Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Side 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982. Hallvarður Ðnvarðsson rannsóknarlögreglustjóri ríkisins: Uppgjöf af hálfu samfélagsins —að senda geðsjúka afbrotamenn til vistunar erlendis Vistun geðsjúkra afbrotamanna var mikið til umræðu á Alþingi i fyrir- spurnartíma fyrr í þessari viku. Þeir sem til máls tóku voru á einu máli um það að nauðsynlegt væri að koma á fót sérstakri stofnun í þessu skyni og bent á að á Norðurlöndum séu sérstök réttar- geðsjúkrahús sem þjóna þessu hlut- verki. DV bar þetta mál undir Hallvarð Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóra ríkisins: ,,Ég þekki ekki til þess að það séu rekin sérstök réttargeðsjúkrahús á Norðurlöndum,” sagði Hallvarður, „og vil því ekki gefa neitt álit á því máli. Hins vegar eru þessi mál í ólestri og það hafa sótt á mann ýmsar efa- semdir vegna viðbragða sjúkrahúsa við þessum málum. Mér finnst mjög miður að sjúkrahúsin hafi ekki getað séð sér fært að sinna þessu fólki. Það er ekki langt síðan, eða um tveir mánuðir, að ég gerði kröfu um það fyrir dómi að yfirlæknar Kleppsspital- ans yrðu skyldaðir til að sinna einum slíkum sjúklingi. Þar var kveðið á um að hann skyldi sæta geðrannsókn en síðan hefur ekkert gerzt og hún hefur „Um Mk ménuök stöan ég geröi kröfu um þaö fyrir dómi að yfíriœkn- ar KieppsspHaians yröu skyldaðir tii aö sinna einum siikum sjúklingi ... en síðan hefur ekkert gerxt," segir Hallvarður Einvarðsson rannsóknar- lögreglustjóri ríkisins. ekki farið fram enn. Ég hef engar tölur um fjölda þeirra mála sem geðsjúkir afbrotamenn hafa verið viðriðnir,” sagði Hallvarður Einvarðsson aðspurður. ,,En þau hafa verið nokkur á síðustu árum og það hefur verið ýmsum framkvæmdaerfið- leikum bundið að koma fram geðrann- sókn. Einnig hafa verið erfiðleikar á að vista menn eins og heilsu þeirra hæfir eftir að dómar eru gengnir og þeir verið dæmdir ósakhæfir. Það er fráleitt og raunar uppgjöf af hálfu samfélagsins að senda þá til vistunar erlendis. Ég hef ekki verið kvaddur til neinna umsagna um þessi málefni, enda þótt þau brenni helzt á starfsfólki Rann- sóknarlögreglu ríkisins og þar sé einna mestur vandinn.” Er þá almennt nægilega vel búið afl rannsóknarlögreglunni til afl sinna þessum málum? „Ég er ekki að segja að þetta tengist beint rannsóknum að öðru leyti en þvi sem snýr að rannsókn á sakhæfinu. En það er fyrst og fremst hér sem verður vart við erfiðleikana. En ég hef lýst mínum viðhorfunt við landlækni og dómsmálaráðuneytið og vil að svo komnu máli ekki segja neitt frekar um þetta,” sagði Hallvarður Einvarðsson að lokum. -ÓEF. þrekhjól f yrir þá sem er annt um heilsuna Kjörið til líkamsræktar heimavið. Stöðugt og sterkt - mjúkt og breitt sæti, öryggishlífar á keðju og hjóh - stillanlegt stýri og sæti - stiUanlegur fótstigsþungi - hraðamælir og snúnings- teljari - tekur lítið pláss. Varahlutaþjónusta. Verðkr. 1.794,- 20 mínutur á dag... KALKHOFF þrekhjól er ódýr og góð lausn fyrir þá sem annt er um heilsuna. _ / — — Reióhjólaverslunin Serverslun i meira / Spítalastíg 8 og vió Óóinstorg símar: 14661,26888 enhálfaóld Þafl er Hendrik Berndsen i Blómum og ávöxlum sem skreylir Brosrdway fyrir Sljörnumessu DV, eins og honum einum er lagifl. Stjörnumessa DV: Miðamirrenna úteinsog heitarlummur Það er ekki ofsögum sagt að mið- arnir á Stjörnumessu DV renni út eins og heitar lummur því nær uppselt er á messuna, aðeins eru eftir nokkrir ósóttir miðar, er pantaðir höfðu verið, og verða þeir seldir milli klukkan 16 og 18 í dag í Broadway. Allur undirbúningur að Stjörnumessunni er í fuilum gangi enda líður óðum að þessari glæsilegustu hátíð ársins sem haldin verður i Broadway. Eins og alkunna er verður stjörnu- hljómsveitin í ár Mezzoforte en um kynningu sjá þeir félagar Þorgeir Ástvaldsson og Magnús Ólafsson. Broadway verður blómum skreytt og sér Hendrik Berndsen í Blómum og ávöxtum um þá hlið mála. Allt er sem sagt í fullum gangi til að gera Stjörnu- messuna sem glæsilegasta og eftir- minnilegasta. -KÞ. Jersey ERM ARSUNDSE Y J AN VEÐURSÆLA Alla föstudaga frá 6. apríl — 12. október. Þotuflug um London — morgunflug. Gisti- staðir víðs vegar um eyjuna. Öll hótel 1. flokks, hálft fæði, bað, WC, ekki svalir, en sundlaugar við sum hótelin. Skoðunarferðir um nærliggjandi eyjar, Guernsey-Alderey og Sark, en einnig upp á Bretagneskagann. Af» . víf-, ) tdinburgh , Beifast 03 3 Dublln \ • % % Carditt Lcndon . 0 The Hague £11' i Brussels 4 423 n',s ~ lms # Bonn 67 B wrn Jörsey 3Í200 3 22 fcms m Paris ÖRSTUTT TIL PARÍSAR Góðar samgöngur um eyjuna og við eyjuna. Ekkert V.A.T. tollfrjáls eyja, verðlag eftir því. Góður matur og þjónusta með ágætum. Þægilegur staður til hvíldar. Hægt er að stoppa í London í bakaleið og dveljast þar á 1. flokks hótelum á góðu verði. Verð frá kr. 7.424.- á mann í viku. Hver aukavika frá kr. 2.273.- Innifalið er flug, hálft fæði, akstur til og frá flugvelli. Umboðsmenn á staðnum. cw Feróaskrifstotd KJARTANS HELGASONAR Gnoóavog 44 104 Reykjavik Simi 86255 20” N LITSJÓNVARP LAGMULA 7 REYKJAVÍK SÍMI 85333 verð 10.400,- SJÓNVARPSBÚMN / PRISMA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.