Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ & VtSIR. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982. Stórmót í Indónesíu Stórmeistararnir Hort, Miles, Kurajica og Keene eiga það allir sam- merkt að hafa ætlað að taka þátt í Reykjavíkurskákmótinu í febrúar. Á síðustu stundu hættu þeir við þátt- töku og ástæðan var stórmót í Jak- arta á lndónesíu sem fram fór á sama tíma. Það er ekki á hverjum degi sem skákmenn hafa eitthvað til Indónesíu að sækja endakomust færri að en vildu. Þó tóku hvorki fleiri né færri en 26 skákmeistarar þátt í mótinu og þar af voru 18 stórmeistar- ar. Þetta er stærsta skákmót sem nokkru sinni hefur farið fram í Asíu, en fyrirhugað er að það verði haldið annað hvert ár. Upphaf mótsins var nokkuð sögu- legt. Sovézki stórmeistarinn Júrí Averbakh sem ráðgerði þátttöku í mótinu var sendur heim af sovézkum yfirvöldum, vegna ásakana Indón- esíumanna um njósnir þeirra fyrr- nefndu i landinu. Síðan varð að fresta fyrstu umferðinni um einn dag, því að þeir Hort, Sosonko, Gheorg- hiu og Radulov voru allir seinir fyrir. Mótið hófst svo þann 9. febrúar, sama dag og Reykjavíkurskákmótið, og þótt hér hafi verið um langt og strangt mót að ræða ætti því að vera lokið nú. Hins vegar hafa fréttir frá Indónesíu yfir langan veg að fara. Er þetta er ritað hafa aðeins borizt spurnir af 6 fyrstu umferðum móts- ins, en þá var staða efstu manna þessi: 1.—3. Hort (Tékkó), Ribli (Ungv. land) og Henley (Bandar.) 4 1/2 v. 4.—7. Christiansen (Bandarikin), Kurajica og Hulak (Júgóslavíu) og Ardijansah (Indónesiu) 4 v. 8.—12. Keene, Miles (England), Browne (Bandar.) og Chandler (Nýja-Sjáland) 3 1/2 v. 13.—17. Sosonko (Holland), Csom (Ungv.land), Bellon (Spánn), Raduiov og Spassov (Búlgaría) 3 v. Auðvitað er ósköp lítið að marka stöðuna eftir 6 umferðir, því að sam- tals verða umferðirnar 25 talsins. Meðal þeirra sem ekki höfðu 50% vinningshlutfall eftir 6 umferðir var rúmenski stórmeistarinn Floin Gheorghiu, en fullvíst má telja að hann komi til með að blanda sér í toppbaráttuna, og eflaust margir fleiri. Gheorghiu má þó bæta ráð sitt verulega, a.m.k. ef marka má skák hans við Chandler úr byrjun mótsins. Ekki verður annað séð en að Rúmen- inn eigi viðofurefli aðetja. Skák Jón L Árnason Hvítt: CHANDLER Svart: GHEORGHIU SIKILEYJARVÖRN 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. c4 Rf6 6. Rc3 Dc7 7. Be2!? Fram að þessu hefur verið talin ástæða til þess að leika 7. a3 og hindra þannig leppun riddarans á c3. Chandler er greinilega á öðru máli og ekki er annað að sjá en að hann hafi á réttu aðstanda. 7. -Bb4 8. Rc2! Bxc3 9. bxc3 Rc6. Eftir 9. —Rxe4 10. Dd4 Rf6 11. Bf4 Da5 12. Bd6 fær hvítur mjög hættulegt frumkvæði og rífleg færi fyrir peðastöðuna drottningarmegin. Eins og skákin teflist er svartur heldur ekki laus allra mála. Líklegast má skella skuldinni á 7. leik hans. 10. Dd3 0—0 11. Ba3 Hd8 12. Bd6 Da5 13. Rb4 Re8 14. 0—0 b6? Næsti leikur hvíts hefur greinilega farið framhjá haukfránum augum Gheorghiu . . . 15. Bc7! Með smelli! Svartur kemst ekki hjá skiptamunstapi. Ef 15. —Rxc7, þá 16. Rxcöog vinnur. 15. —Re5 16. BxeS Dxe5 17. Rc6! Dc7 18. Rxd8 Dxd8 19. Habl Bb7 20. Hfdl Bc6 21. e5 b5 22. cxb5 axb5 23. Bf3 Bxf3 24. Dxf3 Rc7 25. Dd3 Df8 Gheorghiu. DALLAS-ÁSARNIR 0LLU V0N- BRIGDUM í STÓRMÓTIFLUGLEIDA Ýmsir urðu fyrir vonbrigðum með Dalla-Ásana, er í Ijós kom að þeir höfðu hafnað í þriðja sæti í Stórmóti Flugleiða. Víst er, að Rubin og Becker spiluðu undir styrkleika í sveitakeppninni og því fór sem fór. í fyrsta leik sínum gegn sveit Sævars voru Rubin og Becker áberandi lakara parið meðan Sontag og Weichsel voru að skora stig. í spilinu í dag náðu þeir mjög erfiðri fórn meðan félagar þeirra á hinu borðinu duttu í lukkupottinn. Norður gefur/n-s á hættu Nohddk <k Dio D96 G1063 * K865 Au>ii'k * 6532 G4 KD8754 * 2 Á AG9 K108753 A * AI03 í lokaða salnuni sátu n-s Rubin og Becker en a-v Jón og Valur. Þar gengu sagnir á þessa leið: Norður Austur Suður pass pass | H 1G 2T 2H pass 2S dobl 3T pass 4H pass pass pass Ekki munu allir sammála ákvörðun Vestur pass dobl pass dobl Vl-lllli Á K874 T A2 C- 92 * DG974 Vals að dobla, enda var auðvelt fyrir suður að vinna spilið. Hann gaf þrjá slagi, einn á spaða, einn á lauf og einn á tromp. Það voru 790 til n-s. Er spilið kom á sýningartjaldið var ljóst að Bandaríkjamennirnir ælluðu ekki að gefa eftir. Norður Austur Suður Vestur pass pass IL 2L dobl 3S 4H 4S dobl pass pass pass Sævar og Þorlákur voru n-s, en Wu ichsel og Sontag a-v. Iveggja laufa sögn vesturs lofaði svörtu litunum. Við fyrsta tillit virðist austur ekki eiga nema sex tapslagi og þá stenst fórnin. Hins vegar eru samgönguerfið- leikar og trompliturinn er heldur veik- byggður. Suður spilaði út tígulás og skipti siðan i hjarta. Sagnhafi drap á ásinn og spilaði strax litlu trompi úr blindum. Noður drap á tíuna og spilaði litlum tígli. Sagnhafi svínaði áttunni og suður drap á trompgosa. Hann spilaði síðan undan laufaás, norður drap á kónginn og spilaði hjartadrottningu. Síðan kom meiri tígull, trompaður með ás, en Weichsel átti afganginn, þrir niður og 8 impa gróði. Bridgefélag Breiðholts Staðan í butlertvimenningnum sem nú stendur vfir hjá félaginu er þessi þegar eitt kvöld er eftir. Aöalfundur Samvinnubankans Aöalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, laugardaginn 27. mars 1982 oghefstkl. 13.30. Auk venjulegra aöalfundarstarfa verður lögð fram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir í aðalbankanum, Bankastræti 7, dagana 24.-26.. mars, svo og á fundarstað. Bankaráð Samvinnubanka ísíands hf. A-riöill: I- Tryggvi Tryggvason-Sigurjón Tryggvason 76 2. Þórarinn Árnason-Gunnlaugur Guðjónsson 72 3. Guðlaugur Nielsen-Gísli Tryggvason 70 B-riðill: 1. Ragna Ólafsd.-Ólafur Valgeirsson 81 2. Friðjón Þórhallsson-Anlon Gunnarsson 79 3. -4. Rafn Krístjánsson-Þorvaldur Valdimarss. 74 3.-4. Alli Konráðsson-Riríkur Ágústssson 74 f/Q Bridge Stefán Guðjohnsen Næstkomandi þriðjudag lýkur svo keppninni og síðan er eins kvölds tvímenningur á dagskrá. Bridgefélag Hafnarfjarðar Síðastliðinn mánudag lauk 2 kvölda einmenningskeppni BH sem jafnframt er firmakeppni. í firmakeppninni urðu úrslit þannig: Slig 1. Skóvinnust. Sig. Sigurössonar (Sídó) 121 Spilari Guðm. Pálsson. 2. Útihurðir h/f. 116 Spilari Georg Sverrisson. 3. Ver/.lunin Arnarhraun 115 Spilari Einar Sigurösson. 4. Parma h/f. 107 Spilari Ragnar Halldórsson. 5. Hraunvirki h/f 107 Spiiari Ólafur Gíslason. 6. Prentsm. Hafnarfj. h/f 107 Spilari Björn Svavarsson. 7. Netasalan h/f 106 Spilari Ólafur Torfason. 8. Músik & Sport 106 Spilari Ari Krístjánsson. 9. Sigurgeir Sigurgeirsson 104 Spilarí Sig. Rmilsson 10. Hagsýn h/f 104 Spilari Viktor Björnsson. í einmenningskeppninni urðu efstir: ! Guðmundur Pálsson Stig 229 2. Björn Rysteinsson 209 3. Ólafur Gíslason 205 4. Rinar Sigurösson 201 5. Björn Svavarsson 201 B.H. þakkar öllum þeim fyrir- tækjum, er voru með í firmakeppninni. Nk. mánudag hefst síðasta keppni vetrarins á 5 kvöld barometer og eru spilarar beðnir að melda sig hjá for- manni, Kristófer, sími 51983. Laugar- daginn 20. marz verður spilað við Selfoss á Selfossi en þetta verður í 36. skiptið sem þessi félög leiða saman hesta sína. Barðstrendingafélagið í Rvfk Staðan eftir 2 umferðir i páskatvimenningskeppni félagsinser þessi: Stig: 1. Óii V. og Þórir 265 2. Helgi og Gunnlaugur 250 3. Þorsteinnog Sveinbjörn 250 4. Sigurbjörn og Hróðmar 250 5. Viðar og Haukur 245 6. ísak og Þórður' 241 7. Hörðurog Hallgrimur 240 8. Björn og Gústaf 239 9. Viðar og Pétur 232 10. Hannes og Jónína 231 Bridgedeild Breiðfirðinga Sl. fimmtudag bauð Bridgefélag Breiðfirðinga Bridgefélagi kvenna til sveitakeppni. Keppt var á 13 borðum og vann Bridgefélag Breiðfirðinga með 191 stigi gegn 69 stigum kvennanna. Fimmtudaginn 25. marz hefst 5 kvölda hrað- sveitakeppni. Þegar hafa skráð sig 19 sveitir en skráning fer fram hjá Sigriði Pálsdóttur, í síma 42571 og Þorvaldi Matthiassyni, síma 35061. Frá Bridgefélagi Reykjavikur Síðastliðinn miðvikudag hófst hjá félaginu sveita- keppni með sjö spila leikjum. Til leiks mættu 14 sveitir og stendur keppnin í þrjú kvöld. Að loknum fjórum umferðum er röð efstu sveita þessi: Sigurður B. Þorsteinsson 66 Bragi Hauksson 65 Símon Símonarson 61 Karl Sigurhjartarson 50 Aðalsteinn Jörgensen 44 Björn Halldórsson 41 Næstu fimm umferðir vera spilaðar næstkomandi miðvikudag í Domus Medica kl. 19.30. Mjög áríð- andi er að keppendur mæti stundvislega þar sem spiluð verað 35 spil um kvöldið. TBK Fimmtudaginn 18. marz sl. voru spil- aðar 12, —17. umferðir í barómeter- keppni hjá félaginu. Staða efstu paraer nú þessi: Stig 1. Sigurjón Helgason-Gunnlaugur Krístjáns. 73 2. Ingólfur Böðvarsson-Bragi Jónsson 53 3. Auöunn Guðmundss. Guðm. Riríkss. 41 4. Þórhallur Þorsteinss.-Bragi Björnss. 27 Síðustu umferðirnar verða spilaðar fimmtudaginn 20. marz nk. í Domus Medica. Bridgedeild Skagfirðinga Síðast var spilað þriðjudaginn 16. marz og þá er aðeins ólokið einni lotu sem spiluð verður 23. marz. Nú eru efst eftirtalin pör: Slig 1. Bjarni Péturss.-Ragnar Björnsson 123 2. Garðar Þórðars.-Guðm. Ó. Þórðars. 122 3. Óli Andreasson-Sigrún Pétursd. 114 4. Guðm. Aronss.-Siguröur Ámundas. 92 5. Andrés Þórarinss.-Hafsteinn Péturss. 73 6. Gísli R. Stefánss.-Siguriaug Sigurðard. 72 7. Pála Jakobsd.-Valdimar Þórðars. 68 í sambandi við keppnisferð til Sauð- árkróks verður spilaður opinn tvímenn- ingur i SelinuiSauðárkróki föstudaginn 26. marz er hefst kl. 20.00. Allir spilar- ar eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. 30. marz hefst ný keppni, spilaður „butler”. Enn geta nokkur pör skráð sig hjá Sigmari Jónssyni í síma 16737— 12817 eða Jóni Hermannssyni í síma 85535. NY BRIDGEBÓK Terence Reese & Roger Trézel ÖRYGGIS- spilamennska Nýlega kom út ný bridgebók eftir Terence Reese og Roger Trézel. Bókin nefnist „Öryggisspilamennska í bridge” og útgefandi er Einar Guð- mundsson, pósthólf 91-355 Ólafsvík. ÓþarFi er að kynna höfunda, þeir hafa hvor í sínu landi unnið til allra titla sem hægt er en óhætt er að fullyrða að Reese hafi vinninginn hvað ritstörf áhrærir. Þrátt fyrir nokkrar hvimleiðar prent- villur er bókin hin eigulegasta og vel þýdd. Hún er nauðsynleg öllum bridgespilurum sem vilja ná árangri í spilinu og óhætt að ráðleggja öllum að eignast hana. Og eins og segir á baksíðu: „Það má vexjast slæmri legu með öryggisspila- mennsku og í þessari bók útskýra tveir frægir höfundar, með mörgum dæmum, réttu öryggisspilamennskuna fyrir sérhverja samsetningu spilanna. Með því að tilcinka sér efni þessarar bókar getur maður verið viss um meiri árangur, færri mistök og aukið sjálfs- traust.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.