Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Síða 1
Vagnst jórar h já SVR æf ir út f Ikarus:
TILLAGA KOMIN UM
SÖLU VAGNANNA
Eins og fram hefur komið hafa
vagnstjórar hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur mótmælt því ákaflega
að þurfa að aka ungversku Ikarus-
vögnunum þremur sem þar eru í
notkun.
í skoðanakönnun sem gerð var
meðal vagnstjóranna voru aðeins ör-
fáir sem ekki vildu losna við þessa
vagna og hafa margir þegar færzt
undan því að aka þeim.
Að svo komnu máli hefur fulltrúi
starfsmanna í stjórn SVR, Bergur H.
Ólafsson, lagt fram tillögu um að
vagnarnir verði hreinlega seldir.
Verður væntanlega fundað um málið
strax eftir páska.
Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri SVR,
var tregur til að tjá sig um málið í
morgun. Hann kvaðst þó í dag geta
tekið undir þau orð sem fram komu i
niðurlagi skýrslu þeirrar er sendi-
nefnd borgarinnar skilaði að aflok-
inni heimsókn til Búdapest, áður en
vagnarnir voru keyptir fyrir tveimur
árum. Þar sagði meðal annars að
Ijóst væri að vagnarnir sýndu veruleg
frávik í tæknibúnaði í mörgum veiga-
mestu atriðum og að sá búnaður sem
Ikarus byði upp á væri af allt öðrum
gæðaflokki en þeir vagnar sem SVR
átti fyrir og útboðslýsing tók mið af.
í sendinefndinni voru þeir Egill Skúli
Ingibergsson, borgarstjóri, Jan
Jansen, yfirverkstjóri SVR og Ög-
mundur Einarsson, forstöðumaður
Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar.
Að öðru leyti vildi Eiríkur ekkert
segja fyrr en stjórnin hefði fjallað
nánar um málið. -jb.
Gámurinn
ófundinn
Rannsóknarlögreglan vinnur enn að
rannsókn á hvarfi gáms sem kom með
Álafossi til landsins í síðustu viku. Við
eftirlit tollgæzlunnar kom í ljós að einn
af þeim gámum sem komið höfðu með
skipinu var horfinn. Kom það ekki í
ljós fyrr en skipið var farið aftur úr
höfn. Arnar Guðmundsson rann-
sóknarlögreglumaður vildi ekkert segja
í morgun um gang rannsóknarinnar.
-ELA.
Áburður þarf
að hækka
um 60%
Enda þótt áburðardreifing til sölu-
staða víða um land sé hafin, og jafnvel
til bænda, liggur ekki enn fyrir
áburðarverð. Áburðarverksmiðjan
fór fram á 67% hækkun en Þjóðhags-
stofnun og nagdcild Seðlabankans
komust að þeirri niðurstöðu að
hækkunarþörfin væri 60%. Land-
búnaðarráðherra hefur fjallað um
málið og afgreiðir það væntanlega frá
sér í dag.
Ekki hefur verið unnt að fá upp-
lýsingar um rök fyrir þessari miklu
hækkunarþörf nú og munu þau ekki
verða birt fyrr en endanleg ákvörðun
um áburðarverðið liggur fyrir eftir
páska.
-HERB.
Reykjavíkurflugvöllur:
Þoldi ekki
þotuþungann
Boeing-þota Flugleiða tætti upp mal-
bik á Reykjavíkurflugvelli síðastliðinn
sunnudag. Af þeim sökum hefúr þotu-
flugið til Akureyrar verið um Kefla-
vikurflugvöll síðustu daga og mun svo
verða um páskana.
Þotan var í lendingu er hún fletti
malbikslagi af hluta norður/suður
brautarinnar. Var lagið ofan á stein-
steypu en flugbrautirnar voru upp-
hafiega steyptar.
Að sögn Péturs Einarssonar, vara-
flugmálastjóra, eru brautir Reykja-
víkurflugvallar ekki í góðu ásigkomu-
lagi og ekki til peningar til að gera
stórar viðgerðir. -KMU.
Páskatraffíkin:
Farþega-
fjðldi
fimm-
faldast
Undanfarna daga hefur þota Flug-
leiða verið í farþegaflugi til Akureyrar
til að anna páskaumferðinni sem nær
hámarki í dag. Til Akureyrar verða i
dag fimm Fokkerferðir og tvær þotu-
ferðir og lætur nærri að farþegafjöldi
tvöfaldist miðað við venjulega helgi.
Fullbókað er í öll flug. í gær voru þrjár
þotuferðir til Akureyrar frá Keflavik.
Einnig er búizt við talsverðum fjölda
farþega á morgun.
Farþegafjðldi til annarra staða hefur
einnig fimmfaldazt og verða í dag
fjórar ferðir til ísafjarðar og fimm til
Vestmannaeyja. Arnarflug flýgur eitt
til tvö aukaflug í dag til tólf staða á
landinu og fylgja flugin ekki nákvæmri
áætlun heldur eru miðuð við fjölda og
þarfir ferðamanna. Langir biðlistar eru
hjá Arnarflugi. Arnarflug hefur einnig
verið í ferðum með erlenda ferðamenn
sem þegar eru farnir að skjóta upp koll-
inum í einhverjum mæli og var flogið
til Vestmannaeyja og Grímseyjar með
Þjóðverja, íra og Svisslendinga.
Margir láta sér nægja landleiðina
heim í heiðardalinn og hafa rútuferðir
norður og austur einnig fimmfaldaz'.
Samkvæmt upplýsingum hjá BSÍ e,
mikið um unglinga í þessum ferðum á
leið i páskafrí frá skólum.
Ferðafélag íslands verður með fimm
ferðir í Þórsmörk um páskahelgina og
hafa þegar 60 manns skráð sig i þær.
Einnig verða þrjár ferðir á Snæfellsnes.
Skíðaíþróttin er ávallt vinsæl um
páskahelgina og stendur Ferðafélagið
fyrir skiðagönguferð á Hlöðufell frá
Gjábakka. Ferðaskrifstofurnar eru
einnig með skíðaferðir norður á Akur-
eyri og Húsavík en Flugleiðir bjóða
ekki sinn skíðahelgarpakka um páska-
helgina.
-gb.
Hægviðri
um páskana
Á Veðurstofunni fengust þær upp-
lýsingar í morgun að útlit væri fyrir
rólegt veður um helgina. Að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræðings yrði
að líkindum hægviðri, skýjað og ekki
þurrt allan tímann og gilti það um allt
land.
Búast má við lítils háttar slyddu eða
súld á Vesturlandi. Hiti myndi verða i
námunda við frostmark og líkur á
næturfrosti. Annars sagðist Trausti
ekki vera búinn að ákveða þetta enn, er
DV hafði samband við hann í morgun,
því hann væri enn að taka við
pöntunum.
-ÓEF.
DV óskar landsmönnum gleðilegra páska