiðum okkar til dærnis getað haldið tónleika með Sinfóníu- hljómsveit íslands. Það munar um það þegar þrjátíu manns frá okkur bætast við þá sextiu og eitlhvað sem eru í hljómsveitinni. Þá er hægt að flytja stærri verk.” Máli sínu til stuðnings bendir hann á velheppnaðan flutning nútímaverks eins og ,,5 pieces for orcheslra” eftir Arnold Schönberg. Raddir framtíðarinnar „Vinnurðu líka að tónlistar- uppeldi heima í Bandarikjunum?” „Nei, nei,” segir Zukofsky. „Þar fæst ég við allt aðra hluti. Spila, stjórna, rek lítið fyrirtæki sem gefur út nútímatónlist.” „Og ertu ekki líka ráðgjafi John Cage?” John Cage, sem nú er sjö- tugur, er frægasta tilviljana- og gjörningatónskáld núlifandi. Hefur auk margs annars skrifað verk fyrir 16 útvarpstæki og annað fyrir píanó, þar sem „flytjandinn” situr hreyfing- arlaus við hljóðfærið án þess að slá nokkra nótu. Og ýmsir minnast á- reiðanlega fiskréttaveizlu hans á Sögu sem var haldin þeear hann kom sem gestur l.istahátiðar hingað til lands. „Jú, Cage hefur lcngi verið góður vinur minn og skrifað verk fyrir mig,” segir Zukofsky. Svo spyrjum við hvað sé að frétta af ungum tónskáldum í Bandaríkjun- um. „Ja, þau eru mörg og hafa það gott, á launum hjá sjóðum og stofn- unum. En það er eins og þau séu ekki æðislega áhugaverð eða er maður sjálfur orðinn gamall og fordóma- fullur?” Zukofsky hristir höfuðið, svart- sýnn á svip: AfStravinsky Tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur í Gamla bíói á morgun eru helgaðir rússneska tónskáldinu Igor Stravinsky, en á þessu ári er ein öld liðin frá fæðingu hans. Strav- insky er talinn með merkustu og marghæfustu tónskáldum 20. aldar- innar og ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði um æviferil hans. Fullu nafni hét hann lgor Feder- ovitsch Stravinsky, fæddur þ. 18. júní árið 1882 í Oranienbaum nálægt St. Pétursborg i Rússlandi — nú Leningrad i Sovétríkjunum. Faðir hans var bassasöngvari i Keisaralegu óperunni og mun gjarnan liafa tekið son sinn með sér þangað eða á annars konar tónleika. Igor byrjaði að læra á píanó níu ára gamall en hélst illa við námið, hafði meira gaman af að velta vöngum yfir nótum pabba eða spinna nýja hljóma af fingrum fram. Hann fór í lögfræðinám í háskóla Pétursborgar, en hóf jafnframt þvi námi að læra tónlist, sótti einkatíma hjá Rimsky-Korsakov, einkum í fræðilegri tónlist. Rimsky Korsakov reyndist honum góður haukur i horni, þegar kom að þvi að fá verk flutt opinberlega. Áður en varði hafði hróður Stravinskys borizt til eyrna Diaghilev, ballett- frömuðinum, sem þá starfaði í París. Stravinsky fékk það verkefni að semja tónlist fyrir rússneska ballett- inn þar og árangurinn var Eldfugl- inn, Petrúska og Vorblótið, allt nöfn sem hljóma kunnuglega i eyrum, enda sígild viðfangsefni orðin. Vor- blótið var frumflutt árið 1913 og vakti svo mikla hneykslan, að brak- aði i öllum tónlistarheiminum, bæði fyrir óvenjulega tónlist Stravinskys og dansa Nijinskys. En tvímælalaust komst Stravinsky þá i hóp þeirra tón- skálda, sem mest spennandi þóttu fyrir frumleik og framandleik tónlist- ar sinnar. Þegar fyrri heimsstyrjöldin brauzt út, var Stravinsky í Sviss og striðið og byltingin 1917 komu í veg fyrir að hann kæmist aftur til heimalandsins. Heimför átti ekki fyrir honum að liggja fyrr en árið 1962, en öll tónlist hans var bönnuð í Sovétrikjunum fram til 1953 eða þar til Stalin dó. Stravinsky bjó lengi í Frakklandi en árið 1939 fluttist hann til Banda- rikjanna og gerðist þarlendur borgari árið 1945. Hann lézt i april árið 1971 í New York. Tónlist Stravinskys þykir með ein- dæmum hans eigin, og erfiðlega hefur reynzt að flokka hann undir ákveðnar stefnur. Á þriðja áratugn- um var hann t.d. sagður allt í senn — rómantískur, anti-rómantískur, impressionisti, atónal, margtónall, villtur eða fágaður, tónlistin var „djúpfryst regla” eða „óhóflega stjórnleysisleg”. Raunin virðist vera sú, að Strav- insky fór eigin leiðir í ríkari mæli en flestir — einn gagnrýnenda hefur komizt svo að orði að hann hafi haft „óvenjulega hæfileika til að endurnýja sig, deyja og lifna við aftur, botnlausan frumleikabrunn, sem forðaði honum frá þráhyggju og endurtekningum”. Honum tókst að leita fanga hjá gengnum tónskáldum án þess nokkru sirini að herma eftir og þrátt fyrir allar ásakanir um skort á virðingu fyrir hefð í músik, er hún þó fyrir hendi í verkum hans, enda skrifaði Slravinsky sjálfur eitthvað á þá leið að ,,hin eina sanna hefð er ekki vitni um forgenginn tíma heldur lifandi kraftur sem ljær nútíðinni mátt og megin. Hefð er uppspretta alls þess sem nýtt er og tryggir ævar- andi framhald sköpunarinnar”. Og ásökunum um byltingar í músík svar- aði hann á þá leið, að svo væri ekki — „bylting er kaos. Listsköpun er andstaða kaosar”. „í listum, eins og annars staðar í lífinu verður að byggja á bjargi — á hefðinni.” „Það er engu hægt að spá um raddir framtíðarinnar. En sköpunar- neistinn slokknar við sællífi. Ford gerði sínar uppfinningar einn við frumstæð skilyrði. í kringum þær varð til risafyrirtæki þar sem allt er staðnað. Ætli bandarísku tónskáldin hafi það ekki of gott — söddu fólki liggur ekki mikið á hjarta. Ný lisl kemur fram þegar einhverjum er svo mikið niðri fyrir að hann verður að tjá sig, hvort sem aðrir taka þvi vel eða illa,” segir Paul Zukofsky. Okkur dettur i hug eitthvað lilið- stætt, sem Einar Bragi skrifaði nýlega: Menningin er borin uppi af ntönnum sem eru of fátækir til að geta lifað án hennar. En þegar við ætlum að spyrja Zukofsky hvort hann sé sammála er hann horfinn á æFingu hjá Kammer- sveit Reykjavíkur, þið vitið, Strav- insky. -ihh. PaulZukofsky stjórnar Kammersveitinni á tónleikunum á morgun. Igor Stravinsky tónskáld. Tónleikarnir á morgun Kammersveitin mun á morgun flytja verk frá ýmsum tímabilum Stravinskys. Tónleikarnir hefjasi með „Eftirmæium eftir .1. F. Kenn- edy”, samin við ljóð Audcns um for- isetann. Það er Sigrún Gestsdóttir sópran- söngkona sem syngur Ijóðið. - Þá syngur Rut Magnússon ljóð eftir Hugo Wolf við lag Stravinskys, samið 1968. Þar næst verður flultur Septett frá árinu 1953. Stephen King lágfiðluleikari flytur Elegíu og fluttur verður „Dumbarton Oakes” kamm- erkonsertinn frá árinu 1937. Stjórn- andi Kammersveitarinnar verður Paul Zukofsky (sjá annars staðar á þessari siðu). Sum þeirra verka sem heyrast á morgun, hafa ekki áður verið leikin hér á landi. Tónleikarnir hefjast kl. 16 I Gamla biói eins og fyrrgetur. _MS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.