Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Qupperneq 2
2 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982.
Fyrírlestur og námsstefna í Norræna húsinu!
Dönsk kvikmyndagerð ogsjón-
varpsnotkun við kennslu
kvikmyndagerð sem tekið hefur
miklum framförum síðustu tíu ár þótt
peningaleysi hafi nokkuð hrjáð,” sagði
Henrik Jul Hansen, einn stofnenda
danska kvikmyndatímaritsins
„Levende Billeder”, en hann er
staddur hérlendis til fyrirlestrahalds og
mun einnig leiðbeina á námsstefnu um
notkun kvikmynda í kennslu.
Henrik Jul Hansen er hér á landi í
boði Norraena hússins, Félags dönsku-
kennara og dönsku félaganna. Hann
hefur um Iangt skeiðstarfað sem blaða-
maður í Danmörku og sérhæft sig í
Lézt íbflslysi
á Austfjörðum
Maðurinn sem fórst í bílslysinu í
Staðarskriðum á milli Fáskrúðsfjarð-
ar og Reyðarfjarðar í fyrradag hét
Jón Gunnlaugur Sigurðsson. Hann
var sveitarstjóri í Búðahreppi og var
29áragamall.
Jón var á leiðinni til Egilsstaða til
að ná flugvél til Reykjavíkur,
þar sem hann ætlaði m.a. að horfa á
úrslitaleikinn i íslandsmótinu i hand-
knattleik á milli FH og Víkings sem
verður í dag.
Jón var kunnur íþróttamaður hér
fyrr á árum og lék þá með Vikingi og
islenzka landsliðinu í handknattleik.
Hann var sonur Sigurðar Jónssonar,
,,Ég mun aðallega ræða um danskt
sjónvarp og þróun þess og svo danska
JinO.1
fyrrverandi formanns HSf, og
Rakelar Viggósdóttur konu hans.
Hann lætur eftir sig tvö börn. -klp-
Daglega erljósritaÖ á 500þúsundXerox vélarí80 löndum.
AfköstXerox véla eru 10-120 Ijósritá mínútu.
Fullkomin þjónusta. Vélartilafgreiöslustrax.
5 ára ábyrgðarviöhald.
SKRIFSTOFUTÆKNI HF
ARMÚLA 38,105 RÐKJAVÍK,
SÍMI85455, PO. BOX 272.
skrifum um kvikmyndir. Þá var hann
aðalhvatamaður að því að kvikmyndir
og sjónvarp voru tekin í notkun við
kennslu.
Hansen verður leiðbeinandi á náms-
stefnu um notkun kvikmynda við
kennslu sem verður í Norræna húsinu í
dag milli klukkan 9 og 17. Þá flytur
hannalmennan fyrirlestur klukkan 16 á
morgun í Norræna húsinu þar sem
hann talar um danskar kvikmyndir og
kvikmyndagerð eins og hún er í dag.
-KÞ.
Sjónvarpið:
Græddi 36 þúsund á
beinu útsendingunni
Hagnaður sjónvarpsins á beinu út-
sendingunni frá deildarbikarúrslita-
leiknum í knattspyrnu á Wembley á
laugardaginn var nam um 36 þúsund
krónum.
Sjónvarpið þurfti að greiða um 15
þúsund krónur til ÍTN, 25 þúsund
krónur fyrir afnot af Skyggni og annar
kostnaður hér heima nam um 10
þúsund krónum.
Þetta gerir samtals um 50 þúsund
krónur. Tekjur af auglýsingum sem
sýndar voru i hálfleik námu aftur á
móti 86 þúsund krónum svo hagnað-
urinn er því 36 þúsund.
Þessar tölur gefa til kynna að sjón-
varpið muni ekki slá hendi á móti því
að sýna beint frá FA bikarúrslitaleikn-
um á Wembley 22. mai og jafnvel
einnig eitthvað frá heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu sem fram fer á
Spáni í sumar. -klp-
Vorjafndægur:
Dagur og nótt skipta
sóíarhringnum jafnt
Jafndægur á vori eru í dag, 20. marz.
Er þetta sá sólarhringur þegar dagur og
Dregið í
sunnudags-
gátunni
Hinn 16. marz sl. var dregið úr inn-
sendum réttum lausnum Sunnudags-
gátunnar að viðstöddum fulltrúa borg-
arfógeta og eru nöfn vinnenda sem hér
segir:
1. Svava Bjarnadóttir,
Melbæ 5 Rvk.
2. Magna Sigfúsdóttir,
Hjálmholti 2 Rvk.
3. Auðbjörg Díana Árnadóttir,
Varmalandi Mýrasýslu.
4. Erla Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Grettisgötu 24 Rvk.
5. Ásdís M. Gilsfjörð,
Vallholti 4 Ólafsvík.
Hlýtur hver þeirra bifreið af gerðinni
Citroén GSA Pallas og verða vinning-
arnir afhentir laugardaginn 27. marz.
Um leið og Kór Langholtskirkju
óskar vinningshöfunum til hamingju
vill hann þakka hinum fjölmörgu er
þátt tóku í þessum leik og styrktu þar
meðstarf hans.
Kór Langholtskirkju.
Aston Villa
mætir
Anderlecht
Englandsmeistarar Aston Villa drógust
gegn Anderlecht i undanúrslitum
Evrópukeppni meistaraliða og Bayern
Múnchen leikur gegn CSKA Sofía frá
Búlgariu.
Drátturinn varð þannig í Evrópu-
keppninni í knattspymu í gær:
Evrópukeppni meistaraliða:
CSKA Solía—Bayern Miinchen
Aston Villa—Anderlecht
Evrópukeppni bikarhafa:
Dinamo Tiblisi — Standard Liege
Tottenham — Barcelona
UEFA—BIKARKEPPNIN:
Kaiserslautern — Gautaborg
Radniciki Nis — Hamburger SV
...........-SOS..
nótt eru jafnlöng.
Eins og landsmenn hafa rækilega
orðið varir við hefur daginn lengt óð-
fluga að undanförnu. Þannig var sólar-
gangur þremur kortérum skemmri fyrir
viku en hann er i dag og á morgun
verður hann sjö mínútum lengri.
Þessi öra lenging dagsins leiðir óneit-
anlega hugann að því að nú er ekki
nema mánuður til sumardagsins fyrsta.
-KMU.
Skíðaveðrið
versnar
Það eru eflaust margir sem hugsa sér
gott til glóðarinnar með að komast á
skíði um helgina. Veðrið undanfarna
daga hefur æst löngunina upp í
mörgum, sérstaklega þeim sem búa á
Stór-Reykjavíkursvæðinu enda hefur
það verið frábært.
Það hefur lika verið fullt langt frant
á kvöld í allar lyftur og allt upp i hálf-
tíma bið i sumar lyfturnar, eins og til
dæmis stólalyftuna í Bláfjöllum.
Veðurspáin um helgina er ekki mjög
glæsleg til skíðaiðkunar — austanátt
og slyddu er spáð á Suðurlandi — og er
því hætt við að eitthvað dragi úr
aðsókninni. Flestir láta sig það sjálf-
sagt engu skipta og fara á fjöll hvað
sem veðurspá og annað segir.
-klp-
Misritun
í frétt í blaðinu í gær var sagt frá því
að tónleikar Samkórs Selfoss og Árnes-
ingakórsins í Reykjavík hæfust
klukkan 17.30 í dag. Það er rangt. Þeir
hefjast hálftíma fyrr — eða á slaginu
fimm — og verða eins og fyrr segir í sal
Menntaskólans í Hamrahlíð. Hlutað-
eigandi eru beðnir velvirðingar á
þessari misritun.
DV-bíó
Gamanmyndin Æskudraum-
ar verður sýnd í DV-bíói á
morgun klukkan 13 í Regn-
boganum. Myndin er í Ht og
með íslenzkum texta.