Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Side 2
2 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR7. APRÍL 1982. Síðasta sýning á Jazz-inum í kvöld „ALLT FRÁ VÖLSUM, POLK- UM OG GÖMLU SVINGI í NUTÍMALEGA TÓNLIST” Hótelin á Akureyri fullskipuð um páskana — skemmtistaðir opnir eins og lög leyfa Hótel KEA, Hótel Varöborg og Hótel Akureyri eru nær fullbókuð yf- ir páskana. Væntanlegir gestir þeirra verða að stærstum hluta Reykvíking- ar, sem koma til Akureyrar til að létta sér upp, jafnframt því að fara á skíði. Sömu sögu er að segja um Skíöahótelið í Hlíðarfjalli, en þar voru fyrstu herbergin pöntuð strax um páskanaifyrra. Samkvæmt upplýsingum Gunnars Karlssonar, hótelstjóra á KEA, verða skemmtanir á hótelinu um hátíðamar eins og lög leyfa. Á skírdag verður veitingasalurinn opinn og Ingimar Eydal leikur lfctta tónlist fram til 23: 30. Sömu sögu cr að segja um laugar- dagskvöldið, nema hvað þá leika jassáhugamenn af fingrum fram eftir kl. 21.00 til miðnættis. Á iaugardaginn fyrir páska verður bryddað upp á þeirri nýjung, að bjóða til skemmtisiglingar um Eyja- fjörð með viðkomu í Hrísey. Farið verður með Drang um kl. 14 og tekur siglingin 4 tíma. Tekið er á móti pöntunum í þessa ferð á Hótel KEA. Auk Hótels KEA eru skemmti- staðirnir H-100 og Alþýðuhúsið. Þeir verða opnir til kl. 3 aðfaranótt skír- dags , til kl. 23.30 á skírdagskvöld og laugardagskvöld fyrir páska og til 01.00 á annan i páskum. GS/Akureyri tónlistarmennirnir erum inná sviðinu allan timann, enda er tónlistin notuð til að undirstrika söguþráðinn og það sem er að gerast á sviðinu hverju sinni. Ég get ímyndaö mér að þetta sé ekki ósvip- að og að semja tónlist við kvikmynd.” — Hefur þú unnið við eitthvað svip- að áður? Ég hef ekki samið tónlist við söngleik áður, en hins vegar vann ég árum saman við söngleiki i Svíþjóð sem undirleikari.” — Er þetta skemmtilegt viðfangs- efni? „Mjög svo, hugmyndir Báru voru mjög ákveðnar og góðar. Þetta var samið á stuttum tíma, svo álagiö var mikiö, en þetta var skemmtilegur timi. Jazz-inn er öðruvísi en fólk á að venjast almennt, en ég vil leyfa mér að fullyrða aö þessi sýning stendur sýningum leik- húsanna eða kvikmyndahúsanna ekk- ert að baki. Þetta er lofsvert framtak, sem ber a& virða,” sagði Árni Scheving. -KÞ —segir Ámi Scheving, einn höf undur tónlistarinnar ísöngleiknum „Þetta er mjög aðgengileg tónlist, allt frá völsum, polkum og gömiu svingi í nútimalega tónlist, þótt öll beri hún keim af jazz að meira eða minna leyti,” sagði Árni Scheving, einn höf- undur tónlistarinnar í söngleiknum Jazz-inn, sem sýndur verður í síðasta sinn í Háskólabiói í kvöid, i bili að minnsta kosti. „Hvernig þaö atvikaðist, aö ég tók þetta að mér? Þannig var að Bára kom að máli við mig og bað mig að sjá um tónlistarhliðina á söngleiknum. Ég féllst á það og fékk til liðs við mig hljómsveitina Friðryk svo og Guðmund Ingólfsson og Helga Kristjánsson. Þetta var rétt fyrir jólin og eftir að sam- æfingar hófust fengum við Þorleif Gíslason til iiðs við okkur. Við sömd- um svo tónlistina mikið til i hópvinnu, en einnig hver I sínu lagi.” — Hvernig tónlist er þetta? ,,Hún er mjög aðgengileg, raunar sambland af allrahanda tónlist. Viö legt að akamikið utan aðalvega þessa dagana. D V-mynd Friðþjófur. Nýstárlegt páskahald fSeljasókn: VAKA HEILA N0TT 0G HUG- LEIÐA PASKABOÐSKAPINN svonefnd föstuvaka, sem stendur fram á miðjan dag á föstudaginn langa. Þar verður haldið uppi samfelldri dagskrá, sem hefst með sýningu litskyggni- mynda frá sögustöðum Biblíunnar. Tónlist verður flutt af hljómplötum og einnig mun Jónas Ingimundarson leika tónlist í samræmi við boðskap hátíðar- innar. Sóknarpresturinn, sr. Valgeir Ástráðsson stýrir biblíulestri og á mið- nætti verður neytt heilags sakramentis. Nóttinni verður variö I bænahald og umræður um trúarleg málefni og klukkan átta morguninn eftir verða at- burðir föstudagsins langa skýröir í ljósi Biblíunnar og fleiri samtimaheimilda. Þar á eftir kemur fulltrúi frá kaþólsku kirkjunni I heimsókn og fjallar um helgihald kaþólikka. Vakan mun aö öllu leyti fara fram f safnaöarsainum, nema hvað henni lýk- ur með guösþjónustu i ölduselsskóla klukkan fjórtán. öllum er frjálst að koma og hafa lengri eða styttri viðdvöl, eftir því sem hverjum hentar. -JB íbúar Seljasóknar hefja páskahaldið með allnýstárlegum hætti. Á morgun, tkirdag, klukkan átján, hefst 1 safnaðanalmun að Tiadaacli 3, FORÐflBÚRID FAGUR FISKUR ÍSJÓ —verður fallegri hjá okkur Við erum rcit stoliir af nýju fínu búðinni sem við —1 erum búnir að opna. Hún er í Borgartúni 29 og þar ér hægl að fá fyrsta flokks fisk, sælkerakrækling. skötusel, lax. rækjur. humar, krabba. lúðu o.l’l. o.l'l. Við leggjum áher/lu á góðar vörur og fallegi um hverfi. Líttu inn i flottusiu fiskbúð í bænum. Talaðu við kokkinn okkar. hann Rúnar og smakkaðu á fisksalatinu hans. Borgartún29 Sími29640. FORÐfl DURIÐ S9]Hér eaim viö B0RGARTÚN KlObbuilnn □ Eitt málverka Guðna Hermansen sem sýnd verða i Akoges-salnum 8. til 18. april. SÝNING í AK0GES — helguð minningu Oddgeirs Kristjánssonar tónskálds Á skirdag, 8. apríl, verður opnuð málverkasýninng Guðna Hermansen listmálara í Akoges-salnum að Brautar- holti 6 og verður hún helguö minningu Oddgeirs Kristjánssonar tónskálds. Alls verða sýnd 36 olíumálverk og eru þau öll til sölu. Aðgangseyrir, sem verður 10 krónur, mun renna óskiptur til byggingar minnisvarða um Oddgeir Kristjánsson sem nú er unnið að og áætlað er að verði tilbúinn fyrir 17. júni nk. Minnis- merkiö verður reist á Stakkagerðistúni í Vestmannaeyjum og er því jafnframt ætlað að þjóna hlutverki útileiksviðs. I sambandi við sýninguna munu Akoges-félagar efna til happdrættis og verður verð hvers miða 25 krónur. Vinningur verður málverk eftir Guðna Hermansen en ágóöinn rennur til bygg- ingar minnisvarðans. Dregið veröur í happdrættinu 1. maí. Á efri hæð Akoges-salarins verða einnig sýndar litmyndir eftir Oddgeir Kristjánsson. Sýningin verður opin frá kluk kan 4 til 22. ÓEF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.