Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ & VfSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd — þau eru þrælar leiðtoga síns og álíta að kynmök séu mun vænlegri trúboðsaðferð en dreifing bækiinga GUÐSBÖRNIN YFIR- GEFA VESTURLÖND Ida og Anders með dóttur sína, Amöndu. Sharon og Jakob Hllelsen ásamt bömum sinum. Moses David kom síðast opinberlega fram á Teneriffe fyrir fimm árum og létþá mynda sig i fíokki friðra trúboða. í rúmlega 10 ár hafa guösbörnin reynt aö boöa trú sína i Danmörku. Þeim hefur þó ekki orðið mikið ágengt og það er fyrst núna, er flestir félagar i þessum sértrúarsöfnuði hafa ákveðið að yfirgefa landið, að hreyf- ing þeirra nær því að verða verulega þekkt. Guðsbörnin, eða öðru nafni Kær- leiksfjölskyldan, komu fyrst til Dan- merkur 1969. Þau hafa aðallega boð- að trú sína á götum stórborganna — t.d. á göngugötum Kaupmannahafn- ar og Árósa. En trúboðið hefur ekki gengið sér- lega vel. Á blómatíma hreyfingarinn- ar í Danmörku voru félagar um 300 að tölu en í fyrra var tala þeirra komin niður í 110. Kærleiksfjöl- skyldan er kannski sú af nýrri trúar- hreyfingum sem minnst fylgi hafa hlotið 1 Danmörku. Leiðtogi guðsbarnanna er 62 ára fyrrverandi prestur í Bandaríkjunum, David Berg. Hann er af sænsku bergi brotinn en er af söfnuði sínum til- beðinn sem Moses David, spámaður og staðgengill Guðs á jörðinni. Yfírvofandi ragnarök David Berg hefur verið eftirlýstur í Bandaríkjunum síðan 1975 fyrir að leita á börn. Hann lifir nú lúsuxlífi i útlegð fyrir fé það sem áhangendur hans vinna sér inn með betli, vændi og sölu bæklinga. TaUð er að hann sé einhvers staðar í Mið- eða Suður-Ameríku og hefur hann nú sent áhangendum sinum, sem sennilega eru á mUli 8000 og 12000, bréf þess efnis að þeir verði að yfirgefa Vesturlönd vegna væntan- legs atómstriðs og ragnaraka í þeim hluta heimsins. Eiga allir að vera fluttir fyrir apríllok á þessu ári. Það var vegna þessara flutninga sem hreyfingin komst á aUra varir í Danmörku, eða réttara sagt vegna þess að áhyggjufullur faðir, Niels Skyum-Nielsen prófessor, sneri sér í örvæntingu sinni til fjölmiðla til að fá dóttur sína, Idu (21 árs), ofan af því að flytja til Indlands ásamt manni stnum, Anders Tell (25 ára) og fimm mánaöa gamalli dóttur þeirra hjóna. Áfangastaður Idu og fjölskyldu hennar er Goa á vesturströnd Ind- lands, pestarbæU þar sem kólera og malaría eru tíðir vágestir. Óttast afi barnsins að það eigi enga Ufsmögu- leika á slikum stað. En Ida og Anders eru óhagganleg. Eins og önnur guðs- börn hlýða þau leiðtoga sinum, Mos- es David, i blindni, þau eru þrælar trúar sinnar. Flirty Fishing Kærleiksfjölskyldan er einnig þekkt fyrir undarlega aðferð við trú- boð sitt sem nefnist á máli hreyfing- arinnar Flirty Fishing. Hún felst i þvi að konur eiga ekki að skirrast viö að sængja hjá mönnum ef þær telja að með þvi móti megi snúa viðkomandi til „réttrar trúar”. Konunum er þó bannað aö nota getnaðarvarnir eða eyða fóstri. En þær trúa því statt og stöðugt að aðferðin sé Guði þóknan- leg og að hann muni þvi bjarga þeim ef til óþægilegra afleiöinga kemur. — Tilgangurinn með því að sænga hjá ókunnugum karhnönnum er eingöngu sá að leiða þá til Jesú, segir Sharon, sem einnig er á leið til Indlands ásamt manni sínum og fjórum börnum. — Við gerum það af umhyggju fyrir glataðri sál, til að fá hana til að snúa aftur til Jesú. — Auðvitað var það dálitið und- arleg tilfinning í byrjun að vita til þess að eiginkonan fór í rúmið með öðrum, segir eiginmaðurinn, Jakob. — En svo sér maður þá menn sem hún hjálpar með þessu móti og veit að öðruvísi var það ekki unnt. Við getum bjargað svo miklu fleiri i gegnum kynlífið en með því að standa á götuhornum og dreifa bækl- ingum. — Ég hafði verið forfallinn eitur- lyfjaneytandi í fimm ár áður en ég kynntist Kærleiksfjölskyldunni, segir Sharon. — Það voru guðsbörnin sem hjálpuðu mér til að hætta og þess vegna vil ég svo gjarnan hjálpa öðrum til að losna úr því viti sem ég þekki svo vel af eigin raun. Brjáiaður lefðtogi Guðsbörnin flýja Vesturlönd þó ekki eingöngu vegna væntanlegra ragnaraka heldur einnig vegna þess að Moses David telur að nú sé kominn tími til að boða trúna annars staðar. Óttast margir að safnaðarins bíði nú sömu örlög og fylgjenda Jims Jones, leiðtogans sem fékk „þræla” sína til að fremja fjöldasjálfsmorð f Jonestown því enginn vafi leikur á þvi að Moses David er brjálaður. Fyrir fjórum árum sendi hann út bæklinga þar sem hann hvatti fólk til að stunda kynlíf með börnum sínum. Að vísu varð sú hvatning hreyfing- unni síður en svo til framgangs og margir sögðu sig úr henni. En þeir sem eftir eru hlýða leiðtoga sínum í blindni — hvaða firru sem hann nú annars kann aö taka upp á eftir að hann hefur fengið áhangendur sfna til aðyfirgefa siðmenninguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.