Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1982, Síða 33
DAGBLAÐIÐ& VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1982.
33
Sviðsljósið
Sviðsljósið
k Sviðsljósið
GrafiklistamaOurinn Ingiberg við e'rtt vorka sinna „í dögun" i sýningunni i
Gallery Lœkjartorg.
D V-mynd Friðþjófur.
list er hagnýt"
tngiberg Magnússon grafíklistamaður í stuttu
spjaiii um nýbyrjaða sýningu sína og fieira
í Galleri Lækjartorg stendur nú yfir
sýning á verkum Ingibergs
Magnússonar myndlistarmanns, en
sýningin hófst um síðustu helgi og mun
standa til 21. marz. Við DV-menn
litum inn á sýningu Ingibergs á
dögunum og spjölluðum eilítið við
hann. Hann var fyrst spurður að þvi
hvað væri á sýningunni.
,,Það er nær eingöngu grafik, en þar
er að finna eina og eina teikningu.
Sýningin telst þvi blönduð, en því er
ekki að leyna að ég hef ólíkt meira
gaman af því að skera i dúk en að
teikna,”sagði hann.
Ingiberg stundaði nám við Mynd-
listaskóla íslands á árunum 1956—1970
og lauk þaðan kennaraprófi 1%9.
Hann er um þessar mundir formaður
félagsins íslenzk grafik. Var hann
spurður að því hvort grafikin væri
orðin viðurkennt listform.
,,Já, ég held að það sé óhætt að segja
það. Við sem stöndum að félaginu
íslenzk grafik höldum samsýningar á
verkum okkar á tveggja ára fresti, nú
síðast i október og það er ljóst að
þessar sýningar eru alltaf að verða
vinsælli og vinsælli. Síðasta
samsýningin var ákaflega vel sótt og
raunar framar vonum. Fólk tekur
orðið grafikinni afskaplega vel og ég
held að aðalástæðan fyrir því sé sú að
við í grafíkfélaginu höfum jafnan
haldið uppi kynningu á þessu listformi
þegar sýningar eru haldnar. Þar
kynnum við þær fjölbreyttu aðferðir
sem notaðar eru við grafíkina og þau
tæki sem til þarf. Þetta hefur valdið því
að fólk er orðið mjög gott.”
Ingiberg hefur til þessa haldið tvær
einkasýningar í Reykjavík. Ennfremur
eina sýningu á isafirði, Egilsstöðum og
Akranesi. Auk þess hefur hann tekið
þátt í fjölda samsýninga erlendis. Á
þessari þriðju einkasýningu Ingibergs í
Reykjavík verða 21 grafík-mynd og 9
teikningar, flestar gerðar á síðustu 2
árum. Ingiberg var að lokum spurður
að þvi hvort grafíklistin væri að ein-
hverju leyti hagnýt eða svonefnd nytja-
list.
,,Ég held þvi fram að öll list sé
hagnýt. Lislin er viss tjáningarmáti að
sama skapi og talmálið og ritmálið —
og er ekki öll tjáning að flestu leyti
notadrjúg?”
-SER.
Samkvæmisdansar í 60 ár
Samkvœmisdansar í 60 ár ncfnist
danssýninf; á Broadway, sem hnfst um
slðustu heiyi en mun auk þess verða
haldin öðru h verju I marzmánuði.
Á sýningunni um helgina var rakin
saga samkvœmisdansa frá árinu 1919 en
það var dansflokkur Hermanns Ragnars
sem sá um dansinn. I dansflokknum eru
23 dansarar og er meiningin að hann fari
vlða um landið á komandi mánuðum.
Meðal atriða sem flokkurinn sýnir má
nefha tangó frá árinu 1919, Charieston
frá 1929, Boomps-A-Daisy frá 1938,
Jive-Jitter Swing frá 1945 og marga
fleiri, eins og hinn frivga dans ársins
1973, Can Can.
Ljósmyndari D V, Lriðþjófur, var
mættur á sýningu Hermanns Ragnars og
félaga á samkvœmisdönsunum um slð-
ustu helgi og smellti hann af nokkrum
myndum. Þœr getur að llta hér á slðunni
og skýra sig vonandi sjálfar.
Myrtdin er tekln af ungu og upprennandi dansfólki i dansgótfi fólags-
miðstöðvarinnar Þróttheima við Hoftaveg.
FREESTYLE
DANSKEPPNI
— í félagsmiðstöðvum borgarinnar
Félagsmiðstöðvarnar í Reykjavik
efna til svonefndrar „freestyle”
danskcppni næstu tvo föstudaga.
Þann 12. marz fara frant undanúrslit
i Tónabæ, Bústöðum, Fellahelli,
Þróttheimum og Árseli. l.okakeppn-
in vcrður loks i Tónabæ 19. marz.
Freestyle eða frjáls aðl'erð eins og
heitið hefur verið islenzkað felur i sér
að þátttakendum er frjálst að dansa
jassdans, diskódans eða hvaða stíl
sem er. Á undanförnum vetrunt
hefur ætíð verið boðið upp á nokkrar
keppnir í Reykjavík. Kepptti lélags-
miðstöðvanna rttun Itinsvegar vera sú
eina i Reykjavi’k i vetur sem ungling-
um stendur til boða að taka þátt i.
Þátttakendur i keppninni verða að
vera á aldrinum 13 til 17 ára. Keppt
verður bæði i einstaklings- og hóp-
dansi. Vegna misskilnings sem orðið
Itefur við kynningu á keppninni er
tekið fram áð fleiri en tvo þarf til að
um hóp sé að ræða. Kcppendur eru
velkomnir Itvaðanæva að af landinu.
Nú þegar hafa til dæmis hópar frá
Akranesi og Keflavik sýnt áhuga á að
koma og vera með. Þátttökugjald er
ekkert og er skráning hafin i öllurn
félagsrniðstöðvum borgarinnar.
-SER.