Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1982, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1982, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. MIÐVIKUDAGUR ÍO.MARZ 1982. 5 Flugráð ákvað að sonur flugráðsmanns- ins skyidi í námið — Rannsóknarlögreglan kannar, að beiðni flugmálastjóra, fölsun einkunna Flugráð hefur ákveðið að pillur sá, sem grunur leikur á að hafi lagt fram falsaðar stúdentsprófseinkunnir er hann sótti um að komast á samkeppnis- námskeið fyrir nám í flugumferðar- stjórn, fari til Bretlands 25. marz næst- komandi í þriggja mánaða nám í flug- umferðarstjórn. Fer pilturinn út ásamt ellefu öðrum sem sérstök valnefnd hal'ði lagt til að færu i námið. Valnefnd þessi hafði það hlutverk að leggja fram tillögu um hvaða menn al samkeppnisnámskeiðinu færu til Bret- lands til að læra flugumferðarstjórn. Nefndin tilnefndi ellefu menn, en tók ekki afstöðu til piltsins umdeilda. Var það vegna þess að í nefndinni eru flug- umferðarstjórar en félag þeirra hafði lagzt gegn því að afstaða yrði tekin til prófgagna piltsins af siðferðilegum ástæðum. Flugráð skipaði þá nýja menn til að fara yfir prÖf piltsins. Komst þessi nýja nefnd að þeirri niðurstöðu að piltur hefði staðizt þær kröfur sem gerðar voru. í framhaldi af því ákvað flugráð að pilturinn færi í námið. Mun flug- málastjóri hafa verið erlendis þegar þetta var ákveðið, en hann hafði áður farið þess á leit við Rannsóknarlög- reglu ríkisins að fölsunarmál þetta yrði kannað, aðallega vegna þess að starfs- maður í ráðuneyti hafði sagt að allt eins gæti verið að starfsmaður Flugmála- stjórnar hefði breytt einkunnablaði piltsins. Sá galli er á ákvörðun flugráðs, um að senda tólf menn, að ekki er á fjárhagstaætlun flugmálastjórnar gerl ráð fyrir að senda nema tiu menn. Það vandamál er ætlunin að leysa með til- færingum innan stofnunarinnar, t.d. með því að taka til þess fjármuni sem ætlaðir voru til að endurmennta flugumferðarstjóra. Rannsóknarlögreglan kannar nú fölsunarmálið. Pilturinn umræddi heldur fram sakleysi sínu og segizt hafa skilað einkunnablaði sinu til Flugmála- stjórnar óbreyttu frá því sem hann fékk það frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, en þar tók hann stúdentsprófið. Einkunnablaðinu umdeilda hafði verið breytt á þann hátt að krotað hafði verið í tvær einkunnir þannig að bókstafur- inn D varð að B. Var þetta gert við ensku- og stærðfræðieinkunn. Eins og fram hefur komið i blaðinu, er pilturinn umræddi sonur flugráðs- manns. Tók faðirinn þátt í afgreiðslu málsins innan flugráðs. Eitt af því sem valdið hefur urg og lengist máli þessu, er sú staðreynd að sjö nemendur voru á fullum launum meðan þeir voru á samkeppnisnám- skeiðinu. Hefur það verið réttlætt með því að þessir menn hafi verið í starfi sem aðstoðarmenn við flugumferðar- stjórn. Sex af þessum sjö komu frá Keflavíkurflugvelli og höfðu verið aðstoðarmenn í tiltölulega skamman tíma, en sá sjöundi hafði starfað á Reykjavíkurflugvelli í þrjú ár. Heimildarmaður blaðsins tilgreindi að aðstoðarmennirnir úr .Keflavik hefðu llestir komizt í störf sin vegna fjöl- skyldutengsla og beinlínis verið gerðir að aðstoðarmönnum til að þeir ættu greiðari leið í starf flugumferðarstjóra. Raunin varð sú að þeir fara allir til Bretlands í námið eftirsótta, meðal þeirrasonur flugráðsmannsins. -KMl). IKVIKMYNDAMARKAÐURINN \ Skólavörðustíg 19, sími 15480. VIDEO • TÆKI • FILMUfí Traust og vandað Nýtt svefnsófasett, traust og vandað. Áklæði í úrvaii. Staðgreiðsluafslá ttur eða greiðsluskilmálar. Hagstætt verð. Húsgagnaverslunin Síðumúla 4. Sfmi 31900 16688 N n EICM4 UIHBODID Laugavegi 87 13837 EIGÍ1416688 umBODiDl3837 Spóahólar. Falleg 2 herb. íbúð á 2. hæð. Suðursvalir. Góðar innréttingar. 2 herbergja Hamraborg. Stór 2 herb. íbúð á 1. hæð. Falleg sameign. Góð aðstaða fyrir börn. Dvergabakki. Góð 2 herb. íbúð á 1. hæð. 3 herbergja ibúðinni fylgir gott herbergi í kjallara. Njarðargata 3 herb. íbúð á 2. hæð, með Góð kaup. . herbergi í risi. Hamraborg. Falleg 3 herb. íbúðá 3. hæð. Góð íbúð. Bilskýli. Hrísateigur. 3ja herb. íbúðá 2. hæð. íbúðin er laus. Bílskúrsréttur. Kjarrhólmi Stór falleg 3 herb. íbúð á 4. hæð, endaíbúð. Ferjuvogur Stór 3 herb. íbúð á jarðhæð. Bilskúr. Dvergabakki Góð 3 herb. íbúðá 2. hæð. Njálsgata Falleg 3 herb. ibúð á I. hæð. Jbúðin er öll nýuppgerð. Tækifæri fyrir fólk.sem vill búa í miðbænum, að eignast fallega íbúð. 4—5 herbergja Hvcrfisgata 4herb. íbúðá 3. hæð. Vitastigur 5 herb. skemmtileg íbúð á 4. hæð í góðu steinhúsi. Velkomin að skoða. Brávallagata 4 herb. íbúðá 4. hæð. Flúðasel Skemmtileg 5 herb. ibúð, bílskýli fylgir. Laugavegi 87 Höfum fjöldann allan af kaupendum á skrá, sem eru tilbúnir með peninga og íbúðir I skiptum. Hringið og fáið góða þjónustu. trabakki Góð 4 herb. íbúð á 1. hæð. Þvottaherb. í íbúðinni. Athugið þessa ibúð. Engjasel Skemmtileg 4ra herb. íbúð á 3. hæð. Dalsel Góð 4ra herb. ibúð á 1. hæð. Krummahólar 5—6 herb. penthouse, 130 ferm. Bílskúrsréttur. Raðhús — einbýlishús. Hryggjarsel Fokheld raðhús til afhendingar fljótlega. Arnarnes Fokhelt einbýlishús, hugsanlega til afhendingar tilbúið undir tréverk. Mosfellssveit Fokheld einbýlishús til afhendingar strax. Mýrasel Fokhelt raðhús. Bráðvantar fyrir ákveðna kaupendur 2 herb. íbúðir Seljahverfi, efra-neðra-Breiðholt, Vogar. 3 herb. ibúðir Efra-Breiðholt, Seljahverfi. 4 hcrb. íbúðir Ákveðinn kaupandi bíður með peninga. Vantar í Hraunbæ eða Breiðholti. Sérhæðir Bráðvantar sérhæð víðsvegar um bæinn. Ákveðnir kaupendur biða. Einbýlishús — raðhús. Raðhús i Kópavogi, Vogum, neðra- eða efra-Breiðholti. Einbýlishús viðsvegar um bæinn. Sölumonn: Gunnar Einarsson, Þorlákur Einarsson, Haukur Þorvaldsson. Haukur Bjarnason, lögfr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.