Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1982, Side 32
c ískalt
Seven up.
hressir betur.
Amerískur farþegi Flugleiðaþotu fékk ekki að fara inn í Svíþjóð:
Kvaðst skyldur Silvíu
ogþá neitaö um landvist
Þota Flugleiða sem var að koma frá
Norðurlöndum í gær varð að snúa frá
Kcflavíkurl'lugvelli vegna veðurs og
lenda á Akureyrarflugvelli. Tveir menn
voru meðal farþega, sem útlendingaeft-
irlitið beið eftir, en heir rnunu ekki fá
landvistarleyfi. Tók lögreglan á Akur-
eyri við ntönnunum og hafði í geymslu í
gærkvöldi. Áttu þeir síðan að fá lög-
reglufylgd til Keflavíkur er vélin færi.
Mennirnir tveir eru báðir úllending-
ar, Ameríkani og Marokkóbúi. Hafði
Ameríkaninn farið með vélinni héðan á
leið til Svíþjóðar en var meinaður að-
gangur inn í landið. Var ástæða þess
sögð sú að maðurinn væri klikkaður og
hafði m.a. sent Svíakóngi bréf þar sem
har.n óskaði eftir að hann tæki á nióti
sér á vellinum. Ástæðuna hafði maður-
inn sagt vera skyldleika hans og Silvíu
drottningar.
Marokkóbúinn mun hins vegar hafa
verið búsettur hér á landi fyrir nokkr-
um árunt, átti íslenzka konu og barn.
Undanfarin ár hefur hann verið búsett-
ur í Sviþjóð en hugðist heintsækja fyrri
konu sína og barn. Það var hún sent.
óskaði eftir að ntanninum yrði ekki
hleypt inn í landið þar sem hann hafði
haft í hótunum við hana.
Útlendingaeftirlitið ntun taka á móti
mönnunum tveimur á Keflavíkurflug-
velli og hafa í geyntslu unz þeir haldal
brott. Búizt var við að vélin kæmist til!
Keflavikur í gærkvöldi en hún var enn
á Akureyri er blaðið fór í prentun. :
-ela;
Framsókn á Seltjarnarnesi:
Stillirekki upp með vinstri mönnum
Framsóknarfélagið á Seltjarnarnesi
hélt aðalfund í fyrrakvöld og þar var
ákveðið að stilla ekki upp sameiginleg-
um vinstri lista með Alþýðuflokki og
Alþýðubandalagi eins og gert var fyrir
siðustu bæjarstjórnarkosningar, árið
1978.
Guðmundur Einarsson fram-
kvæmdastjóri sagði í gær að aðal-
ástæðan fyrir þessari stefnubreytingu
væri sú að slíkt samstarf flokkanna unt
lista væri óheppilegl fyrir llokksstarf-
ið. Þessi ákvörðun hefði hins vegar
ekki verið tekin vegna stórra deilna í
minnihluta bæjarstjórnar. Því væri
hins vegar ekki að neita að mörgum
væri illa við að kjósa slíkan sant-
bræðslulista.
Guðmundur sagði ntenn raunsæja og
Ijóst væri að ekki yrði skipt um meiri-
hluta í þessum kosningunt. -JH
Það er mikiö um
afmœlis hroyfingarínnar. Raunar hófst
fótögum í gmr, þar é maðal var Kaupfóiag Hafnfirðinga. Lúðrasvoit lék af
miklum móð í matvörumarkaði kaupfólagsins að Miðvangi 41 ar
Ijósmyndara DV bar að garði og ýmistögt fleira var é dagskré. Á innfeHdu
myndinni mó sji Sigurð T. Sigurðsson, varaformann Hfifar, og Guðriði Eiias-
dóttur, formann Framsóknar, fœra Herði Zophóniassyni, stjómarformanni
kaupfólagsins, blómakörfu fró verkalýðsfótögunum.
<DV-mynd: Einar Ólason)
„Við höfunt enga aðstöðu til að
bjóða stórum hópi fólks til veizluhalda
og ætlum því að minnast afntælisins á
annan hátt,” sagði Guðni B. Guðna-
son, aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfé-
lags Árnesinga, i samtali við DV.
Nokkra athygli hefur vakið að það
stóra kaupfélag býður viðskiptavinum
sinum ekki upp á afntælishressingu eins
og flest önnur kaupfélög gera nú um
helgina.
,,Við höfum opna verzlun hér i dag
frá klukkan tíu til sextán og bjóðum
þá tíu prósent afslátt af öllum vörum.
Það verður okkar afntælishressing,
enda held ég að það konti flestum betur
en kaffibolli og kleina eða annað í þeim
dúr,” sagði Guðni. -JB
Kaupgarður
varð fyrir
valinu
Bæjarstjórnin i Garðabæ hefur
ákveðið að ræða við fyrirtækið Kaup-
garð i Kópavogi unt fyrirhugaða bygg-
ingu og rekstur á stóru verzlunarhús-
næði i nýja miðbænum í Garðabæ.
Þrír aðilar sóttu um að fá að byggja
verzlunarhúsnæði á þessunt stað. Voru
það fyrir utan Kaupgarð, Kaupfélag
Hafnfirðinga og Hagkaup sem sóttu
unt ásamt Byggung er hafði hug á að
byggja þar íbúðir fyrir ungt fólk.
Bæjarstjórn tók þessar umsóknir
fyrir á fundi sínum á fimmtudaginn og
var þar samþykkt að fela bæjarstjóra
og bæjartæknifræðingi að ræða við
Kaupgarð um byggingafrantkvæmdir
þarna. -klp-
LOKI
Ætii Oddi kaupfólagsstjóra á
Selfossi só jafnlítið gefið um
viðskiptavinina og starfs-
fólkið?
Hagkaup afhjúpar
fíokk bókaþjófa
—staldýmm bókum til að verða sér úti um peninga
Starfsfólk i Hagkaupi hefur komið
upp unt flokk unglinga sent hefur
leikið þann leik að ganga í bókaverzl-
anir og stela þar bókum sem síðan
var skipt í Hagkaupi.
Starfsfólkið fór að taka eftir því að
unglingar fóru að konta nteð ntikið af
nýjum bókum sem þeir vildu fá aura
fyrir. Var þarna oft um að ræða
vandaðar — og dýrar bækur sem
ekki eru venjulega í eigu unglinga —
bækur eins og Náttúra íslands, ævi-
saga Gunnars Thoroddsen og fleira í
þeim dúr.
Unglingarnir fengu innleggsnótu
fyrir andvirði bókarinnar en síðan
var annar sendur til að taka
vindlinga, sælgæti og annað út á
nótuna.
Þegar farið var að rannsaka ntálið
kom í ljós að unglingarnir stálu bók-
unum í öðrum búðunt. Málið var
kært og hópurinn handtekinn. Auk
þess voru settar strangari reglur unt
bókaskipti i Hagkaupi svo ekki sé
hægt að leika þennan leik áfrant.
-klp-
frjálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982.
Kaupf élag Árnesinga:
Býður
afslátt
en ekkert
kaffi