Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Síða 9
Vafasöm skoðanakönnun Fyrir nokkrum dögum birti DV úr- slit í skoðanakönnunum sem blaðið stóð fyrir varðandi vinsældir stjórn- málamanna og óvinsældir. Margir hafa sett sig í samband við ritstjóra biaðsins til að láta í ljós óánægju með Laugardags- pistill np CINII Ulf tlNU - ■ - - - - --í ANNAÐ DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982. an frammi fyrir tugþúsundum áhorf- enda. Úrslitaleikur á Wembley er ekki venjulegur fótboltaleikur, hann er vegna umgerðar, andrúmslofts og spennu meiriháttar viðburður fyrir marga hluta sakir. Gervihnöttum fjölgar Víðast hvar um heim eru íþrótta- viðburðir vinsælasta sjónvarpsefnið. Hundruð milljóna manna fylgjast með þeim af gífurlegum áhuga. Nú loks gafst íslendingum tæki- færi til að komast í snertingu við gildi beinnar útsendingar af þessu tagi. Við vorum öll komin á Wembtey, fylgdumst með hverri spyrnu um leið og hún var framkvæmd. Atburður- inn var ljóslifandi. Þetta hefur tæknin gert kleift. ís- lenskt sjónvarp, jarðstöð og gervi- hnettir hafa gerbreytt möguleikum íslendinga til að njóta þessarar þjón- ustu og við höfum fengið forsmekk- inn af ágæti þess. Framundan eru enn stórkostlegar framfarir á þessu sviði. Stórhuga áætlanir eru uppi um gervihnetti og sjónvarpsdagskrár sem hinar ýmsu þjóðir geta notið með fjölgun gervihnatta. Því er spáð að innan 4—5 ára geti fólk beggja megin Atlantshafsins séð sömu dag- skrá samtímis, valið það besta úr mörgum stöðvum, hvort heldur á sviði lista, íþrótta, fræðslu eða frétta- efnis. Möguleikarnir eru óþrjótandi. Hugmyndin um Nordsat er aðeins lítill angi af þessari þróun. Fólk unt heim allan fagnar þessum framförum og á enda eftir að þrosk- ast, menntast og eflast í víðsýni af þessum sökum. Þjóðir heims færast nær hver annarri. Vígvædd landa- mæri þurrkast út. Ekki aftur snúið Á sama tíma og þessi þróun blasir við gerist það furðulega að sterk öfl hér á landi vilja skella skollaeyrum við, loka sig af frá umheiminum. Hér eru menn enn að einblína á einokun ríkis- valdsins íslenska yfir siónvarpi og streitast gegn öðrunt sjónvarps töðv- um af þröngsýni og lorlryggui. Jafn- vel beinar ú.sendingar, eins og sú sem við sáum á laugardaginn, eru eitur i þeirra beinum. Þetta eru furðuleg viðhorf og raunar óskiljanleg. íslenska sjónvarpið hefur leyft okkur að gægjast inn um þann glugga sem smám saman mun opn- ast. Það á þakkir skildar. Nú verður ekki aftur snúið. íslendingar vilja og eiga að fá að njóta tækniframfara og l'yrsta flokks sjónvarpsefnis í beinum útsendingum eins og aðrar þjóðir. Ellerl B. Schram. Er ríkisstjórnin að springa? Verða stjórnarslit? Eru kommarnir vísvit- andi að sprengja sig út úr stjórninni? Þessar spumingar hafa risið hátt síð- ustu daga og jafnvel menn í innstu herbúðum stjórnmálaflokkanna voru farnir að trúa því að eitthvað óvænt gæti gerst. Vissulega gekk óvanalega mikið á. Ásakanir ráðherra hverraí annars garð báru þess vott að þeim var heitt í hamsi. Þjóðviljinn hamaðist á utan- ríkisráðherra, eins og hann getur verst látið, og Ólafur gaf ekki þuml- ung eftir, frekar en hans er von og vísa. Til viðbótar við Helguvíkurmálið blandaðist Blönduvirkjun inn í umræðurnar og upp úr sauð þegar iðnaðaráðherra lét skrifa undir samn- inga um virkjun án vitundar, hvað þá samþykkis þingflokks framsóknar- manna. AJþ ýðubandaiagið áívökað verjast En hvað sem öllum þessum deilu- málum liður og digurbarkalegum yfirlýsingum ráðherra, þá er það víðsfjarri að ríkisstjórnin fari frá ein- hvern næstu daga. Það hefur ekki staðið til. Alþýðubandalagið á í vök að verj- ast gagnvart kjósendum sínum, eink- um þeim sem ákafastir eru í and- stöðunni við herinn. Flokkurinn hefur einnig orðið fyfir barðinu á þverrandi fylgi meðal launþega og almennt áhugaleysi í þessum tveim hefðbundnu fylgishópum Alþýðu- bandalagsins hefur dregið svo úr öllu flokksstarfi og prófkjörsþátttöku að flokkurinn er á mörkum þess að halda lífi i fjölmörgum byggðarlög- um. Þetta er auðvitað áhyggjuefni fyrir flokksforystuna og þegar Helguvík- urmálið komst á dagskrá, bygging olíutanka og hafnarmannvirkja í tengslum við varnarliðið, þá var það bókstaflega upp á líf og dauða fyrir Alþýðubandalagið að hefja þau ólæti og mótmæli sem alþjóð hefur orðið vitni að. En þrátt fyrir allan hávað- ann hefur verið grátbroslegt að fylgjast með þeim víglínum sem Al- þýðubandalagið hefur dregið til þess eins að hörfa í næsta vígi. Úr einu víginu í annað og Svavar Gestsson flaggaði skipu- lagslögum og skipaði skipulagsnefnd upp á einsdæmi. Það skjól entist þó stutt, enda óhyggilegt að tefla við Ólaf Jóhannesson á heimavelli með lagakróka að vopni. Þar hitta lög- fræðingar ofjarl sinn, hvað þá Svavar Gestsson. Þessu næst var Hjörleifi skipað að stöðva borana- og jarðvegsrannsóknirnar og er það mál raunar óútkljáð þegar þetta er ritað. Þó er ljóst að fyrirmæli Hjör- leifs verða aðeins til að tefja fram- gang málsins en ekki til að stöðva það. Þannig hefur Alþýðubandalagið hrakist úr einu viginu í annað og svo var komið að á fundi sem Alþýðu- bandalagið efndi til í Reykjavík á miðvikudagskvöldið lýsti Svavar Gestsson yftr því að flokkurinn mundi ekki ganga úr ríkisstjórninni, þótt Ólafur hefði sitt fram. Síðasta haldreipi Alþýðubanda- lagsins er að Gunnar Thoroddsen knýi Ólaf Jóhannesson til að draga eitthvað í land svo Alþýðubandalag- ið geti bjargað andlitinu, enda mátti nánast heyra feginleikann í frásögn- um Þjóðviljans þegar hann skýrði frá þeim ummælum forsætisráðherra að samkomulags yrði leitað. Einhvern tímann hefði það þótt saga til næsta bæjar að Gunnar Thoroddsen tæki að sér að bjarga Al- þýðubandalaginu úr pólitískri klípu með því að rétta þeim höndina í varn- ar- og öryggismálum. En það er önn- ur og sorglegri saga. Það hefði líka einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar að svo væri komið fyrir Alþýðubandalaginu og herstöðvaandstæðingum að barátta þeirra gegn Nato og her snerist um skipulagslög og jarðvegsrannsóknir. Það er einnig önnur en gleðilegri saga um þær breytingar sem orðið hafa á íslandi varðandi varnar- og öryggis- mál. Fyrst átti að æsa upp landslýð og fá Ólaf utanríkisráðherra til að gefa eftir. Þegar það mistókst var sveitar- stjórnum á Suðurnesjum att saman Glugginn opnaður ekki til niðurstöðurnar. Hins vegar má vel fallast á að spurningar af þessu tagi séu vafasamar, enda frá- leitt að meta stjórnmálamenn eftir vinsældum. Þeir eru jafnvel sístir, stjórnmálamennirnir sem haga atkvæði sínu eftir því hvað þeir telja vinsælast án tillits til þess hvað sé skynsamlegast. Stjórnmálamaður sem hefur þor til að ganga á móti straumnum, fylgja sannfæringu sinni hvað sem öllum vinsældum líður gerir þjóðinni meira gagn er lýð- skrumarinn. Þess vegna er undir það tekið að spurningar um vinsældir eru mein- lausar en vitlausar og hálfu vitlaus- ari þegar spurt er um óvinsældir. Pólitíkin er ekki svona einföld og kjósendur þaðan af síður. EHert B. Schram rítstjóri skrrfar slíka könnun, sérstaklega að þvi er varðar þá spurningu „hvaða stjórn- málamanni viðkomandi hafi minnst álit á.” Nú má vitaskuld spyrja um þetta ■* atriði eins og svo margt annað, og um úrslitin verður ekki við aðra að sakasl en fólkið sem spurt er. Blaðið býr Sjaldan hefur dagskrárliðar í sjón- varpi verið beðið með jafnmikilli eftirvæntingu eins og knattspyrnu- kappleiksins á laugardaginn. íslensk- ir sjónvarpsáhorfendur fengu að sjá í beinni útsendingu úrslitaleik tveggja frægra enskra liða sem fram fór á Wembley leikvanginum í London. Það geta varla talist ýkjur þótt full- yrt sé að þjóðin hafi öll sest fyrir framan tæki sin og fylgst með leikn- um. Ekki aðeins þeir sem áhuga hafa á knattspyrnuíþróttinni heldur einnig þeir sem utan þess hóps standa. Sjónvarpið hefur að vísu einu sinni áður sent út heilan dagskrárlið í beinni útsendingu erlendis frá. Það var siðastliðið aðfangadagskvöld þegar við sáum sjónvarpssendingu frá Betlehem. Með allri virðingu fyrir því efni var íþróttaviðburðurinn ,á laugardaginn ólíkt meira spennandi enda liggur styrkur slíks efnis í því að þar bíða menn úrslita i ofvæni, þar etja frábærir íþróttamenn kappi sam-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.