Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1982, Síða 17
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982.
17
MyntSmar aru úr sýningu RíkisMkhússins 6 Brúðkaupi Quiteriu og Camichos og sýna
Maríu Gísiadóttur í hlutverki Quiteriu og mótdansara hannar, Francasco PaUateMa, í Mut-
verki BasiUós.
mótdansara hennar það leikur einn
að gripa hana á flugi hennar um svið-
ið.”
innan sviga
Ballettinn í heild fékk mjög góða
dóma og þótti hafa tekizt vel, flestum
eindönsurum hrósað, þó engum eins
og Maríu. Hún er „yndi áhorf-
endanna” „létt eins og dúnhnoðri”
„músiköisk með afbrigðum”,
„tæknilega fullkomin” —
„brilliant” . . . Eru þó erlendir
gagnrýnendur sjaldnast að skafa
utan af hlutunum ef þeim þykir eitt-
hvað betur mega fara. Liki þeim
eitthvað miður vel er það ekki falið í
kurteisishjali. Og i einum þeirra
dóma, sem okkur bárust um
ballettinn don Kikota í Wiesbaden,
segir um einn karldartsaranna: „í
tveimur fyrstu þáttunum reigir hann
sig eins og hani á sviðinu af þvílíku
offorsi að brækurnar rifna næstum
þvl utan af honum. Og svo í þriðja
þætti í tvidansinum, þegar virkilega
er þörf á kraftinum, bregzt hann
alveg. 1 stað „Danseur noble” er eins
og úfinn froskur sé hoppandium á
sviöinu!” Og fyrst verið er að tala um
þýzka gagnrýnendur má bæta hér við
orðum Heinrichs Heine skálds (sem
reyndar skráði þjóðsöguna um
Viliurnar og Giselle) um fyrstu frum-
sýningu bailettsins Giselle f París
1841. Þádansaði Carlotta Grisi titil-
hlutverkið og um hana hafði Heinc
þetta aðsegja:
„Ég læt mér nægja að segja frá
Carlottu Grisi sem innan um
dansara óperunnar virðulegu bar af
eins og appelsína innan um
kartöflur.”
En þetta var nú allt svona innan
sviga.
S/ó ígagn sem Giselle
Fyrr í vetur dansaði María Gisla-
dóttir einnig titilhlutverkið í ballett-
inum Mata Hari og fékk einnig þá
mikið hrós. í fyrravetur dansaði hún
bæði hlutverk Þyrnirósar og Giselle
og birti Helgarblaðiö þá dóma um
frammistöðu hennar í þeim ballett-
um sem voru mjög í svipuðum dúr
og dómararnir um dans hennar i Don
Quixote.
Og nú er María sem sagt komin
heim til að dansa Giselle fyrir okkur á
sviði Þjóðleikhússins. Hún leysti Ás-
disi Magnúsdótlur af á fimmtudag og
föstudag og á morgun eru tvær
sýningar á ballettinum kl. 14 og kl.
20. Maria og Helgi Tómasson fara
bæði af landi brott á mánudaginn
og tekur þá Asdis aftur við hlutverk-
inu en mótdansari hennar verður Per
ArthurSegerström. -Ms.Jt
HÚSGAGNASÝNING
Á MORGUN, SUNNUDAG KL 2-4
KlenSkt Húsgagnaverslun
Guðmundar
Smiðjuvegi 2. Sími 45100.
Iðnráðgjafi í
Vestfjarðakjördæmi
Fjórðungssamband Vestfirðinga auglýsir eftir
umsóknum um starf iðnaðarráðgjafa í Vest-
fjarðakjördæmi. Umsóknarfrestur er til og með
15. apríl 1982. í umsókn sé greint frá menntun
og starfsreynslu.
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu á
sviði iðnaðar, viðskipta- eða rekstrarráðgjafar.
Umsóknir sendist til Fjórðungssambands
Vestfirðinga, Hafnarstræti 6, pósthólf 17, 400
ísafjörður.
isafirði, 16. marz 1982.
Fjórðungssamband Vcstf irðinga.
Hvað er
hártoppur?
Hártoppur er gegnsæ plastþynna í húð-
lit sem passar nákvæmlega eftir höfuð-
lagi yðar, það getur einnig verið úr ör-
þunnu neti sem hárin eru hnýtt í.
Fyrir Eftir
er
höfuð-
prýði
Hárprýði og Leif österby hárskerameistari kynna það nýj-
asta í herrahártoppum frá Waldorf Ragn of Copenhagen,
mest seldu hártoppum á Norðurlöndunum.
Kynning:
Á morgun — sunnudag kl. 10—18
Hárprýöi
Miðbæ, Háaleitisbraut 58—60.
Sími 32347.
Húsgögn
í ungHngaherbergið
OPIÐ í DAG - LAUGARDAG
KL. 10-17
Roykjavíkurvogi 68 Hafnarfirði, sími 54343.