Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1982, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1982, Blaðsíða 1
Vmsæídaval Stjömu- messunnar — sjá bls. 30 • Flugráöákvaö aösonur fligráösmanns skyldi ínámiö — sjábls.5 Víghmdur ÍDVviötali — sjábls.ll • Verzlunarráö segistgeta lækkaö veröbólguna (15-20% áeinuári — sjábls.2 Stórsigrar Liverpoolog Tottenham fyrir úrslitaiékinn — sjá íþróttir bls. 18-19 Lufthansa tekurvið viöhaldiá flugvéium Gaddafis sjá erl. f réttir bls. 8*9 Rannsóknarlögreglan rannsakar innflutningá sýktum skjaldbökum: SMYGLAÐAR SKJALDBÖKUR SKRÁÐAR Á TOLLSKJÖLUM —segir Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir „Okkur barst bréf í gær frá Rann- sóknarlögreglunni þar sem við vorum beðnir um nánari upplýsingar varðandi skjaldbökurnar svo rannsókn er í fullum gangi,” sagði Þórhallur Hall- dórsson hjá Heilbrigðiseftirlitinu í sam- tali við DV i morgun. Eins og kunnugt er hafa tvær gæludýraverzlanir í Reykjavík,. Amazon og Gullfiska- búðin, verið .kærðar vegna ólöglegs innflutnings á skjaldbökum en dýr þessi hýsa taugaveikibróður. Hér er um að ræða 200 til 400 skjald- bökur sem fluttar hafa verið inn flug- leiðis frá Bandaríkjunum. Innflutn- ingurinn er ólöglegur svo innflytjendur hafa þurft að fela dýrin innan um annan varning við komuna til landsins því allt hefur farið í gegnum toll. ,,Við höfum þó heimildir fyrir því að einhver hluti þessara skjaldbaka hefur verið skráður á tollskjölum og farið þar í gegn athugasemdalaust,” sagði Guðjón Magnússon aðstoðarland- læknir í samtali við DV, ,,en hvernig svona getur gerzt er mér ekki kunn- ugt.” Fullyrðing Guðjóns var borin undir Kristin Ólafsson tollgæzlustjóra í morgun: „Þetta er meira en ég veit,” svaraði hann, „okkur hér barst bréf frá yfir- dýralækni um að gæta fyllstu varúðar við afgreiðslu á þessum varningi. Það er allt sem ég veit. Ég þori ekki að segja til um hvort þessi fullyrðing er rétt eða röng, hins vegar veit yfirdýralæknir allt um málið svo þú skalt spyrja hann,” sagði Kristinn Ólafsson. — Og hvað segir Páll A. Pálsson yfirdýralæknir um málið? ,,Ég þori ekkert að segja um þetta, það er verið að skoða málið en toll- gæzlustjóri hlýtur að vita allt um þetta,” sagði Páll. -KÞ. eisi, svona á bak viö gríndur." Ertthvað á þessa leið kynni hundurínn að segja efhann mætti mæla. (DV-mynd: Einar ÓlasonJ „Getur nokkursagt mór hvernig stendur 6 þessum undariega snjó sem ýmist kemur eða fer. Ég er bara aiveg gáttaður 6 þessu. Og svo er bara engu iíkara en óg só lokaður inn í fang- ÍSLAND VANN KEPPNIFATLADRA — DV gefur verðlauvtagrip til innanlandskeppni fatlaðra íslendingar sigruðu með miklum yfirburðum í samnorrænni trimm- keppni fatlaðra sem fram fór á síðasta ári. Keppnin fór fram hér á landi í maí en ekki fyrr en í desember í Finnlandi og af þeim sökum lágu niðurstöður ekki fyrir fyrr en nú nýverið. í ljós kom að þátttaka hafði verið mest hér á landi miðað við fólksfjölda og verður íþróttasambandi fatlaðra afhentur verðlaunabikar frá Íþróttasambandi fatlaðra á Norðurlöndum á næstunni. íþróttasamband fatlaðra hefur ákveðið að efna til innanlandskeppni með svipuðu sniði innan skamms. DV hefur gefið verðlaunagrip til þeirrar keppni og var hann afhentur íþrótta- sambandinu til eignar í gær. Hér er um að ræða forkunnarfagurt silfurslegið horn með ígreyptum ópalsteinum og er það smíðað af fötluðum manni, Sigmari Maríussyni gullsmið. -ÓEF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.