Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982. Lyftari óskast Vil kaupa lyftara með snúningsbúnaði, ca 2ja tonna, not- aðan eða nýjan. Staðgreiðsla, ef vel semst. Uppl. á auglýsingaþjónustu DV í síma 27022 merkt „H— 106” Opið aila páskaheigina frá ki. 23-04 smHOtikaffi VIDEORESTAURANT Smiðjuvegi 14D — Kópavogi — Sfmi 72177 MELTAWAY SNJÓBRÆÐSLUKERFI í bílastæði, tröppur, götur, gangstíga, torg og íþróttavelli. Síminn er: 77400 Þú nærð sambandi hvort sem er að nóttu eða degi. PÍPULAGNIR SF Smiðjuvcgur 28 — Box 116 — 202 Kópavogur 35% afsláttur 70% samsctt kr. 1.690,- 100% samsett kr. 1.790,- Takmarkað magn. Viðgcrða- og varahlutaþjónusta. Póstscndum. G. ÞORÐARSON Sævangi 7 — Hafnarfirði. Opið kl. 18-20. Sími 53424. Utsala á 12 gíra hjólum mcð öllu Útlönd Útlönd Útlönd Thatcher situr sem fastast — Bannar allan innflutningfrá Argentínu og frystir argentískar eignir í Bretlandi Thatcher-stjórnin hefur lagt bann Gengi sterlingspundsins féll í gær og við öUum innflutningi frá Argentínu til sömuleiðis verðbréf. Hefur sterUngs- Bretlands og tekur það gildi í dag. pundið ekki verið svona lágt gagnvart Áður höfðu verið frystar og kyrrsettar dollar f fjðgur og hálft ár. Stafaði þetta allar fjárfestingar og eignir Argentfnu- af óvissunni vegna yfirvofandi styrjald- mannaf Bretlandi. ar Breta og Argentinumanna, og um Argentfnskir hermenn draga fána þjóðar sinnar að hún á Falklandseyjum sem orðið hefur til þess að vekja brezka Ijónið af værum svefni. Washington reynir sættir Alexander Haig, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti í gær þriggja stunda viðræður við brezka og argen- tínska diplómata en Washingtonstjórn- inni er afar annt um að þessar tvær bandalagsþjóöir hennar lendi ekki í styrjöld saman. Ríkisstjórnir beggja, Argentinu og Bretlands, hafa lýst því yfir að þær vilji helzt leysa deUuna eftir diplómatískum leiðum og án hernaðarátaka. Tilraunir tU sáttaumleitana eru þó enn á þreif- ingarstigi. Sendiherra Breta i Washington sagði í gær að stjórn hans tæki ekki f mál að hefja samningaviðræður við Argentfnu fyrr en hernámsliðið argentínska væri á brott frá Falklandseyjum. Hann kvaðst hafa óskað eftir því við Bandaríkja- stjórn að vopnasala til Argentfnu yrði ekki tekin upp aftur fyrr en málið hefði verið leyst. Nicanor Costa Mendez, utanrfkis- ráðherra Argentínu, vísaði á bug fuU- yrðingum Breta um að fbúar Falklands- eyja væru gíslar hernámsliösins. Sagði hann að eyjaskeggjum væri frjálst aö dvelja um kyrrt eöa fara eftir því sem þeim sjálfum sýndist. Argentínustjórn hefur boðið fieim Falklendingum sem kjósa að yfirgefa eyjarnar að bæta þeim upp eignir sem þeir verði að skilja eftir eða annan skaða sem þeir verða fyrir vegna brottflutningana. Haig utanríkisráðhcrra er byrjaður að þreifa fyrir sér um sáttatilraunir. leið vangaveltum um aö stjórn Marga- retar Thatcher forsætisráðherra kynni öU að segja af sér. — Thatcher hefur nú tekið af allan vafa um það og segist ekki munu segja af sér, heldur standa af sér fjaðrafokið vegna innrásar Argentínu á Falklandseyjar siðasta föstudag. Michael Foot, leiðtogi Verkamanna- flokksins, hafði á þingfundi sakað stjórn Thatcher um að hafa vitað með góðum fyrirvara af innrásaráætlunum Argentínumanna en metið skakkt upplýsingar leyniþjónustunnar og sofíð á verðinum. Krefðist hann þess að Thatcher segði af sér og stjórnin öll viki frá. Var þetta í fyrirspurnartíma í þing- inu og veittust stjórnarandstæðingar í ákafa að forsætisráðherranum sem fuUyrti að stjórnin hefði fyrst haft pata af innrásinni tveim dögum áður en hún var gerð. Herskipið „Fearless” lagði af stað frá Portsmouth í gær, en um borð í því eru nokkur hundruð hermenn úr vík- ingasveitunum brezku. Alls eru því nú 37 brezk skip á leið til Falklandseyja, þar á meðal tvö flugmóðurskip og einn k jarnor ku ka fbátur. Hernaðarfræðingar telja ólíklegt að Bretar muni sækja alla leið til Falk- landseyja því að þá mundu skip þeirra verða í skotfæri flughers Argentínu. Hitt þykir Uklegra að flotinn muni halda uppi hafnbanni á Falklands- eyjum og hindra aila aðflutninga Ar- gentínumanna til hernámsUðsins á eyj- unum. Læknar launaðir Tveir brezkir læknar, Denis Parsons Burkitt og Michael Epstein, taka í dag á móti Bristol Meyers verðlaununum fyrir góðan árangur á sviði krabba- meinsrannsókna en það voru þeir sem greindu fyrsta vírusinn er tengist krabbameini í mönnum. Milljónum dala er nú eytt í krabba- meinsrannsóknir en er þeir Burkitt og Epstein hófu rannsóknir sínar voru þeir ósköp févana. Dr. Burkitt hafði fengið 65 dala styrk. Þegar hann vann sem skurð- læknir í Uganda uppgötvaði hann að þúsundir austur-afrískra barna sem þjáðust vegna ýmissa æxla voru í raun og veru öll með sama sjúkdóminn, þótt hann lýsti sér á mismunandi hátt. Hann notaði peningana til að senda spurningalista til annarra lækna í Afríku. Siðan heimsóttu hann og tveir starfsbræður hans 60 sjúkrahús í 12 Afríkuríkjum til að auka þekkingu sína á því fyrirbrigði sem seinna nefndist Burkitt’s lymphoma. Dr. Epstein rannsakaði sýktan vef sem hann fékk sendan frá Burkitt. Honum tókst að einangra áður óþekkt- an vírus í æxlinu, Epstein-Barr vírus- inn. Verðlaunin nema 50.000 dölum og í tilefni þeirra sagði dr. Burkitt að hann óskaði þess heitast að mega lifa það að gagngerðar breytingar yrðu á mataræði fólks og allar tóbaksauglýsingar yrðu bannaðar. Nógaf blýöntum Kínverjar áætla að framleiða þrjá milljarði blýanta á þessu ári og er hálfur milljarður ætlaður til útflutnings. Kínverjar eru nú á meðal af- kastamestu blýantsframleiðenda i heimi og nema gjaldeyristekjur þeirra af blýantaútflutningi- nokkrum milljónum Bandaríkja- dalaáári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.