Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Side 29
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982. 29 Leikhús Leikhús Alþýðuleikhúsið: Elskiðu mig eftir Vitu Anderson — Arnar Jónsson og Tinna Gunnlaugs- dóltir rekja samskypti karls og konu. Sýndíkvöldkl. 20.30. _ 1IInr fengur eftir Joe Orton— brezkur farsi. Sýnt annaðkvöld kl.20.30. Súrmjólk með sultu—sænskt leikrit handa allri fjölskyldunni, sérstaklega litlu krökkunum, þeir skemmta sér vel. Sýnt á morgun kl.15. Garðaleikhúsið: Karlinn í kassanum — Farsi eftir Arnold og Bach, sígilt í sinni röð. Frumsýnt á morgun kl.20.30 í Tóna- bæ. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir. Sjá annars Helgarblað 2. íslenzka óperan: Sigaunabaróninn eftir Jóhann Strauss. Aðsókn linnir ekki nema siður sé. Uppselt er á sýningar helgarinnar, og ekki seinna vænna að ná sér i miða á sýninguna 19. feb. Óperan hefst kl. 20. Síminn er 11475. Aldrei er friður eftir Andrés Indriðason. Bráðhress leikur fyrir alla. Sýnt á morgun kl. 15. Siminnþarer41985. Leikfélag Reykjavíkur: Jói í kvöld — uppselt. Salka Valka á morgun — uppselt. Ofvilinn verður sýndur næst á miðvikudag og nú fer að fækka sýningunum. Miðasalan í Iðnó, sími 16620. Revían Skornir skammtar sýnd i Austurbæjarbíói í kvöld kl. 23.30. Þjóðleikhúsið: Hús skáldsins eftir Halldór Laxness og Svein Einarsson. Hjalti Rögnvaldsson og Bríet Héðinsdóttir leika Ólaf Ljósviking og Jarþrúði eins og flestir halda að þau ættu að gera. Sýnt í dag og á morgun kl. 15. Kisuleikur á Lilla sviðinu Herdis Þorvaldsdóttir „brillerar” kl. 20.30 annað kvöld. Dans á rósum eftir Steinunni Jó- hannsdóttur— sýnt annað kvöld kl .20. Ath. að sýningum fækkar nú ört á þessu athyglisverða leikriti. Miðasala Þjóðleikhúss hefur slma 11200. Ms Tónlist Stravinsky-tónleika Kammersveitar Reykjavíkur ber hæst á þessum himni þessa helgina. Sjá annars staðar i blaðinu. Út um landið er töluvert um að vera i músíkinni. Á Akureyri eru „gamaldags-tónleikar” kl. 17 á sal Menntaskólans — leikið á sembal, blokkflautu og óbó og gamba óg þessi hljóðfæri kynnt. Það eru þau Helga Ingólfsdóttir, Camilla Söderberg, Kristján Stephensen og Ólöf Óskars- dóttir sem leika. Á Akranesi verður söngflokkurinn Hrím með hljómleika í Bíóhöllinni kl. 20.30 í kvöld. Og í Djúpinu í Reykjavík heldur áhugafólk um harmónikulónlist skemmtifund á morgun kl. 15. Verðlauna- GRIPIR OG FÉLAGSMERKI Framleiðí alls konar félagsmerki. Hefi á- vallt f yrirligg jandi ýmsar stærðir verð- launabikara og verð- launapeninga, einnig styttur fyrir flestar greinar íþrótta. Leitið upplýsinga MAGiMÚS E. BALDVINSSON Laugavegi 8 Reykjavík Sími 22804 Menning Menning Menning Leikfélag Húsavíkur: Konumar á Niskavuori Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi sl. sunnudagskvöld. að mér var boð- ið, — á vegum DV, að vera viðstadd- ur sýningu á leikritinu „Konurnar á Niskavuori” eftir finnska leikritahöf- undinn Hella Wuolijoki sem reyndar er eistlensk að uppruna. Leikfélag Húsavíkur er um þessar mundir að sýna þetta verk undir leik- stjórn Hallmars Sigurðssonar. En það var uppfærsla sænska leik- hússins í Helsingfors í Þjóðleikhús- inu fyrir nokkru sem vakti áhuga Leikfélagsins hér á að taka leikrit þetta til sýningar. Það segir í leik- skránni að „Konurnar á Niskavuori” hafi höfundur skrifað árið 1936 og hafi leikritið þá strax slegið í gegn og orðið finnsku leikhúslífi mikil lyfti- stöng og höfundurinn orðið einn af máttarstólpum finnsku leikhúsanna næsta áratuginn. Áhugamaður eins og ég kann engin skil á þeim fræðum, en eitt er víst að efni leikritsins hreif mig og ekki spillti góð leikstjórn og, • í bland, mjög glæsileg frammistaða sumra leikaranna. Það er „Gamia frúin” á setrinu á Niskavuori, sem heldur öllum þráð- um í höndum sér en það er dálítið erfitt þar sem sonur hennar, sá sem þegar á helming jarðarinnar, en faðir nans er látinn (drakk sig í hel), er far- inn að standa i framhjáhaldi með kennslukonu sem nýkomin er í hér- aðið og er svo óforskömmuð að ganga jafnvel 1 síðbuxum. Sonurinn er giftur konu sem kom með auð með sér i búið sem var ekki alltof vel statt fyrir. Þótt konan sé hin föngulegasta takast ekki ástir með þeim, en börn eignast þau eins og vera ber. Þetta er þungamiðja leikritsins. Sú „Gamla” lifir fyrir það eitt að af- komendurnir yfirgefi ekki Niska- vuori, og án þess að lýsa efni leikrits- ins frekar fara fram mikil átök meðal fólksins á Niskavuori á senunni í gamla góða Samkomuhúsinu á Húsa- vík. Það er best að segja það strax að „Gamla frúin” fer með mikinn sigur af hólmi í meðförum Hrefnu Jóns- dóttur í hlutverki hennar. Sjaldan hef ég séð hlutverk svo skapað fyrir leik- arann, eins og þetta er fyrir Hrefnu. Hún er svo mikilúðleg i hlutverkinu að maður verður henni undirgefinn, jafnvel frammi í salnum, enda er fólkið á Niskavuori á valdi hennar frá upphafi til enda verksins. Ég þyk- Leiklist Ásmundur Bjarnason ist vita að leikstjórinn hafi lagt mikla áherslu á að gera þetta hlutverk vel úr garði, eins mikið óskahlutverk og það hlýtur að vera hverri leikkonu sem á annað borð hefur vöxt og per- sónu í það. María Axfjörð leikur hina um- deildu kennslukonu sem raskar svo eftirminnilega ró sveitarinnar. Hún hefur ekki áður tekið að sér svo stórt hlutverk á senu og sleppur vel frá því. Hún er ófeimin, falleg og freistandi, svo maður skilur vel hinn myndarlega bónda sem fellur fyrir henni og getur henni óvelkontið barn. Þorkell Björnsson leikur Árna á Niskavuori. Hann er meðal okkar reyndari leikara hér og er góður þeg- ar mest á riður en ekki nógu sann- færandi þegar hann ætlað að vera góður við sitt fólk. Hina vanræktu eiginkonu Árna Ieikur Guðný Þorgeirsdóttir og tekst vel upp i umkomuleysi sínu vegna grunsins og sannfæringarinnar um framhjáhald bónda síns. Þær elska ekki beint hvor aðra Ilona kennslu- kona og Marta Árna-frú. Tvær kostulegar „Ýsa var það heillin” kerlingar sjá um slúðrið í sveit- inni. Herdís Birgisdótti*- fer með hlut- verk Serafiinu en A<nnaJeppesen leik- ur Söndru á símanuia Þærerubáðar ágætar. Simola óðalsbónda, sem ætl- ar að leysa málin milli Mörtu og Árna á sinn hátt, leikur Einar Þorbergsson sem er menntaður leikari og leikstjóri og fatast honum hvergi, þrátt fyrirað hlutverkið gefur ekki mikil tækifæri. Sigurður Hallmarsson gerir svo eftir- minnilega persónu úr drykkfelldum apótekaranum sem er i skólanefnd- inni ásamt prófastinum sem Svavar Jónsson leikur og tekst vel upp. Hann á við konuríki að búa og tekst ekki apótekaranum og Árna bónda, þrátt fyrir ágætar tilraunir, að plata sjúss í klerkinn, fyrir sakir ofrikis kerlu hans. Ekki vil ég gera væntanlcgum sýn- ingargestum þann grikk að segja meira frá gangi leikritsins „Konurnar á Niskavuori”. Sjón er sögu rikari. En mig langar til að geta annarra leikara sem fara með smærri hlut- verk, og unHantekningarlaust finnst mér að , eir skili sínum hlutum vel. Snædís Gunnlaugsdóttir leikur Salli vinnukonu, Margrét Halldórsdóttir prófastsfrúna, Konráð Þórisson ráð- villtan kennara, Guðmundur Örn Ragnarsson ráðsmann „Gömlu frú- arinnar”, Jón Aðalsteinsson Nikku- lása, sem leikur á harmóníku þegar karlarnir vilja allir dansa við kennslu- konuna, og tvær stelpur, Fífa Konráðsdóttir og Kolbrún Þorkels- dóttir, lcika börn Árna og Mörtu. Hallmar leikstjóri kemur nú heim á æskustöðvar sínar, — sér og sigrar. Þekking hans á sænskum og norræn- um leikbókmenntum vísar honum veginn á gott og þróttmikið leikhús- verk. Sjálfur sá hann um leikmynd, sem er aldeilis prýðileg, enda stækkar hann hið litla svið samkomuhússins með ólíkindum. Hann nær því eftir- sóknarverða, — að leiðbeina óvönum leikurum „til þess að standa á leik- sviðinu á hærri tröppu en í lífinu” — eins og þar stendur. Ennþá einu sinni hefur hið hús- víska leikhús komið okkur á óvart. Og það svo eftirminnilega að þessir vinir manns í daglega lifinu, leikar- arnir, eru næstum óþekkjanlegiii þarna uppi á senunni. Það lá við að ég væri hálfleiður að þurfa að rölta heim frá „konunum á Niskavuori” að sýningu lokinni, — mér var nefnilega farið að þykja sér- lega vænt um „Þá gömlu”. Ásmundur Bjarnason. Yndislegt tímaflakk Tónleikar Musica Antiquo á Sal Menntaskól- ans í Reykjavík 9. febrúar. Flytjendur: Camilla Söderberg, blokkflauta; Kristján Þ. Stephensen, óbó; Helga Ingólfs- dóttir, sombal og ólöf Sesselja Óskarsdóttir, vlola da gamba. Efnisskrá: Pierre Danican Philidor: IVe Suite en trio ( c-moll; Jacques Hotteterre: llle Suite I D-dúr; Jean Babtiste Loeillet: Sonata á 3 I F- dúr; Johann Joseph Fux: Sinfónla I F-dúr; Antonio Vivaldi: Trio I g-moll. Tímaflakk er nokkuð sem mann- kynið hefur löngum látið sig dreyma um. Ekki höfðar það síður til fólks að fá að skyggnast inn í fortíðina en framtiðina. Til eru rithöfundar, sem hafa leikið sér að tímaflakki í bókum sínum, en fæstir hafa gert það eins snilldarlega og John Dickson Carr, sem á einuni stað lætur söguhetju sína vinna í einvígi alræmdan skylm- ingagosa og morðingja með bragði, sem ekki kom fram fyrr en nokkrum árum eftir að einvigið átti sér stað. Ei berta þau nútímavólum Oft verður mér hugsað til þessa lykilatriðis i sögu Carrs þegar ég hlýði á tónlistarmenn nútímans nýta möguleika nútímahljóðfæra til hins ýtrasta við leik gamalla verka, sem samin voru fyrir töluvert einfaldari hljóðfæri. Ég get ekki að því gert að stundum finnst mér músikantarnir vinna á tónsmíð, sem hugsuð var fyrir allt aðra tækni, með brögðum sem seinna komu til sögu. En sliku er ekki til að dreifa hjá liðsmönnum Musica Antiqua. Þau reyna að fara eins nærri upprunanum og mögulegt er. Listamenn sem þannig vinna stunda rannsóknir á stíl og hljóðfæragerðum og brúka mis- munandi hljóðfæragerðir eftir aldri verka. Þvi víst átti tiskan jafnmikið undir sér fyrr sem nú. Tónlist Eyjótfur Melsted A fyrri hluta efnisskrárinnar trón- uðu meistarar hins franska barokk- tíma;' Philidor, Hotteterre og Loeill- et, sem kenndur var við Lundúnir. Sumir telja reyndar Lundúna Loeillet ekki hreinræktaðan kvist á meiði hins franska skóla. Síðari hlutinn var helgaður hinum ítalska skóla með verkum Fux og Vivaldi. Fux þekkja flestir sem fræðimann og þá helst fyrir ritið Gradus ad Parnassum, en þeim sem komast í kynni við ntess- urnar hans, eða önnur verk, gleymast þau ekki svo glatt. Ekkiá sjömíinaskóm Þessir kallar á barokktimanum treystu músíkantinum fyrir stórum hluta af endanlegri gerð verksins. Mönnunt leyfðist að yrkja, eða spinna (improvisera), þvi að músík- antinn lærði sína iðn hjá meistara og útlærður fékk hann inngöngu í gildi músíkanta. Nútintinn á sér sina meistara af hinum gamla skóla og við hér heima hrósum happi fyrir að eiga nokkra sveina, sem uppeldi hlutu hjá meisturum úti í heimi. Hingað heim hafa þau svo flutt sina eðlu kúnst og stofnað Musica Antiqua. Félags- skapur sá gengur ekki sín fyrstu spor á neinum sjömílnaskóm, en örugg eru skrefin þó smá séu. Það er happ þessa félagsskapar að eiga innan sinna vébanda jafnvandvirka og snjalla listamenn og Helgu Ingólfs- dóttur, Ólöfu Sesselju Óskarsdóttur og Camillu Söderberg, eða lútuleik- arann Snorra Örn Snorrason. Og menn á borð við Krlstján Þ. Stephen- sen, sem svo snyrtilega kunna að beita nútímaóbói með hinum gömlu hljóðfærunum, eru ekki gripnir upp hvar sent er. Það er gæfa íslensks tónlistarlífs að fyrir vakningu upprunalegra hljóðfæraleiks skuli standa kunn- áttumenn, sem væntanlega fria okkur við fúskara sem telja sig mega prumpa hvernig sem er, aðeins vegna þess að þeir hafi eftirllkingu ganials hljóðfæris í höndum. -KM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.